Vikan - 23.09.1971, Síða 50
Stuttu síðar fannst mér ég vera
búin að eignast litla telpu, und-
urfríða og granna — hún var
varla stærri en 7 merkur. Húð
hennar var hvít og slétt en ekki
rauð og þrútin eins og venja er
með lítil börn. Fann ég þá ein-
hvern undarlegan fiðring fara
um mig og þegar mér var lit-
ið út um glugga sá ég hvar
húsið sem ég á heima í stendur
fyrir neðan skólann sem ég var
í í fyrra, en það er í allt öðru
hverfi en ég bý núna.
Með fyrirfram þökk fyrir ráðn-
inguna. Dreaming Baby Girl.
Fyrrihluti þessa draums er þér
mjög hagstæður og boðar þér
meðai annars langvinnt hjóna-
band, velgengni í starfi og
heillaríka framtíð. En barnið
setur strik í reikninginn, þó ekki
stóran frekar en barnið sjálft,
þannig að þú mátt búast við
smávægilegum erfiðleikum síð-
ar á lífsleiðinni.
Framliðin amma
Sæl, VIKA mín!
Mig dreymdi að ég ætti heima
í Reykjavík og væri í heimsókn
hjá ömmu minni sálugu f Borg-
arnesi. Ég fór þar inn og þegar
ég kom í ganginn, sá ég að á
gólfinu lá hrúga af smápening-
um. Ég tók þá upp og fór með
þá inn til ömmu. Síðan leiddi
ég hana að glugganum og sagði
við hana: „Sjáðu út. Hvernig
ætli standi á því að það er
svona mikill snjór úti?"
Hún varð alveg undrandi en
yppti bara öxlum. Svo settumst
við inn í herbergið hennar og
þá tók ég eftir þvf að hrúga af
barnafötum lá á gólfinu. Ég
varð hissa og hugsaði með mér
að hún væri bara strax farin að
kaupa jólagjafir handa afkom-
endum sínum.
í því að ég var að hugsa þetta
kom frænka mín — og dóttir
ömmu — inn og spurði mig með
þjósti hvað ég væri að vilja. Ég
sagðist einungis hafa verið að
sýna ömmu snjóinn úti og þeg-
ar ég hafði fullvissað hana um
að ég hefði komið í þeim erinda-
gjörðum einum, blíðkaðist hún.
Síðan fór ég út og var að hugsa,
hve skrítið það hefði verið að
amma hefði ekki sagt orð allan
tímann sem ég var .hjá henni.
Svona var nú draumurinn. Ég
þakka fyrirfram fyrir ráðning-
una, bless.
Draumadís í Keflavík.
/ nœstu
Islenzkur fatnaður
• Kaupstefnan íslenzkur fatnaður er atburður, sem hverju
sinni vekur almannaathygli, enda er fátt sem skiptir fólk
meira máli en hverju það klæðist. Hér kemur ótalmargt
fleira til greina en það eitt að fötin séu til skjóls; fötin
skapa manninn, eins og orðskviðurinn hermir. í næstu VIKU
birtast myndir frá nýafstaðinni kaupstefnu.
Voldugasti maður Bandaríkjanna
• Hver er það? Nixon forseti eða aðalleiðtogi Cosa
Nostra? Nei, hvorugur, að því er hermir í grein, sem við
birtum i næsta blaði. Samkvæmt því sem þar stendur er
sá stærsti vestra Edgar Hoover, æðsti yfirmaður FBI, banda-
rísku alrikislögreglunnar. Hann hefur gegnt þeirri stöðu í
nærri hálfa öld og er nú meira en hálfáttræður að aldri.
Hefurðu lifað áður?
• Það skyldi þó aldrei vera. í Austurlöndum fjær hefur
það lengi verið staðföst trú manna að þeir fæddust aftur
og aftur, endurholdguðust. Á Vesturlöndum vex þessari
trú nú fylgi, og í næsta blaði birtum við aðra greinina í
greinaflokki um þetta efni.
Þessi draumur er þér vafalaust
fyrir því að innan skamms þarft
þú að taka þýðingarmikla
ákvörðun, ákvörðun sem aðeins
verður tekin einu sinni, og
amma þín viidi segja þér að þá
ákvörðun verður þú að taka ein.
Enginn getur gefið þér viðun-
andi ráð nema þú og sá máttur
sem í þér býr.
Rauður steinn
og blár
Kæri Draumráðandi!
Ég og tengdamóðir mín vorum
í hreingerningum fyrir móður
mína og vorum við að gera
hreina skápa í svefnherberginu,
en í raun og veru eru engir
skápar þar. í þessum skáp
fannst mér vera fullt af gömlum
fötum af mér og systur minni,
og hentum við þeim öllum.
Ég var með ferðatösku sem ég
var að fara í gegnum og var
eins með hana: hún var full af
fötum sem við hentum. Neðst
í töskunni voru þó tveir litlir
jólapakkar. Ég las á þá, og voru
þeir frá foreldrum mínum til
mín og systur minnar. A þeim
stóð: „Jólin 1950". Ég sýndi
tengdamóður minni þetta, og
sagði hún mér að opna minn
pakka.' í honum var lítil, hvít
askja, og þegar ég opna hana,
er þar gullhringur með bláum
steini. Ég á hring með bláum
steini, svo ég hugsaði með mér
að ég ætti að athuga hinn pakk-
ann. Ég geri það, og í honum er
þá alveg eins hringur, nema
hvað að steinninn er rauður. Ég
skipti á hringjunum þannig að
ég fékk þann rauða en systir
mín þann bláa.
Mér fannst sem henni myndi
vera sama þótt ég gerði þetta,
en ég ætlaði hvorki að segja
henni né mömmu frá skiptun-
um.
Með beztu kveðjum. B.F.
Þetta er mjög erfiSur draumur
viðureignar, en eftir því sem við
komumst næst, þá boSar hann
þér einhverjar útistöður viS
systur þína. Ekki er alveg Ijóst
hvers vegna, en við teljum víst
aS þú komir til meS aS eiga
upptökin aS þeirri deilu. Þá er-
um við vissir um að lausnin sé
á vissan hátt tölfræSileg, og
þrátt fyrir takmarkaSa þekkingu
á talnaspeki, lítur út fyrir aS
deilan verSi fjárhagslegs eSlis.
50 VIKAN 38. TBL.