Vikan

Tölublað

Vikan - 27.09.1973, Blaðsíða 14

Vikan - 27.09.1973, Blaðsíða 14
— Við hjónin ætlum aö fara fljúgandi til Kanada, læknir, og ég er svo hrædd um að ég veröi veik. Ég er oft bilveik og nú er ég hrædd um að ég verði lika flugveik. — Eigið þér við að þér séuð hrædd við að fljúga? spurði ég konuna. — Ég er ekkert hrædd við að fljúga, en ég er hrædd um að ég verði veik, sagði hún. — Margir, sem þjást af bil- veiki, finna ekkert til i flugvél, sagði ég, henni til huggunar. Ferðaveiki er oft sálfræðilegs eðlis, en likamlega hljóta hreyf- ingar i flugvél að hafa önnur áhrif en óreglulegar hreyfingar og hoss i bil. — Hvað orsakar svona ferða- sjúkdóma? Ég skýrði það fyrir henni, að venjulega væri orsökin röskun á jafnvæginu, en það geta margar orsakir legið að baki óþægind- anna. Það geta verið snöggar' og miklar breytingar á hraða og stefnu, ofnæmi fyrir hreyf- ingum og stöðu við þessar snöggu breytingar, innilokunar- kennd I þröngu rými, já, jafnvel alls konar lykt getur orðiö til þess, aö sumar manneskjur finna til flökurleika og kasta upp. Eins og kunnugt er, er mikill undirbúningur hafður fyrir geimferðir og geimfarar verða að ganga i gegnum strangan reynslut. Þeir verða að fara i alls konar klefa, sem látnir eru snúast og róla fram og aftur og i hringi. En það er engin ástæða til að óttast rólega flugferð, þar sem lika er tækifæri til að hreyfa sig og ganga um i far- þegarýminu, enda er flugveiki mjög sjaldgæf nú orðið. Það sem um er að ræða i flug- ferðum, er breytingin á loft- þrýsting, mismunur milli þess, sem við eigum að venjast á jörðu niðri og lægri loftþrýst- ingi i mikilli hæð. Jafnvel þótt nútima flugvélar séu vel búnar, til að mæta þessum mismun á loftþrýstingi, þá verða farþegar oftar varir viö hann. Lágur loftþrýstingur veldur likamanum oft óþægindum. Aðallega kemur hann fram I kinnholunum og millieyranu, þar sem kvef eða aðrar bólgur geta hindrað það, sem venju- lega heldur þrýstingnum i þessum liffærum i jafnvægi. Þeir, sem eru með hálsbólgu, bólgu i kinnholum eða eyrum, geta fundið til óþæginda eða verkja. Þannig er það lika, ef maginn eða þarmarnir eru ekki i góöu heilbrigðisástandi. Flug i háloftum orsakar súr- efnisskort. Sjúklingar með hjartasjúk- dóma, alvarlegt blóðleysi og brjóstsjúkdóma, geta fundið fyrir þessu, en varla meira en svo,.að auðvelt sé að ráða bót á þvi, með þeim súrefnistækjum, sem eru til staðar i öllum flug- vélum. — En það er sjálfsagt að hætta ekki á neitt og nú eru til mörg lyf við sjóveiki, bilveiki og loftveiki og það er ágætt að reyna hvað henjar hverjum bezt, áður en lagt er af staö. HELLIRINN___________________ framhald af bls. 13 honum og eftir að hafa athugaö hann nánar, lyfti hún höfðinu á honum upp i kjöltu sina. Þetta var talsvert átak, þvi að hann var stór og þungur. Hvitir vöðvarnir á öxlinni á honum sáust gegnum rifna skyrtuna. Höfuðið á honum var þungt og gula hárið kleprótt af sandi og vott. Rétt eins og höfuð á ljónsunga. Eitthvað hrærðist innra með henni. Skip- brotsmaður. Veslings pilturinn . . . Hún hafði heyrt getiö um skip- brot i Padstow, en það var bara svo langt i bUrtu’ En til hvers var hún að sitja hérna? Auðvitað ætti hún að hlaupa eftir hjálp. En þá fór ungi maðurinn að hreyfa sig og þá vildi hún auðvit- að standa upp og færa sig fjærog horfa á hann úr siðsamlegri fjar- lægð. En ekki væri það nú kristi- lega að farið aö láta höfuðið á honum detta niður i sandinn. Hún sat þvi hreyfingarlaus og i vafa um, hvort meira ætti aö mega sin hræðslan eða samúðin. Hann opnaði augun. Þau voru stór og brún með ofurlitlum dekkri blettum. Hann starði á ungfrú Cotty. Ungfrú Cotty roðn- aði. Hann hreyfði höfuðið til og sleikti varirnar. — Ég ætla að fara að kasta upp, sagði hann. Ekki bætti þetta úr skák hjá henni og þó enn siður, þegar hann gerði alvöru úr þessu, en tal hans var þó nokkur huggun, vegna þess að hún hafði óttazt, að hann væri útlendingur, sennilega Norðurlandabúi. Og seinna, þeg- ar hann tók að hressast, sá hún að hann var eldri en hún hafði hald- ið. Hann talaði allgóða ensku, en með són, sem þó ekki minnti á Cornwall, og enda þótt hann væri mjög máttfarinn, gat hann sagt sögu sina með nokkrum hléum. Skipið hans var ekki þetta, sem fórst við Padstow, heldur hét það „King Lear”, skúta, sem var á leið til Bristol með korn. Það hafði laskazt illilega i ofviðrinu og svo farizt tiu milur frá ströndinni. Hann hafði verið átta klukku- tijma I sjónum og haldið sér i staur og siðan löngu áður en skip- iö fórst, hafði hann ekki smakkaö matarvita. Hún náöi i tvo kökubita og heimatilbúinn brjóstsykur ofan af syllunni — annaö átti hún ekki matarkyns. Hann át kökuna hægt og varlega, hallaði sér upp aö klettinum og lét sig þorna i sól- skininu, en hún stóö, likust hvit- um skugga hinum megin I skút- anum og horföi á hann. Hún vissi, Framhald á bls. 40 AGBÓK LÆKNIS

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.