Vikan - 30.04.1970, Blaðsíða 12
Væri ekki sniðugt ef...
AUDREY HEPBURN
. . . . konan með stóru dádýrsaugun
hætti að klæðast hefðbundnum fatn-
aði með beinum línum og hallaði
sér frekar að léttum flíkum úr or-
ganza og silki. Audæy Hep-
burner e'ns 09 ^'^a've^upp a'’n
og fíngerð. Og þótt hún kaupi föt
sín í fínum tízkuhúsum og smábúð-
um, þá eru þau venjulega frekar
einföld í sniði og hún hefir mikið
dálæti á einlitum, oft svörtum föt-
um. En nú er hún frú Dotti og hefir
kannski meiri tíma til að njóta heim-
ilisins, þá gæti hún verið svolítið
frjálsari í fatakaupum sínum. Don-
ald Brooks hefir dottið í hug að
ekki væri úr vegi fyrir hana að at-
huga kjólinn, sem hér er sýndur,
úr indíanamynstruðu efni. Blússan
er létt, með víðum ermum, pilsið
sítt og efnismikið.
. . . . þessi frjálslynda kona, sem er
dæmigerð fyrir ungu kynslóðina,
vildi nú breyta til og klæðast sem
hefðarfrú? christina Ford,
flögrar um heiminn, frjálslega klædd
í pínu-pínu-pilsi og laust hekluðum
stuttkjólum. Hún er þekkt fyrir að
fara ekki í felur með fótleggi sína og
lætur hárið flaksa laust um axlirnar,
eins og Venus Botticellis. Við sjáum
hana hér í einfaldri blárri blússu,
með löngum ermum og síðu pilsi,
sem er eiginlega austurlenskur dúk-
ur, vafinn um mittið og alveg opið
frá faldi upp að mitti. Anna Klein
á hugmyndina.
CHRISTINA FORD
12 vikan 18 tbl