Vikan


Vikan - 17.07.1969, Side 17

Vikan - 17.07.1969, Side 17
4 Tunglið horfir heim. Þessi mynd af jörðu frá tungli var tekin síðastliðinn aðfagnadag jóla úr Appollo 8. Yfirborð tunglsins er því sem næst 780 km frá geimfarinu, en sjón- deildarrönd tunglsins er um 175 km á lengd. Á jörðinni er skuggi á suðurhveli. 4 4 Hér sér suður eftir tunglinu og eru um 440 km að sjón- deildarbrún. Þetta yfirborð gæti vel stutt kenningu Har- aldar um, að tunglið hafi „soðið upp“ við þrýstingsfall. Haraldur meðfylgjandi kort af slíkum hryggjasvæðum. Fyrir um 100 milljónum ára varð tognun af þessu tagi á því svæði, þar sem nú er Kyrrahaf- ið. Þegar skorpan brast, komu þar upp bráðin möttulefni af svo miklum krafti, að kast kom á jörðina, og þetta misvægi magn- aðist síðan vegna snúnings jarð- ar þar til gúlpurinn slitnaði frá og fór á braut umhverfis jörðu. Þar tók hann á sig hnattlögun og varð stjarna sú, er við köll- um tungl. Sönnun þess arna er að Haraldar dómi meðal ann- ars sú, að snúningur tunglsins gengur þannig upp við snúning jarðar, að tunglið veit alltaf sömu hliðinni að jörðinni, en hann telur, að aðkomuhnöttur eða hnöttur sama uppruna og jörðin sjálf gæti varla snúizt þannig um jörðu. Þegar Kyrrahafsgúlpurinn rifnaði frá jörðinni, barst það sem eftir var af jarðskorpunni á bráðnum möttulefnunum í átt- ina að gígnum, sem myndaðist við þessar hamfarir. Sé hnatt- líkan skoðað, má sjá nokkra sveigmyndun á löndum jarðar- innar í áttina að þessu svæði. Vitaskuld hafa hamfarirnar verið slíkar, að allt líf á jörð- inni hefur raskazt stórkostlega, þó sízt það sem var fjarst ham- farasvæðinu og minnst vexti. Enda hneigjast allar líkur að því, að vagga lífs og menningar í þeirri veru sem við þekkjum, hafi verið á svæðunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Ýmisleg fleiri rök færir Har- aldur fyrir kenningu sinni, og skal hér ekki tekin afstaða til hennar. En hér á eftir fer grein- argerð Haraldar sjálfs fyrir kenningunni: JflRDSOGU KENNING HflRflLDAR f kenningu þeirri um þróun jarffar sem fram er sett í þessari grein styffst ég, aff svo miklu leyti, sem þekking mín nær, viff staffreyndir úr þróunarsögunni. Þó aff kenning þessi verffi létt- væg fundin geri ég mér vonir um aff hún sé fyllilega gagnrýni verff. Þær jarðsögukenningar sem nú eru mest hafðar frammi, skýra flestar einstök atriffi jarff- sögunnar, án þess að ná fram heildarmynd, og falla flestar illa aff kenningum, sem skýra eiga önnur náttúrufyrirbrigffi. Því er þaff freistandi fyrir áhugamann, sem ekki er bundinn viff neina sérstaka grein innan jarfffræð- innar, aff sameina þaff sem virff- ist geta fallið saman úr hinum ýmsu kenningum og spá í eyff- urnar. Sú heildarmynd, sem hér er sett fram, er mjög frábrugffin því, sem álitiff er nú um þetta efni. Þó er gaman aff setja fram kenningu nú, sérstaklega þann hluta sem viðkemur tunglinu, því aff meff lendingu manna á því og öflun sýnishorna þaffan, til aldurs- og efnagreiningar, má búast viff óvæntum niffurstöffum. Jafnvel svo óvæntum, aff jarff- fræffingar verffi aff stokka upp margar kenningar, þegar eftir fyrstu ferff manna til tunglsins. Kenningin er eins stutt og samþjöppuff og mögulegt er, en í útskýringum meff henni tel ég vera nokkur forvitnileg atriði fyrir flesta sem áhuga hafa á tæknihugleiffingum og jafnvel nokknr þrasatriffi fyrir jarff- fræðinga. JARÐSÖGUKENNING Þefar skorna tók að myndast á jörffina, hafa efni jarffar veriff farin aff setjast til eftir efflis- þyngd. Gegnumstraumar jarffar- efna um snúningsásinn hafa far- iff dvínandi. Þeim hefur þó ekki lokiff viff myndun kjarnans, heldur hafa þeir einskorðazt viff gegnstreymi í honum vegna hins mikla efflisþyngdarmunar kjarnaefnanna annars vegar og möttulefnanna hins vegar. Gegnstraumar í kjarnanum liafa svo smám saman hætt, þeg- ar hitastig möttulefnanna, sem aff kjarnanum ná, hafa náff hita- stigi kjarnans, vegna tregari leiffni þeirra. Viff lok gegn- streymis í kjarnanum hefur hringstreymi tekiff viff meff snúningi jarffar; þa® náffi þó ekki djúpt í kjarnann. Hitastig mun því hafa vaxiff ört í miðju kiarnans, og orffið hitamismunur í efnum lians. Viff þaff hefur myndazt gegnstreymi aff nýju og þá úr gagnstæffri átt, en gorm- laga straumar í yfirborffi kjarn- ans liafa snúizt eftir sem áður meff jarffarsnúningi. Þannig mynduffu gegnstraum- ar í kiarna jarffar segulsviffiff, og umpóluðu því meff stefnubreyt- ingum gegnumstraumanna, um baff bil þrisvar á hverjum millj- ón árum. Gegnumstraumar í kjarnanum grenntu hann um miffjuna effa hreyktu upp inn- og útsíreymisstöffum hans, þannig aff kjarninn varff sporbaugslaga og hafffi langás sinn eftir snún- ingsás jarffar. Þar sem kjarninn var úr efflisbyngri efnum en möttulefnin, þurfti ekki mikla löcunarbreytingu á honum til að valda mismiklum affdráttarkrafti á möttulefnin. sem svo leiddi til löamnarbreytingar á yfirborffi iarffar, bað er, jörffin varff spor- baugslöguff, og hafffi skammás sporbaugsins eftir snúningsás sínum. 29. tbi. VIKAN 17

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.