Vikan

Issue

Vikan - 27.09.1973, Page 42

Vikan - 27.09.1973, Page 42
VINNIWGSHAFAR iSUMARGETRAUN VIKUNNAR 1973 1. Ferðtil Mallorka fyrir tvo með ferðaskrifstofunni tJrval: Guðrún Rósa Friðjónsdóttir, Hafnarstræti 53, Akureyri 2. Veiði f Hrútafjarðará og uppi- hald fyrir tvo i tvo daga i Staða- skála i Hrútafirði: Guðbjörg ögmundsdóttir, Ása- braut 7, Keflavík 3. DBS-reiðhjól frá Fálkanum: Grétar Jón Einarsson, Kóngs- bakka 14, Reykjavik 4. Kvöld fyrir tvo á Hótel Esju: Guðlaug S. Ásgeirsdóttir, Ból- staðarhlfð 10, Reykjavik 5. Tjald frá Belgjagerðinni: Finnur Baldursson, Reykjahlíð 4, Mývatnssveit, S-Þing. 6. Bakpoki frá Belgjagerðinni: Linda Pétursdóttir Hólmavik 7. Svefnpoki frá Belgjagerðinni Már Guðmundsson, Nýbilavegi 45A, Kópavogi. votan fjörusand og karlmanns- augu, sem horföu á hana. Þegar hún fór niður i fjöruna næsta dag, beið hann hennar þar. Hún fékk ákafan hjartslátt. Hann hafði keypt eða fengið léð önnur föt, bláa skyrtu, opna i hálsinn og siðar bláar vaðmálsbuxur. Og skeggbroddarnir voru horfnir. Hann laut höfði yfir hönd hennar, kurteislega. — Hvernig vissuð þér, aö ég mundi koma hingað? sagði hún. — Nú . . . ég kunni ekki al- mennilega við að fara heim til yð- ar, en mér fannst ég þurfa að þakka yður. — Ég . . . ég sendi i morgun til að spyrja um yöur, og ég heyrði, að'þér'væruð farinn að hressast. En sjálf á ég ekkert þakklæti skil- ið. Hann brosti til hennar. — Þar er ég ekki á sama máli. En það var heppni, að við skyldum hitt- ast hérna aftur. Getið þér staðiö ofurlitið við hérna? Hún settist niður i hellismunn- anum, en ekki ósjálfrátt og meö þokka eins og þegar hún var þarna ein, heldur stirðlega og teprulega, eins og hver önnur piparmey. Hún fann, að hún hafði verið kumpánleg um of, er hún heilsaði honum, og var sjálfri sér gröm fyrir að vera enn að skammast sin fyrir það. 8. Toppgrind frá Ingþóri Haraldssyni: Lára Arnadóttir, Geitlandi 3, Reykjavik 9. Námskeið i afslöppun og snyrtingu hjá Heilsulindinni: Jóhanna Arndai, Hátúni 9, Reykjavik 10. —13. Kosangastæki frá Kosan- gassölunni: Rikarð Sigurðsson, Bjarnhóla- stig 13, Kópavogi Katrin Gunnarsdóttir, Aðal- stræti 39, Þingeyri Nanna Björnsdóttir, Túngötu 2, Reyðarfirði Maria Rós Leifsdóttir, Víöi- hvammi 26, Kópavogi 14. Konica-myndavél frá Gevafoto: Heiga Pálsdóttir, Urðargötu 9, Patreksfirði 15. —17. Útigrill frá Tómstunda- húsinu: Helga Guðmundsdóttir, Bugðu- læk 18, Reykjavik Kristrún Kristjánsdóttir, Álf- heimum 15, Reykjavik Hiida Sigvaldadóttir, Blönduósi 18. Vindsæng frá Tómstundahúsinu: Elin Sigurbjörnsdóttir, Króka- túni 4A, Akranesi 19. Göngutjald frá Tómstunda- húsinu: Bergþór Bergþórsson, Mariu- bakka 8, Reykjavik. 20. Þríhjól frá Erninum: Hólmfríður Jónsdóttir, Bræðra- tungu 7, Kópavogi 21. —25. Daiwa-veiðistöng og veiðihjól frá Sportvali: Ólafur Andrésson, Laugabóli, Mosfellssveit Björn Karlsson, Laugaiæk 36, Reykjavik Guðriður óskarsdóttir, Krist- neshæli Hjördís Lindal, Hjarðartungu, As, A-Hún. Ólöf R. Zoega, Þiljuvöilum 14, Neskaupstað En hún jafnaði sig fljótlega. Hann hafði einhvers konar aðlaö- andi framkomu, og hrakningarn- ir og útivistin höfðu ekki bitið neitt verulega á hann. Þannig kom hreysti hans henni fyrir sjónir. Hann mundi alltaf geta hrist af sér bæði þreytu og deyfð. Þessi hreysti hans ólgaði og sauð, rétt eins og hún ætlaði að gleypa hana. Hann kallaði hana ungfrú Cotty og var brátt farinn að tala við hana eins og konu, sem væri honum jafnaldra og af sömu stétt. I fyrstunni hafði henni fundizt hann lita á hana sem eldri en hann sjálfur var, en nú sá hann, að þetta var mis?kilningur. Og hún varð hreykin með sjálfri sér. Hann sagðist vera launsonur baróns eins I Gloucesterhéraði og einnar vinnukonunnar. Þetta sagði hann henni kinnroöalaust, og áður en hún fengi svigrúm til að láta sér ofbjóða þetta, hélt hann áfram með sögu 'sina. Seztán ára gamall hafði hann strokið aö heiman og farið til sjós og i tólf ár hafði