Vikan - 12.06.1969, Side 49
ARIANE TEBBENJOHANNS, ÞÝZK MILLJÖN-
ERADÖTTIR, ÁTTI MESTAN ÞÁTT í AÐ NÁ SAM
SHEPPARD, BANDARfSKA LÆKNINUM SEM
DÆMDUR VAR f LÍFSTÍÐARFANGELSI FYRIR
MEINT EIGINKONUMORÐ, ÚR DÝFLISSUNNI.
HÚN HEFUR EYTT NÆRRI ÖLLUM EIGUM
SÍNUM HANS VEGNA - EN NÚ ÖTTAST HÚN
UM LÍF SITT FYRIR HONUM.
í glæpaannálum síðustu ára-
tuga ber fáa hærra en banda-
ríska lækninn Sam Sheppard.
Kona hans, Marilyn að nafni, var
lamin í hel á heimili þeirra sum-
arið 1954. Maður hennar var
ákærður fyrir morðið og dæmd-
ur í lífstíðarfangelsið. í tíu ár
mátti hann dúsa í dýflissu í Ohio
unz hann var sýknaður að af-
loknum nýjum réttarhöldum.
Það átti Sam fyrst og fremst að
þakka þýzkum kvenmanni sem
Ariane Tebbenjohanns hét.
Ariane, sem er dóttir milljón-
era í Diisseldorf, frétti af þessu
máli eins og aðrir og fékk á því
slíkan áhuga, að síðan hefur líf
hennar varla snúizt um annað
en Sam Sheppard. Hún fór að
skrif a honum í f angelsið og leiddi
það til skilnaðar hennar og þá-
verandi eiginmanns hennar. Þá
fór Ariane vestur um haf, heim-
sótti Sam í fangelsið og varð ást-
fangin við fyrstu sýn. Hún átti
mestan þátt í því að mál hans
var tekið upp aftur og leigði hinn
fræga lögmann Lee Bailey, sem
örsjaldan hefur tapað máli, lækn-
inum til fulltingis. Og Bailey
stóð fyrir sínu eins og fyrri dag-
inn: Sam var sýknaður og þau
Ariane gátu hafið eðlilegt hjóna-
líf, en þau höfðu látið pússa sig
saman þegar áður en réttarhöldin
hófust.
En allt er í heiminum hverfult:
nú herma fregnir að vestan að
skilnaður standi fyrir dyrum hjá
þeim hjónum. Bæði hafa þau lát-
ið ástæðurnar uppi og eru þar
ekki fyllilega á einu máli.
Ariane er þeirra margorðari
og illorðari, hvort sem hún segir
satt eða ekki. Ber hún Sam mörg-
um sökum, bæði stórum og smá-
um. í fyrsta sinn mislíkaði henni
við hann er hann ók bílnum
hennar í óleyfi, meðan hún
skrapp heim til Þýzkalands. f
eitt skiptið hafði hann formála-
laust rekið hana út úr bílnum,
er þau voru á ferð úti í óbyggð-
um í dynjandi regni, og ekið
sjálfur á brott. Þá líkaði Ariane
miður hve Sam var elskur að
allrahanda vopnum. Hann safn-
aði ekki einungis að sér byssum
af ýmsum tegundum, heldur og
frumstæðari áhöldum eins og öx-
um. Ofan á þetta fór hann fljót-
lega að halda framhjá og nappaði
þá ýmsu smávegis úr eigu eigin-
konunnar til að gefa ástkonun-
um. Einnig tók hann oft til eig-
in þarfa peninga sem Ariane átti
eða þau sameiginlega. Til að bíta
höfuðið af skömminni, segir Ari-
ane, ásakaði hann mig einu sinni
fyrir að hafa stolið af sér mik-
illi fúlgu í dollurum og ógnaði
mér í það skiptið með skamm-
^"byssu.
Enda er nú svo komið að Ariane
lætur á sér skilja undir rós, að
hún sé ekki lengur alveg svo
sannfærð sem fyrr um að Sam
hafi ekki átt þátt í burtgangi
fyrri konu sinnar. En ekki get-
ur hún komið honum í tugthúsið
aftur, hvað fegin sem hún vildi,
því að lögin banna endurupptöku
sakar eftir sýknudóm, jafnvel
þótt nýjar sannanir komi fram
gegn þeim ákærða. En að
minnsta kosti vill Ariane skilnað.
Þetta verður henni dýrt spaug:
alls hefur hún eytt uppundir
tuttugu milljónum króna í rétt-
arhöldin og annað bjástur við
Sheppard lækni.
Sam hefur hinsvegar látið hafa
eftir sér, að meginástæðan til
misklíðar þeirra hafi verið að
hún hafi reynt að stía frá honum
syni hans af fyrra hjónabandi.
Um ásakanir hennar hefur hann
það eitt að segja að þær séu klára
lygi. *
24. tbi. VIKAN 49