Vikan - 27.09.1973, Blaðsíða 11
ástæður til — til dæmis erfiðleika
vegna atvinnu eða minnimáttar-
kenndar, og að auki góðar læknis-
fræðilegar forsendur.
Á nokkrum mmútum
Skurðlæknirinn sker fyrsta
skurðinn. Hann byrjar við hárs-
rætur rétt fyrir ofan eyrað, sker
fram og niður fyrir eyrað, hann
fylgir litilli húðfellingu, beygir
kringum eyrnasnepilinn og held-
ur upp til hársrótanna. Næst flett-
ir hann húðinni af vöðvunum með
áhaldi, sem hreyfist fram og til
baka undir húðinni eins og þegar
maður rekur tungubroddinn út i
kinn. Þegar hann er búinn með
hægri hluta andlitsins, er húðin
aðeins föst við varirnar, — hann
getur slétt úr henni, teygt hana og
lagað hana til, svo að hrukkurnar
hverfa. Umframhúðin er við eyr-
að, þar sem hann klippir nærri
þrjá sentimetra frá. Hann tekur
tvo sauma til að festa húðina, at-
hugar vel, hvernig hún liggur, og
saumar hana siðan fasta.
Þegar hægri helmingur andlits-
ins er búinn, tekur hann til við
þann vinstri og fer eins að. Lag-
færingaugnalokannagengur fljótt
fyrir sig. Skurðlæknirinn sker
grunnan skurð i hálfhring, sker
frá og saumar saman. Hann er að
fást við þynnstu húð likamans.
Sótthreinsaðar umbúðir eru
lagðar yfir. Nokkrum sólarhring-
um siðar er hægt að taka fyrstu
saumana. Húðin villoft bólgna og
blána eftir aðgerðina, en hún
jafnar sig fljótt og grær vel sam-
an við vöðvahimnuna. Eftir tvær
til þrjár vikur er hægt að sjá,
hvort aðgerðin hafi heppnazt.
Húðin liggur vel og slétt, og
saumurinn við eyrað er tæpast
sjáanlegur, ekki einu sinni fyrir
þann, sem veit um hann.
Of svipmikið andlit
Sumar hrukkur eru erfiðara að
að lagfæra en aðrar. Þeirra á
meðal eru ennishrukkur. Undir
húðinni liggja tveir samhliða
vöðvar, sem hjálpa oltkur að tjá
vonbrigði, gieði, einbeitingu — I
sterku sólskini hjálpa þeir einnig
til við ljósvarnarútbúnað augans.
Þeir hafa samvinnu við þriðja
vöðvann, sem skerpir hrukkurnar
við nefið, þegar hann er á þeim
buxunum. Þessar hrukkur gera
andlitið stundum of svipmikið:
maður sem e.t.v. er sá vingjarn-
legasti i heimi og alltaf í góðu
skapi, kann að virðast strangur
eða fúll. Hvað geta plastikskurö-
lækningarnar gert fyrir slikt
fólk?
Hægt er að skera við hársrætur
og i augnabrúnir og stytta húðina
á enninu, eða einfaldlega að skera
á þá vöðva, sem hrukka enniö. Þá
verður húðin óhreyfanleg þaöan i
frá, hversu mikið, sem gengur á i
öðrum hlutum andlitsins. Hrukk-
urnar við nefið: skurðlæknirinn
getur skorið i hrukkuna og saum-
að saman.
Svipaðar aðferðir er hægt að
nota til að grynna eöa útrýma
djúpum skorum frá nefi niður i
munnvik og hið óhjákvæmilega
litla ör eftir aðgerðina er hægt að
hylja með sminki. Pokar undir
augum hverfa eftir skurð og húð-
minnkun undir augnalokunum.
Við undirhöku nægir oft að opna
skurð og skrapa ónauðsynlega
fitu, stundum verður skurðlækn-
irinn lika að fjarlægja umfram-
húð. Mjög útstæð eyru skerpa án
efa heyrnina, en eru til lýta.
Þannig er útliti
nefsins breytt
Fáir hlutar andlitsins er útlit-
inu jafn mikilvægir og nefið.
Fleiri eru óánægðir með nef sitt
en þeir, sem hafa raunverulega
ástæðu til þess, og skurðlæknar
þurfa oft að standa i þvi að sann-
færa fólk, sem beðið hefur um
nefbreytingu, að nef þeirra sé
einkar laglegt. En þvi er ekki að
neita, að mörg nef þarfnast lag-
færingar við, of litil nef, of þykk,
of grönn, nef með mikinn kart-
öflusvip, eða of há, til að þau liggi
innan ramma þess, sem hægt er
að kalla eðlilegt úrval. Orsökin
getur verið sjúkdómar i nefi, eða
slys i æsku.
