Vikan


Vikan - 23.09.1971, Page 46

Vikan - 23.09.1971, Page 46
Paximat 1700 kr. 9.600 Paximat 1800 kr. 12.200 Paximat Pico 50 Paximat Pico 150 kr. 4.100 kr. 5.750 gPQRTVAL | REYKJAVlK PALLADOMAR FramhálcL af bls. 17. Styrkur Ólafs Jóhannes- sonar felst hins vegar í jafnvægi og einstökum heiðarleik. Hann berst ekki á, en reynist þolinn og seigur og gefst aldrei upp. Hann mun því njóta sín drjúgum belur sem em- bættismaður og valdsherra en málsvari óstýrilátrar og heimtufrekrar stjórnarand- stöðu. Ólafur Jóhannesson verður aldrei listrænn trúður, sem kemur kjós- endum á óvart með furðu- legum sjónhverfingum, en hann er vinnusamur, hrein- skiptinn og réttsýnn. Erf- iðast mun honum veitast að skera úr um málefni og skakka leikinn, ef í odda skerst á stjórnarheimilinu, en ef til vill kemur ekki til þess, að slíks þurfi. Mestan sigur vann Ólafur, þegar honum tókst að hemja fjandvinina Ilanni- hal Valdimarsson og Magnús Kjartansson til setu Idið við lilið í stjórn- arráðinu og dubbaði Ein- ar Ágústsson til utanríkis- ráðherra. Það vekur grun um, að Ólafur Jóhannes- son sé klókur, þrátt fyrir gætnina og hæglætið. Vigreifar stríðshetjur kunna oft ekki að miðla málum og koma á sætt- um. Til þess þarf jafn- lynda og varfærna samn- ingamenn, sem losna við öfund og óvild, en þykja mannkostum búnir. Ólaf- ur Jóhannesson er slíkrar gerðar. Kann því svo að fara, að hann valdi hetur en margur huglði í önd- verðu verkefni forsætis- ráðherra, sem hlýtur að bera klæði á vopn. Ríkis- stjórn hans getur orðið ó- taldra lifdaga auðið, ef hún hlutast ekki sjálf til um fall sitt. Stjórnarand- staðan hrindir henni naum- ast úr sessi eins og sakir standa. Örlagahjól stjórnmála- manna snýst einkennilega. ólafur Jóhannesson er ífulltrúi hins spariklædda liluta Framsóknarflokks- ins og sönnun þess, að póli- tisk atvinnumennska geti þekkzt og mælzt sæmilega fyrir í röðum hans. Til- gangurinn með því að velja Ólaf flokksforingja á sínum tíma var efalaust að setja upp nýtt andlit. Maddama Framsókn átti að brosa til liægri og reyna að vinna ástir Sjálfstæðis- flokksins, enda mörgum brjóstmylkingi hennar brátt að sleppa úr kulda stjórnarandstöðunnar og komast1 stjórnarráðsylinn. Ólafi Jóhannessyni mis- hejDpnaðist það ætlunar- verk. Hins vegar auðnað- ist honum að láta óska- draum flokks síns um valdaaðstöðu rætast með því að efna til vinstri stjórnar eftir að Alþýðu- flokkurinn og Sjálfstæðis- flolckurinn höfðu misst stýrið á þjóðarskútunni úr höndum sér og henni sleg- ið flatri í bezta leiði. Nú ^ reynir svo á, hvort Ölaf- ur kann að sigla lcrappan sjó eins og Fljótamenn fyrrum. Lúpus. — Ef við fáum ekki fleiri yfir- vinnukvöld, þá klára ég aldrei þessa peysu! — Og munið eftir því, Selby, ef þér hafið eitthvað að kvarta, þá er það ég sem hefi vald til að reka yður! 46 VIKAN 38.TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.