Vikan


Vikan - 17.07.1969, Síða 45

Vikan - 17.07.1969, Síða 45
B.B. King „Konungur blues-ins“. átrúnaðargoð nútímans, sem not- ar blues fyrir grundvöllinn að tónlist sinni, sem er nokkurs- konar endaleysa af hljómum og hávaða. „Krakkarnir taka á móti þessari tónlist með galopnum örmum. Ef þau fengju ekki þessa tónlist, sem er hröð og hávaer, myndu þau bara í staðinn gera einhvern fjárann af sér. Þessi tónlist er ákaflega mikilvægur hluti í lífi þessara ungmenna. Ef foreldrarnir vilja raunverulega leggja sig fram við að skilja sín börn, þá ættu þeir að reyna að skilja tónlistina sem þau dýrka.“ Margir hljóðfæraleikarar halda því fram að einungis , blökku- menn geti leikið blues. „Það eru til nokkrar stórkostlegar blues- hljómsveitir, skipaðar eingöngu hvítum mönnum," segir Muddy Waters, sá mikli blues-leikari frá Chicago, og ef til vill sá sem lagði grunvöllinn að því að blues-inn var endurvakinn. „Þeir geta spilað hvað sem er. En þeir fóru ekki í baptistakirkju á hverjum sunnudegi eins og ég gerði. Þeir hafa ekki þessa dá- samlegu „soul“ tilfinningu djúpt í hjartanu eins og ég. Og þeir geta ekki komið boðunum til skila. Þeir eru að spila blues hvíta mannsins. Ég spila bara blues. Þann sama blues og lang- afi minn söng á ökrunum, þegar húsbóndi hans sveiflaði svipunni yfir höfðinu á honum.“ Mjög fáir hvítir blues-leikarar þræta fyrir þetta. Bæði í Eng- landi og í Ameríku, þar sem hljóðfæraleikarar eins og Eric Clapton, John Mayall og Mike Bloomfield leika blues, keppast hvítir hljóðfæraleikarar við að fá blökkumenn með sér í hljóm- sveitir og reyna svo að lifa að hætti þeirra (blökku).. Bloom- field, sem var alinn upp í gyð- Muddy Waters: „Spila sania blues og afi .. . .“ ingahverfi Chicago, var vanur að fara yfir í hinn hluta borgarinn- ar, þar semi hann hlustaði á blakka söngvara og músikanta túlka blues-inn. Þá var hann að- eins unglingur. „Maður verður að týna miklu af þessu hvíta í manni,“ segir hann, „ef maður á að geta spilað blues. Blessaður, maður, ég hef spilað sums stað- ar í Chicago þar sem hvítt and- lit hafði ekki sézt í mörg ár“. Þó eru þeir til, sem telja að nokkrir hvítingjar geti „haft“ blues. B. B. King, sem oft hefur verið nefndur „Konungur Blues- ins“ segir til dæmis: „Janis Jop- lin syngur blues engu síður en hvaða blökkumaður sem er.“ Janis Joplin er ákaflega sér- stæð stúlka, aðeins 26 ára gömul. Á hljómleikum syngur hún þannig, að andlit hennar engist Framhald á bls. 40 Blood, Sweat & Tears, ein vinsælasta blues-hljómsveitin vestanhafs um þessar mundir. 29. tbi. VIKAN 45

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.