Vikan - 14.10.1971, Qupperneq 16
Þér hafið sagt að þér hefðuð ekki kært
yður um að verða forsætisráðherra. Get-
ið þér nú sagt hvað fékk yður til að taka
því boði? ^
— Það er rétt, ég sóttist ekki eftir þessu
ábyrgðarmikla starfi og að ég tilkynnti
flokksstjórninni að ég óskaði ekki eftir
því, ári fyrir kosningar. En ég er á sömu
skoðun og flokksfélagar mínir, að per-
sónulegir hagsmunir verði að víkja,. þeg-
ar um trúnaðarstörf er að ræða. Þegn-
skapur er ein af máttarstoðum flokks
okkar.
Að vísu er þetta erfitt starf, sem krefst
mikilla persónulegra fórna, bæði hvað
snertir tíma, fjölskyldulíf og krafta. En
það er óþarfi að mikla það fyrir sér. Það
eru þúsundir karla og kvenna sem vinna
að opinberum skyldustörfum og verða að
sinna félagsstörfum eftir langan vinnu-
dag. Það var fyrir einróma áskorun
flokksstjórnarinnar að ég samþykkti fram-
boðið. En það var ekki fyrr en mánuði
fyrir flokksþingið.
Sumir álíta að fólk sem er í þeirri að-
stöðu, sem ég var, sé haldið alls konar
hugsanaflækjum og tilfinningasemi. En
þannig er það ekki. Þetta er spurning um
ákaflega einfalda hluti. Á kosningadaginn
var ég upptekinn, við vorum þá að hylla
Tage Erlander og allt annað var sett til
hliðar. Að sjálfsögðu var ég ánægður yf-
ir því að mér var sýnt þetta trúnaðar-
traust, en mér var líka ljóst að það er
mikil ábyrgð. Ég fann auðvitað til þess
að ég yrði ekki fær um að uppfylla allra
óskir og vonir, en það var mjög örvandi
að sjá möguleika til þess að framkvæma
flokksáætlun okkar.
Finnst yður nú þetta starf vera eins og
þér höfðuð hugsað yður?
— Mér var þetta nokkurn veginn ljóst,
þegar ég samþykkti áskorunina. En þetta
er allt annars eðlis en starf verkamála-
ráðherra, sem var greinilega afmarkað
svið, þar sem taka varð tillit til sammiðl-
unar og menntunar og þar sem hægt var
að fylgja ákveðinni stefnu. í núverandi
starfi mínu verður að taka afstöðu til.
ólíkra vandamála innan ramma heildar-
innar. Það er ekki hægt að læra, nema
með því að standa andspænis viðfangs-
efnunum. Ég finn að ég er alltaf að læra
eitthvað nýtt, finna betur hvernig bezt
verður komið til móts við þann trúnað
sem mér er sýndur. Að vísu eru kröf-
urnar miklar og vonbrigðin oft mikil;
eins og það að Nordek varð ekki að raun-
16 VIKAN 41. TBL.
Stjórnmála-
maðurinn
Varð starfið sem for-
sætisráðlierra eins og þér
höfðuð liugsað yður?
Er það yður að kenna
að flokkur yðar er ekki
eins vinsæll og áður?
Þykir yður leiðinlegt
þegar sagt er að Tage
Erlander liafi verið
miklu skemmtilegri og
notalegri maður?
Hvað kom yður til að
taka tilhoðinu um að
verða eftirmaður hans?
Hvaða ákvarðanir
finnst yður erfiðast
að taka?
Hvernig verkar á yður
ef þér Iiafið persónulega
skoðun á einliverju máli,
en getið ekki horið liana
fram opinberlega?
Faðirinn
Ganga börn vðar í fötum
hvert af öðru?
Hve mikið fá börnin yðar i
vasapeninga?
Finnið þér og fjölskvlda yðar
mikið fyrir því álagi sem
tímahrakið orsakar?
Hvaða mat borðið þér og
fjölskyldan daglega?
Illustið þér á popmúsík?