Vikan

Tölublað

Vikan - 27.09.1973, Blaðsíða 31

Vikan - 27.09.1973, Blaðsíða 31
FINNINN BROSANDI framhald af bls. 9 heimsmeti, en það átti Englend- ingurinn A.J. Robertsson, 15:01,2 min. Keppnisdagurinn rann upp. Að- stæður voru eins og bezt verður á kosið, skömmu fyrir hlaupið gerði skúr og loftið var hreint og svalt. Skotið reið af og mest spennandi hlaupið i sögu OL til þess tima var hafið. Hannes tók að venju mik- inn sprett i upphafi hlaupsins og ^tekur forystuna. En það stóð ekki lpngi. Litt þekktur Bandarikja- maður er orðinn fyrstur á öðrum h^ing og ýmsir aðrir reyna að ' komast fram úr. Þrátt fyrir hinar góðu aðstæður var millitiminn fyrstu 1500 metrana aðeins 4,17 'min. i staðinn fyrir 4.13 fyrstu 1500 metrana i 10 km hlaupinu tveimur^lögum áður. Klukkurnar sýndu 7 minútur og 17 sekúndur, þegar hlaupið var hálfnað, og þá kom Jean eins og örskot og þaut fram úr öllum keppinautum sin- um. Millitimarnir fóru nú að batna, 8.44 min'. við 3000 m mark- ið. Hannes fylgdi Jean fast eftir, þeiF'höfðu nú þrist alla hlaupar- < ána af sér og þ'etta var orðið al- gert einvlgi. Áhorfendur lifðu sig inn i hlaupið, hér hlaut eitthvað mikið að gerast. Þegar hálfur annar hringur var eftir i mark reyndi Hannes að fara fram úr, en Jean bætti aðeins við sig og Finninn varð að láta undan siga I bili.Þegar 200 metrar eru i mark hefst lokaþáttur þessarar miklu baráttu. Spenningurinn nær nú hámarki og áhorfendur risa á fætur. Finnski kórinn hrópar i takt: Su-o-mi, Su-o-mi! Allt var i mikilli óvissu. Þegar siðustu beygjunni lýkur. lengist bilið og Jean er tveimur metrum á undan, flestir eru á þeirri skoðun, að sig- ur hans bíasi við, en biðum við, Hannes á óvænta krafta eftir og hann tekur að draga á keppinaut sinn hægt, og bitandi. Bilið minnkar aðeins, þvi að Jean á eitthvað i pokahonrinu ennþá. Þegar aðeins 10 metrar eru eftir i mark, var eins og Jean væri að missa jafnvægið, hraðinn minnk- ar snögglega, Hannes skýzt fram úr og sigrar. Bilið var tæplega einn metri. Strax eftir hlaupið breiðist hið þekkta bros yfir and- lit Hannesar, hann hafði sigrað i erfiðasta hlaupi sinu til þessa dags. Undrunarkliður fór um áhorfendur, þegar timarnir voru tilkynntir: Hannes 14:36,6min. og Jean 14:36,7 — gat þetta verið satt?---Þessi sigur Hannesar Kolehmainens hafði ótrúlega mikil áhrif i Finúlandi, það rikti sannkölluð þjóðargleði i landinu. Unglingarnir dáðu þennan mann og næstu áratugina voru Finnar fremsta þjóð heims I langhlaup- um. En Hannes átti eftir að. vinna fleiri afrek, hann tók þátt i viða- vangshlaupinu og setti nýtt heimsmet, vegalegndin var 3000 metrar. Jean Bouin var með i hlaupinu en hætti eftir 1 km. Hannes fór til Bandarikjanna strax eftir OL og settist þar að. Hann var kominn úr allri æfingu, allur spenningurinn i sambandi við OL hafði tekið á taugarnar. En vestra jafnaði hann sig fljót- lega og á fimm ára timabili þar vann hann marga fræga sigra I iþróttakeppni allt frá 2ja til 15 milna hlaups. Or þvi fór Hannesi að fara aftur og hann var næstum hættur heppni árið 1918. En 1920 