Vikan


Vikan - 12.06.1969, Page 32

Vikan - 12.06.1969, Page 32
Reykurinn fer ca. 22,5 sm. í gegnum kælikerfi RONSON pípunnar og kemur kældur og þurr út. Það eru fleiri en ein pípa í sömu pípunni, 10 mismun- andi kóngar og tvenns konar munnstykki fyrirliggjandi. Það er hægt að velja á milli. EINKAUMBOÐ: I. GUÐMUNDSSON & CO. H.F. HVERFISGÖTU 89, REYKJAVÍK. STJÖRNUSPÁ Hrútsmerkið (21. marz — 20. opríl); Framan af verða dagarnir hversdagslegir; en skyndi- lega kemur ný persóna fram á sjónarsviðið og breyt- ir öllu. Láttu þér annt um þessa persónu og reyndu að vinna hylli hennar, þá er þér borgið. 0 Vogarmerkið (24. september — 23. október); Vertu vel vakandi og láttu ekki tækifærin ganga úr greipum. Smámunasemi þín hleypir illu blóði í þá sem umgangast þig mest. Ágjarn maður veldur þér nokkrum erfiðleikum. Þú ferð í sérstæða ferð. m Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí); Óvænt vitneskja á eftir að hafa mikil áhrif á þig og gera þér gott. Starfsorka þín er mikil og skaltu ekki veigra þér við nýjum verkefnum. Félagar þínir halda smá fund heima hjá þér. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember); Atburðarásin veltur mjög á afstöðu þinni; hafðu í huga að það er hægt að komast langt með þolin- mæðinni. Þú færð tækifæri til að treysta samband þitt við persónur, sem reynast æði áhrifamiklar. tm jui Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú gerir mikla lukku í hópi félaganna. Aðstæður haga því þannig til að þú færð næg tækifæri til að umgangast þá sem þér eru kærastir. Afskiptasemi nágrannanna gerir þér gramt í geði. #9’ Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. des.); Umgengni þín við fjölskylduna verður óvenju mikil. Líklega verðurðu meðlimur í stóru samkvæmi, höldnu til heiðurs ættingjum þínum. Forföll ann- arra koma í veg fyrir ferðalög þín að sinni. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Það fer mikill tími til spillis fyrir þér sökum áhuga þíns á forgengilegum hlutum. Ef þú ætlar að standa þig í samkeppninni verðurðu að fara að spjara þig. Á vinnustað er lítið um framfarir. £ jj 'jr; Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar); Vinveitt fólk býður þér aðstoð sem þú skalt þiggja. Vingjarnleiki og ákveðni fleyta þér lengst. Gættu þín á manni sem reynir að hafa áhrif á skoðanir þínar. Þú stundar mikið útilíf. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ógúst); Eitthvað í umhverfinu þvingar þig og hindrar fram- tak þitt. Vertu fús að semja og taka vægt á hlutun- um; vinsældir geta haft úrslitaþýðingu. Þú sækir á ný mið við að afla þér kunningja. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar); Þrátt fyrir nokkra erfiðleika miðar allt í rétta átt fyrir þér og máttu vel við una. Hafðu gát á verk- efnum þínum, í þeim gætu leynzt gildrur. í mál- efunm hjartans skaltu ekki flana að neinu. AAeyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Þú tekur þátt í miklum gleðskap með gömlum fé- lögum. Taktu ekki neinar bindandi ákvarðanir varð- andi framtíðina. Þú ferð í nokkurra daga ferðalag og ferð vítt yfir. Hæfileg sjálfsgagnrýni er sjálfsögð. 4% Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz); Tómstundastörfin hafa tekið fuli mikið af frítíma þínum. Þú þarft að umgangast margt fólk og leysa úr hvers kyns vanda. Þú hefur möguleika á að gera þér mat úr einhverju sem aðrir hafa gefizt upp við.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.