Vikan - 23.09.1971, Side 4
Bók fyrir
allt íbrottafúlk
Fæst hjá næsta bóksala
HILMIR HF. SKIPHOLTI 33
PÖSTHÖLF 533 SÍMI 35320 REYKJAVÍK
PÓSTURINN
Dai Bradley
Kæri Póstur!
Ég hef aldrei leitað til þín áður
og því vona ég að þú svarir
þessu bréfi mínu.
Hvað getur þú sagt mér um Dai
Bradley? Er hann söngvari eða
spilar hann í hljómsveit og
hvaða hljómsveit þá?
Með fyrirfram þakklæti fyrir
birtinguna. R.A.
——A.
Um Dai Bradley get ég akkúrat
ekkert sagt þér, þar sem ég hef
aldrei heyrt á þessa mann-
skepnu minnzt fyrr. En vera
má að einhver lesenda viti það
og þá munum við aS sjálfsögSu
birta þær upplýsingar.
Gaddavír 75
Kæri Pósturl
Mig langar til að spyrja þig um
hljómsveitina Gaddavír 75. Hvað
heita þeir? Gætir þú ekki birt
mynd af þeim?
LJS.
þættinum „Heyra má . . ."
birtist grein um Gaddavír 75
þann 27. maí sl. (21. tbl.) og
vísum við hér meS til þeirrar
greinar.
Húsmæðraskóli
Kæri Pósturl
Viltu vera svo góður að svara
þessu bréfi. Ég er að hugsa um
að fara á húsmæðraskóla, en ég
veit ekki hvert ég á að snúa
mér. Hvert er aldurtakmarkið?
Hvar á landinu eru skólarnir og
hvað er maður lengi í þeim?
Hvað kostar það og hvað þarf
maður að panta pláss með löng-
um fyrirvara?
Tilvonandi húsmóðir.
I
ViS birtum grein um HúsmæSra-
skóla Reykjavíkur sl. vor, nánar
tiltekiS í 16. tbl., þann 22. apríl
og gætir þú reynt aS hringja
þangaS. Síminn er 11578 og
eins hefur Þjóðkirkjan rekið hús-
mæðraskóla aS Löngumýri í
Skagafirði og veitir skrifstofa
biskups, sími 11550, allar upp-
lýsingar um það.
„Önefnd"
Elsku Póstur!
Mig langar að biðja þig um
upplýsingar um hljómsveitina
„ÓNEFND" úr Hrunamanna-
hreppi:
1. Er hún hætt að starfa?
2. Hvað heita meðlimirnir?
3. Hvað eru þeir gamlir?
4. Hvar eiga þeir heima?
5. Heitir ekki einri þeirra Bjarni
(Baddi) og á heima í Hafnar-
firði?
Ég vona að þú getir sefjað for-
vitni mína sem fyrst, elskan, því
ég var að þræta um þetta við
vinkonu mína.'Svo vil ég þakka
VIKUNNI fyrir alla þá skemmt-
un og fróðleik sem ég hef teyg-
að úr henni og óska ykkur vel-
farnaðar. Skotta.
Því miSur höfum viS aldrei heyrt
þessa hljómsveit nefnda, en
þætti vænt um að einhver les-
andi sendi okkur línu um þá og
gjarnan mynd . . . þá sakaði
alls ekki að þeir gerðo það
sjálfir, blessaðir drengirnir.
Eitt og annað
Kæri Póstur!
1. Hvort er algengara og/eða
hættulegra, krabbamein eða
æðakölkun?
2. Breytið þið orðalagi bréfanna
sem þið fáið? Ég skrifaði nefni-
lega einu sinni og þá var búið
að breyta orðalagi einnar setn-
ingar það mikið að hún fékk allt
aðra meiningu.
3. Hvort segir maður „að æja"
eða „að á" í merkingunni að
stanza og hvíla sig?
Og svo er hér að lokum áskor-
un til allra bréfritara Póstsins-.
í guðanna bænum hættið með
ruslakörfubrandarann. Hann er
löngu orðinn úreltur og er áreið-
anlega að gera alla lesendur
Póstsins gráhærða. 90-60-90.
4 VIKAN 38.TBL.