Vikan


Vikan - 30.04.1970, Blaðsíða 34

Vikan - 30.04.1970, Blaðsíða 34
Niu rauðar rósir... væru tilvalin gjöf handa sérhverri húsmóður. En rósir standa ekki lengi, því miður. Á hinr* bóginn eru skýrir litir og hvítari áferð OXAN þvottarins óendanlegur ánægjuauki fyrir allar hús- mæður. OXAN lágfreyðandi þvottaefni er gert fyrir konuna, sem hefur ánægju af rauðum rósum og fallegum þvotti. HF. HREINN STJti RNUSPÁ*^ Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Næstu dagar verða með nokkru öðru mótl en þú hafðir gert ráð fyrir. Innan skamms kemur til þin tortryggileg persóna, sem þú skalt þó ekki visa frá þér í bili. Þú skalt ekki skemmta þér opinberlega. m Nautsmerkið (21. aprd — 21. mal); Vikan verður einkar hagstæð þeim sem fæddir eru milli 2. og 14. maí. Þú færð auðvelt tækifæri til að afla þér fjár. Einn vina þinna biður þig um ráð- leggingar, sem þú átt auðvelt með að veita honum. *f Tvtburamerkið (22. maí — 21. júnQ: Kunningjar þinir hafa orðið fyrir miklu happi, sem hefur einhver áhrif á þig. Þú verður að umgangast eldri kynslóðina meira en þú hefur löngun til, en sýndu ekki óþolinmæði, það gæti valdið leiðindum. Krabbamerkið (22. jún( — 23. júlQ: Dagarnir verða að ýmsu leyti eins og þú hafðir áformað. Þó skeður nokkuð, sem kemur þér mjög á óvart. Þú eyðlr einhverju af frítima þínum við útiskemmtanir. Gömul kona biður þig um hjálp. f Ljónsmerkið (24. iúl( — 23. ágúst): Þér sinnast við einn kunningja þinn og veldur það því, að þú missir af einhverju, sem ráðgert hafði verið. Einhver kemur og truflar þig við verkefni þín. Eitthvað sem þú hefur aðhafzt kemur þér i koll. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Þér býðst tækifæri, sem þú átt mjög hægt með að hagnýta þér. Þú eignast tvo nýja félaga, sem eiga eftir að stytta þér margar stundir. Þú skalt fara að ráðum þeirra sem eldri eru. Dveldu lengstaf helma. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Það er hætt við einhverri misklíð innan fjölskyld- unnar, svo þú skalt varast að hafa þig mikið i frammi á þeim vettvangi. Þú mátt eiga von á ein- hverjum truflunum og töfum á framvindu mála. ¥ Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þessi vika verður ekki nærri þvl eins daufleg eins og þú áttir von á. Likur benda til, að þú farir í ferðalag, sem getur tekið nokkra daga. Ungur með- limur fjölskyldunnar veitir þér góðan félagsskap. ** Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þú hefur nóg fyrir stafni í þessari viku. Reyndu að finna þér einhverja tilbreytingu i gráum hvers- dagsleikanum og gefðu þér tima til lestrar. Þú ættir að kynna þér betur ýmiss konar félagsstörf. £ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Vikan verður viðburðarík en þó þarftu ekki að haf- ast mikið að. Þú veitir einhverjum félaga þinum að- stoð, sem tekur dagstund eða svo. Þú færð verk- efni í hendurnar um helgina, sem er þér að skapl. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þú færð hrós fyrir störf þín hjá yfirboðurum þin- inn. Þú kemst snilldarlega framhjá gildru, sem lögð var fyrir þig. Þú verður fyrir nokkrum freistingum um helgina en skalt þó ekki láta undan þeim. *k> Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Kunningjar þínir koma þér nokkuð á óvart með ráðagerðum sínum, sem eru mjög óvenjulegar. Þú færð ómetanlega hjálp ákveðinnar persónu, sem hefur yfirráð yfir einhverju í starfi þínu. 34 VIKAN 18-tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.