Plastikskurðlæknir hefur
marga möguleika til að breyta út-
liti nefsins. Til að jafna til kónga-
nefið er tekið úr nefhryggnum,
kartöflunef kemst i eðlilegt form
ef skorið er úr brjóskinu. Söðulnef
eru lagfærð með þvi að leggja
brjósk, bein eða plast undir nef-
húöina. öllu erfiðara er að stækka
litið og grannt nef, þar sem vönt-
un er á húð yfir stækkunina, þar
sem flatarmál andlitsins eykst
við aðgerðina.
Sjúklingurinn er staðdeyfður
við nefaðgerðina og engin merki
verða sjáanleg, þvi skurðlæknir-
inn vinnur innan frá, undir húð-
inni. Hann sker eftir brúnum nas-
anna, og ef ætlunin er að lækka
háan nefhrygg „sagar” hann eða
sverfir burtu hæfilega mikið af
beininu. Aftur á móti, ef hann ætl-
ar að hækka nefhrygginn flytur
hann beinbút úr rifbeini eða
mjaðmabeini. Til að mýkja við-
bótina er brjóst oft notað i stað
beins. Margir skurðlæknar nota
sérstakt plastefni i staðinn.
Alvarlegir meðfæddir andlits-
gallar eins og klofin vör og gómur
eru nú lagfærðir strax eftir fæð-
ingu. Aður var „héraskor” ekki
óalgeng, nú sést hún ekki lengur,
og það er plastik-skurðlæknunum
að þakka. Þeir byggja upp nýjan
góm úr öðrum likamshlutum, og
endurbyggja siðan munnslim-
himnuna og aðskilja þannig
munnholið og nefholið, svo barnið
getur borðað eðlilega og talað án
nefhljóðs. Vörin er lagfærð þann-
ig að ekkert sést, þegar sárið er
gróið.
Of langur eða of stuttur kjálki
er einnig meðfæddur galli. Hann
geta skurðlæknar oftast bætt og
bæta þá um leið stöðu neðri góms-
ins, þannig að bitið verður betra.
Þó að fatatizkan taki sig til með
vissu millibili og segi, að nú eigi
brjóstin að vera eins litil og
mögulegt er (sbr. Twiggy-æðið)
er sú tizka ekki nægilega stöðug
til að stúlkan með litlu brjóstin sé
ánægð. Litil brjóst eru mörgum
stúlkum mikið sálfræðilegt
vandamál, þær þjást af minni-
máttarkennd og óframfærni á
timum brjóstadrottninganna.
Brjóstastækkunaraðgerðin er
venjulega tiltölulega einföld.
Skurðlæknirinn sker i húðfellingu
fyrir neðan brjóstið og kemur
fyrir plastpúða milli rifbeinanna
og brjóstkirtilsins.
Vandamál eldri kvenna er oft
andstæðan: brjóstin eru of stór.
Þau safna á sig miklu magni fitu,
sem gera það að verkum, að
brjóstin lafa niður að mitti eða
þar um bil. Þegar brjóst eru
minnkuð, er skorínn þrihyrningur
undir hinum þungu brjóstum, og
óþarfa fita er fjarlægð og um-
framhúð skorin af, siðan er
saumað fyrir.
Hvað kostar
„andlitslyfting"?
Engin getur fengið andlitslyft-
ingu á kostnað sjúkrasamlags,
aðeins vegna þess að viðkomandi
er að eigin dómi ekki nógu fall-
egur.
Erlendis eru flestar slikar að-
gerðir gerðar á einkasjúkrahús-
um og þá á kostnað þess, sem að-
gerðin er gerð á, nema um
ærnar ástæður fyrir aðgerðinni sé
að ræða. Það fer eftir umfangi að-
gerð.arinnar og lengd sjúkrahúss-
dvalar hvað hún kostar. Venju-
lega er um tugi þúsunda að ræða.
ANDLITIÐ
FEGRAÐ MEÐ
ANDLITS-
LYFTINGU
Andlitsfegrunaraögerðin er
hafin. Fyrst er skorið frá hárs-
rótum kringum eyrað. Hér er
hnifurinn fyrir framan eyrað.
Takmarkið er að losna við
„umframhúð”. Hér sést, þegar
búið er að draga húðina aftur
fyrir eyrað.
Síðasta stig aðgerðarinnar.
Skurðlæknirinn hefur dregiö
húðina til eyrans — þar með
sléttist úr henni.
39. TBL. VIKAN il