Vikan - 12.10.1972, Blaðsíða 28
TRAMPAÐ
TRÚBRAUT!
Það hefur gengið erfiðlega hjá
þeim Trúbrotsmönnum, að halda
hljómsveitinni óbreyttri um
tima, enda ef tii vni eugin a>tæða
til þess. Enn einu sinni hættir
Gunnar Jökull Hv aðliggur að baki
þessari ákvörðun hans nú? —
Samstarfið innan hljóm-
sveitarinnar hefur verið heldur
brösótt. Það kom upp sama mál
og fyrst þegar ég hætti. Menn
voru orðnir leiðir. — Nú er það
hins vegar svo, að þegar einn
hættir en heil hljómsveit leysist
ekki upp, hlýturóánægjan að vera
hjá þessum eina sern hættir eða
þá i garð hans. Það kom einnig á
daginn, að það var áhugaleysi
Gunnars .Jökuls sem varð þess
valdandi, að hann ákvað að hætta
að spila með Trúbroti. — Við
komum aldrei til með að spila
saman aftur, i það minnsta hef ég
mjög takmarkaðan áhuga á þvi.
Þetta er ekki lif, sem ég get unað
mér við. En að spila t.d. eitt kvöld
i viku, það er allt annað. Ég hef
nú ákveðið að þiggja boð um að
koma i hljómsveitina Mána frá
Selfossi.
Mánar hafa yfirleitt ekki spilað
oftar er, einu sinni i viku og það
hentar mér prýðilega.- Ragnar
fyrrverandi trommuleikari Mána
hafði ákveðið að hætta nokkru
áður en Gunnar Jökull ákvað að
hætta i Trúbroti, svo brottför
hans þaðan á ekkert skilt við
skipbrot Trúbrots. Ragnar hefur
nú byrjað að spila með hljóm-
sveit, sem hlotið hefur heitið
BRIMKLÓ 1 henni eru auk
Ragnars, þeir Arnar Sigur-
björnsson, Sigurjón Sighvatsson,
Björgvin Halldórsson og Hannes
Jón. En þetta var innskot.
Nú þegar Trúbrot virðist standa á
timamótum er ekki úr vegi að
fræðast aðeins um það, sem liðið
er og ef til vill bráðum gleymt.
Hvernig var með Mandölu? —
Mandala er það siðasta sem við
gerðum, sem eitthvað var varið i,
þó svo að platan hafi mistekizt að
miklu leyti. Löngu áður en við
fórum út til þess að taka plötuna
upp vorum við búnir að ræða
mikið saman um hvað við gætum
gert, til þess að hljómsveitin næði
betur saman. Við reyndum að
láta okkur detta eitthvað i hug,
reyndum að finna út hvaða lausn
væri heppiiegust. Við ákváðum
það i sameiningu, að við skyldum
fá einhvern, sem gæti sungið
eitthvað til þess að hjálpa okkur á
Mandölu. Og við fengum
Engilbert Jensen. Siðar kom á
daginn, að söngurinn klikkaði
alveg á plötunni, en það var ekki
Engilbert að kenna. Það var bara
eitthvað klikk, sem ég veit ekki
hvað var—-. Svo mörg voru þau
orð Gunnars Jökuls.
Það er greinilegt að Mandala er
talin hafa misheppnast. Hins