Vikan - 22.02.1973, Blaðsíða 6
HJUSKAPUR UM HEIM ALLAN
1.
ÁST
ZUNIUOG WANIS
Zunia gekk hröðum skrefum
eftir krókóttum stíg í frum-
skóginum, burt frá þorpinu. Á
þessu augnabliki þráði hún það
eitt að vera ein um stund. Á
þessari stundu var faðir henn-
ar líklega að kaupslá um hana
og eflaust var verið að leita að
henni um allt þorpið og þegar
Kunya, faðir hennar, fyndi
hana, myndi hann segja:
— Zunia, dóttir mín, þú ert
nú fullvaxin stúlka og hefur
átt marga elskhuga. Nú er
kominn tími til að þú giftir
þig. Bobo, hinn mikli höfðingi
í nábúaþorpinu hefur heimsótt
mig og þessi voldugi maður
óskar eftir þér fyrir eiginkonu.
Ertu ekki glöð, dóttir mín?
— Nei, myndi hún svara. —
Nei! Bobo er gamall maður og
hann á tíu eða tólf konur fyr-
ir. Ég vil ekki giftast honum
En mótmælin yrðu ábyggi-
lega tilgangslaus. Faðir henn-
ar myndi með ánægju taka til-
boði Bobos. Það var eingöngu
Bobo, gamli og ríki höfSinginn,
sem keypti Zuniu.
I þessum greinaflokki verður sagt nokkuð frá
hjúskaparvenjum víða um heim,
sagt frá ástum og hjónabandi fimm ungra
stúlkna.
Fyrsta greinin fjallar um Zuniu, unga stúlku
í Liberiu í Afríku vestanverðri . ..
Zunia var sautján óra og hún hafSi aldrei verið eins óhamingjusöm
og hún var nú.
formsatriði að spyrja hana,
mótmæli yrðu aldrei tekin til
greina. Faðir hennar hafði þá
þegar ákveðið að Zunia yrði
kona Bobos og hún varð að
hlýða
Þetta var venja í Mano-ætt-
flokknum og þannig hafði það
alltaf verið. Ó, ef Wani væri
nú hjá henni, hugsaði Zunia í
sorg sinni. Wani, sem hún elsk-
aði svo innilega! En með sjálfri
sér vissi hún að það hefði ekki
breytt neinu. Koya, faðir henn-
ar, var búinn að ákveða fram-
tíð dótturinnar og það yrði alls
ekki rætt frekar. Það var að
vísu eðlilegt að faðir hennar
kysi heldur ríkan höfðingja
fyrir tengdason heldur en fá-
tækan klæðskera. Hann gat þá
alltaf snúið sér til tengdason-
arins, ef hann kæmist í fjár-
þröng. Svo greiddi líka slíkur
maður betur fyrir brúði sína.
Zunia settist á stein til að
hvíla sig og hún hugsaði til
þess þegar hún kvaddi sinn
elskulega Wani. Hann var
Musu, fyrsta kona Bobos, sem var
gömul og stjórnaði hinum konun-
um með harðri hendi.
6 VIKAN 8. TBL.