áttu OL að fara fram i Antwerpen og þegar gamla föðurlandið kall- aði fór hann að æfa fyrir mara- þonhlaup. Þess skal getið, að Hannes hafði fengið bandariskan rikisborgararétt. Hannes var ekki eins fjaður- magnaður og áður fyr.r, en hann var reynslunni rfkari. Hann vissi mikið um þjálfun og keppni. í Antwerpen var keppnin hörð, en Hannes bar sigur úr býtum, og segja má, að ' maraþonhlaupið 1920 hafi verið síðasta framlag hans I þágu keppnisiþrótta. Hannes Kolehmainen var að vissu leyti maður leikanna i Ant- werpen, eða eins og sænskur blaðamaður sagði, Finnlands litli stóri Hannes. Það var stórkostleg stund, þeg- ar Hannes Kolehmainen hljóp heiðurshringinn eftir sigurinn i maraþonhlaupinu. Hann var hylltur sem hinn stóri sigurveg- ari, þessi sibrosandi maður, sem vann þjóð sinni svo mikið gagn á Iþróttaleikvanginum. Þegar Hannes Kolehmainen kom i stutta heimsókn til Finn- lands árið 1914 var honum fagnað sem þjóðhetju. Eftir OL I Ant- werpen 1920 flutti hann aftur rtil föðurlandsins. Hann geröist fyrst um sinn bóndi á jörð, sem finnska þjóðin gaf honum, en eftir 1924 flutti hann til Helsinki og stofn- setti sportvöruverzlun. Hannes hætti ekki að hugsa um iþróttir, þó að hann hætti keppni, hann varð m.a. formaöur í félagi sinu Helsingin Kisa Veicot. Hannes Kolehmainen hefur sennilega aldrei fengið tækifæri til að sýna hvað raunverulega I honum b.jó. A OLI Stokkhólmi var hann kominn yfir hápunktinn á afreksferli sinum. Still hans og æfingaaðferðir voru lærdómsrik- ar, ekki sizt vegna þess að hann færði dagbók yfir æfingar sinar. Þjálfarinn Kearland frá S-Af- riku var mjög krifinn af Hannesi og sagði að still hans minnti m jög á hina mikli. Btvinnuhlaupara, Watkins, Bacon og Thomas, sem voru uppi um 1890, en hann haföi séð þá I keppni. Aftur á móti hafa þeir, sem geymt hafa minninguna um Hannes, talið hann likjast mest Ný-Sjálendingnum Love- lock, sem sigraöi i 1500 m hlaupi á OL I Berlin 1936. Hannes Kolhmainen var að mörgu leyti á undan sinni samtið i æfingum. Hann iðkaði mjög hlaup með breytilegum hraða en einnig löng hlaup til skiptis á hörðum vegum og á viðavangi. Hann sagði þó siðar, að hann hefði gert margt rangt, m.a. telur hann óheppilegt fyrir hlaupara að láta nudda sig mikið. Hannes var mjög dáður iþrótta- maður bæði i heimalandi sinu og um viða veröld. Hann var heiðar- legur, drengilegur en þó kapp- samur iþróttamaður. Sannur Iþróttamaður. Hann lagði mikið á sig i þágu iþróttanna, og hann uppákar lika marga glæsta sigra. Finnska þjóðin mun seint gleyma þessum frábæra afreksmanni sinum, Hannesi Kolehmainen. 3M______________________________ framhald af bls. 33 „Slðast, þegar við vorum hérna, hlutum við mjög góðar móttökur, en þá lékum við bara einu sinni. Siðan eru tvö ár og á þessum tima höfum við breytt tónlistinni tölu- vert. Við leikum ekkert lag núna, sem við lékum fyrir tveimur árum, og teljum tónlistina mun betri núna, heldur en fyrir tveimur árum. Við leikum að mestu orginal efni. Flestar Frambald á bls. 36

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.