Vikan - 03.05.1973, Síða 9
Þegar hann tók völdin í sín-
ar hendur fyrsta september
1969, höfðu Bandaríkjamenn
og Bretar herstöðvar í landinu,
sem þeir höfðu fengið með
samningum við konung þann
er Gaddafi steypti úr hásæti,
Idris að nafni, afgamlan og
miðaldalegan bedúínahöfðingja.
Helzt þeirra bækistöðva var
svokallaður Wheelus-flugvöllur,
þar sem tíu þúsund manna lið
var staðsett. En ekki hafði
Gaddafi nema skamma hríð
setið að völdum er hann skip-
aði stórveldunum tveimur að
verða á brott úr landinu með
alla sína hermenn og hafur-
task án tafar, og sáu þau sér
þann kost vænstan að hlýða
því boði.
1970 varð hann fyrstur ríkis-
leiðtoga olíuframleiðsluland-
anna til að krefjast hærri prísa
af olíuhringunum, og fleiri
fylgdu skjótt þar á eftir. Þar
á ofan þjóðnýtti hann eignir
British Petroleum í landinu.
Sumarið 1970 rak hann fyrir-
varalaust úr landi tuttugu og
fimm þúsuhd ítali. er þar
höfðu verið búsettir og höfðu
libískan borgararétt. Kaþólsk-
um kirkjum þeirra breytti
hann í moskur. Það þótti mörg-
um harkalegar aðfarir, sem
þær og líka voru, en í því sam-
bandi sakar ekki að hafa i
huga þá meðferð, sem Líbíu-
menn sættu af hálfu ítala á
fyrri hluta aldarinnar, meðan
ítalir voru að brjóta landið
undir sig.
Þegar Númeiri forseti Súd-
ans var í fallhættu 1971 af
völdum stjórnarbyltinr>artil-
raunar af hálfu kommúnista.
sendi Gaddafi orrustuflugvélar
í veg fyrir flugvél nokkra er
var á leiðinni yfir land hans i
ferð sinni frá Lundúnum til
í þessu fátæklega tjaldi
fæddist Gaddafi árið
1942. Og þarna býr faðir
hans enn. Þegar mikinn
vanda ber að höndum fer
Gaddafi þangað til að
ráðgast í kyrrð eyði-
merkurinnar við karl
föður sinn og Alla.
Þegar alþjóðlegar ráð-
stefnur eru haldnar, læt-
ur Gaddafi hafa vopnað-
an vörð um fundar-
herbergið.
18. TBL. VIKAN 9