Vikan - 23.09.1971, Blaðsíða 43
hlaupum, fyrst á 3:49,8 mín. og
síðan 3:50,2. Og 21. júlí kom
fyrsta metið, hann hljóp áður-
nefnda vegalengd á 3:48,6 mín.
og bætti met Arne Andersson
um 2/10 úr sekúndu. Tíma-
spursmál var nú hvenær heims-
met yrði sett á vegalengdinni,
og það kom á sænska meistara-
mótinu. Hágg sigraði á 3:47,6
mín., og bætti met LoVelock
frá Olympíuleikunum í Berlín
um 2/10 úr sek. Fögnuðurinn
var mikill, heimsmetið í 1500
m. hlaupi var nú sænskt!
Gunder Hágg tók þátt í 23
hlaupum þetta ár og sigraði í
öllum, en síðan kom reiðarslag-
ið. Þann 1. september tilkynnti
Sænska íþróttasambandið, að
íþróttamaðurinn Gunder Hágg
væri dæmdur frá keppni um
óákveðinn tíma.
Tveir stjórnarmenn sænska
Knattspyrnusambandsins höfðu
tilkynnt um brot á áhugamanna
reglunum eftir keppni í Eskil-
tuna, þar sem Hágg hafði tekið
við 268 sænskum kr. meira,
en áhugamannareglurnar
leyfðu. Hann skilaði peningun-
um, en var dæmdur í 10 mán-
aða keppnisbann af sænska
Iþróttasambandinu. Það fór
ekki leynt, að Hágg tók sér
þetta mjög nærri. Hann ákvað
að ná sér niðri á þessum mönn-
um á einhvern hátt, hann æfði
meira en nokkru sinni fyrr í
Valadalen og árangurinn hlaut
að koma.
Þegar keppnisbanninu lauk
1. júlí 1942 tók Hágg þátt í
móti í Gautaborg og keppnis-
greinin var 1 ensk míla. Hann
sigraði á 4:06,2 mín. og bætti
þar með heimsmet Englend-
ingsins Woodersons um 2/10
úr sekúndu. Þetta var aðeins
upphafið að glæsilegri ferli, en
nokkur annar sænskur íþrótta-
maður hafði unnið.
Fólk, sem aldrei hafði séð
Olympíuleikvanginn nema að
utan, beið þolinmótt í biðröð-
um eftir aðgöngumiðum, til að
siá heimsmet sett. Gunder
Hágg sveik ekki áhorfendur.
Hann setti heimsmet á færi-
bandi, fólk talaði varla um ann-
að en Gunder Hágg, jafnvel
stríðsfréttir féllu í skuggann í
dagblöðum. Á þessu heimsmets-
ári Gunders Hagg voru alls sett
10 met, og hann virtist geta
mun meira. Af metunum verð-
ur að telja afrek hans í 3000
metra hlaupinu bezt — 8:01,2
mín. f þá daga var tími undir
8 mínútum talinn óhugsandi, þó
að slíkt sé næsta algengt í dag.
Hiaup þetta fór fram á Olym-
píuleikvanginum í Stokkhólmi
29. ágúst 1942. Aðgöngumiðarn-
ir runnu út eins og heitar
lummur. Aukamiðar voru seld-
ir á okurverði, þegar uppselt
var. Það leit út fyrir, að allir
íbúar Stokkhólms legðu leið
sína til leikvangsins þetta fall-
lega sumarkvöld. Fóik í þús-
undatali beið miðalaust utan
leikvangsins og lögreglan átti
í erfiðleikum með að halda
fólkinu í skefjum. Alls sáu
19911 áhorfendur þetta stór-
kostlega hlaup, lögreglan sagði
stopp, þegar þessi miðafjöldi
hafði verið seldur. Ailir biðu
eftir þessu eina hlaupi og þeg-
ar skotið reið af hófust hrópin
og héldu áfram allt til loka.
Fljótlega skildi Hágg við keppi-
nauta sína. Þeir voru nánast
eins og statistar í þessari
keppni. Millitímarnir voru ó-
trúlegir í hlaupinu. Henry Jons-
son átti metið og margir voru
í vafa um, að Hágg gæti bætt
það, enda bezta afrek Jonssons.
Hann hljóp fyrstu 800 metrana
á 2:06,4 mín., fyrri 1500 metr-
ana á 4:01,4 og 2000 metrana
á 5:21,8 mín. Sami tími og
heimsmet Höckerts sett 1936.
Hágg flaug áfram eftir hlaupa-
braufinni. Stíll hans var frá-
bær og hlaupalagið létt og leik-
andi. Bilið lengdist stöðugt milli
hans og keppinautanna, hrað-
inn hélzt óbreyttur, eða jókst
frekar en hitt. Síðari hringur
hófst og hrópin náðu hámarki.
Þetta hlaut að verða frábært
heimsmet!
Gunder Hágg sleit marksnúr-
una og tíminn 8 mínútur og 1,2
sekúndur þótti næsta ótrúlegur
í þá daga, þó eru margir á því
að tíminn hefði getað verið
betri en 8 mín., ef hann hefði
ekki hlaupið síðustu 200 metr-
ana á þriðju og fjórðu braut.
Margir voru vantrúaðir á að
tími þessi væri raunverulega
réttur og Hágg sjálfur bjóst
ekki við slíku afreki. Hann
hlióp fyrri 1500 metrana á
4:01,4 mín., og þá síðari á 3:59,8
mín.!
Þrátt fyrir heimsmetaregnið
1942 má segja, að Gunder Hágg
hafði unnið sér mesta frægð
árið eftir — 1943. Það ár setti
han'n ekki heimsmet. Stríðið
stóð sem hæst og samkomulag-
ið milli Svía og Bandaríkja-
manna var ekki sem bezt. Það
þótti því ráðlegt að reyna að
bæta sambúðina milli þjóðanna.
Það var því ákveðið að senda
Gunder Hágg til Bandaríkjanna
sem einskonar fljúgandi am-
bassador. Iþróttaforystan hafði
lítið að segja um þessa ein-
stöku keppnisför, henni var
fyrir öryggi þínu
og þeirra sem
eiga þig að
Með aukinni umferð og hraðari akstri, skiptir öryggis-
búnaður bifreiðarinnar mestu máli, þegar valin er ný
fjölskyldubifreið.
ÚTSYNIÐ
Slæmt útsýni býður hættunni heim. Volvo hefur inn-
byggða hitaþræði í bakrúðunni til varnar ísingu og
móðu. Volvo 145 hefur þar að auki rúðusprautu og
„vinnukonu“ við bakrúðuna.
HEMLAR
Tvöfalt hemlakerfi. Fari annað kerfið úr lagi, er samt
sem áður 80% hemlastyrksins virkur á þrem hjólum.
Gífurlegt öryggi í neyðartilvikum.
Þetta eru aðeins fáein dæmi um fjölbreyttan öryggis-
búnað Volvo bifreiðanna.
Sölumenn Veltis h/f gefa yður með ánægju allar nán-
ari upplýsingar.
ÞAÐ ER KOMIÐ 1 TlZKU AÐ FÁ
MIKIÐ FYRIR PENINGANA
VELTIR HF
Suöurlandsbraut 16 • Reykjavik • Simnefni: Volver • Simi 35200
38. TBL. VIKAN 43
argus