hann flækzt um allan heim. Þá væri hann 28 ára, hugsaði hún. Hún fór að draga 28 frá 35, en hætti fljótt við það. Mér ætti að geta verið sama um það, hugsaði hún. Kannski var þetta vegna þess að hann virtist hafa áhuga á henni. Björtu augun hans viku ekki frá henni. Hún vissi ekki, hvort hún ætti að taka sér þetta til inntekta eða bara hafa gaman af þvi, eða lita á .að með fyrirlitn- ingu. Hann var nú bara sjómaður. Og hann var ekkert nærgöngull. Hún fann, að rödd hans hafði áhrif á hana, svo að hún varð ýmist móðguð eða full samúðar. En einhvern veginn lét hugur hennar smám saman undan. Þau töluðu saman i heilan klukkutima, en þá áttaði hún sig og stóð upp, en hann spurði, hvort hann mætti koma aftur. Aöur en hún vissi af, var hún búin að svara þvi játandi. Hann kyssti á hönd hennar, og stikaði siöan burt, og skildi h ma eftir þögula i sandinum. Þetta kom mér svo á óvart. Ég bjóst ekki við honum. En á morg- un veit ég vissu mina. Á morgun verður þetta öðruvisi. Ef ég held honum nægilega frá mér, getur hann- íð skemmtilegur . . . einn eða tvo daga i viðbót. Lengur get- ur hanr sjálfsagt ekki verið hérna. Alveg gleymdi ég að spyrja hann að þvi. Kannski verð- ur hann ekki einu sinni hér á morgun . . . Þetta var heimskulegt, af þvi að það gerði hana veikari fyrir. Og hann varð um kyrrt. Auövit - að varð hann kyrr. Eins og utan við sig spurði hún hann spurn- inga, en hann svaraði hiklaust. Hann ætlaði að verða hérna eitt- hvaðenn. Hvaðsnertipeninga, þá hafði hann haft einhverja i beltinu sinu, og þegar hann væri búinn að eyða þeim, færi hann gangandi til Plymouth. Hann var orðinn upp- gefinn á sjónum og vildi breyta til. Þennan dag, þegar nokkuð var tekið að draga úr rtolti hennar, spurði hann hana um hana sjálfa, og i stuttorðum setningum sagði hún honum það, sem hann langáði að vita. Hann virtist ekki hafa séð neina henni lika áður. Hún var ekki lagleg . . . nei. En hún var hávaxin og með einhvern yndis- þokka og hæg og róleg, fannst honum. En fyrst og fremst var hún dama og jafn flekklaus og blóm, sem er ræktað undir gleri. Hún var svo ólik feitu, heimsku móður hans og hávaðasama föð- urnum. Hann hafði hitt allar kon- ur, sem hann kærði sig um I hundruðum hafna um allan heim — en aldrei neinni, sem liktist ungfrú Cotty. Hann kom næsta dag og þar næsta og enn næsta. Þetta fóru að verða regluleg stefnumót. Klukk- an tvö eða þrjú eða fjögur. Hann fór að kalla hana ungfrú Laviniu. En hún kallaði hann aldrei neitt við hann sjálfan. Stolt hennar var á undanhaldi. Hún hugsaði ekki lengur um umgengnisvenjur. Yfirleitt hugsaði hún nú orðið helzt ekki neitt, að minnsta kosti ekki skipulega ... og allt öðru visi en hún hafði áður hugsað. Þau stóðu venjulega við þarna iklukkutlma. Stundum töluöu þau allan timann, en stundum mæltu þau varla orð frá vörum. Hann sagði henni frá sjónum. Frá Mar- seille. Frá ljónaklettinum I Gibraltar, grisku eyjunum og safirbláu Karibahafinu. Frá malajalöndum, þar sem húsin voru byggð á stólpum úti I sjón- um, frá ópiumknæpunum I Singa- pore. Oftast hallaði hún sér upp aö klettinum og hlustaði á þetta með lokuð augu, og nú leið henni vel og allt stolt var gleymt og grafið. Og alltaf horfði hann á hana. Stund- um brostí hún og stundum rak hún upp skellihlátur, og liktist þá alls ekki ungfrú Cotty. Stundum roðnaði hún — það var skrýtið, hve hægt hann átti meö að láta hana skipta litum. En stundum opnaði hún augun, leit á hann og sagöi: — Þessu get ég nú bara ekki trúað! Og vegna þess, að einhver nýr ljómi kom i augu hennar, vildi hann sannfæra hana og lagðist þá á hné fyrir framan hana, biðjandi á svipinn. Stundum snarþagnaði hláturinn hjá henni og þá stóð hún upp og gekk niður i flæðarmálið, rétt eins og hún hefði ekki hemil á tilfinn- ingum sínum. Einn daginn kyssti hann hana. Hvernig það gerðist vissi hún aldrei. Hann hafði verið á gaman- 42 VIKAN 39. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.