Vikan - 16.05.1974, Síða 4
■ pósturinn
Á báðum áttum
Komdu sæll og blessaður, elsku
Póátur!
Nú ætla ég að biðja þig aö
hjálpa mér svolitið. Ég er búin að
vera hrifin af strák siðan i októ-
ber og hann er ofsalega hrifinn af
mér lika. Núna á hann heima i
Reykjavik, en ég fyrir austan.
Svo var mér sagt um daginn, að
hann væri með einhverri stelpu,
en ég vil ekki trúa þvi, vegna þess
aö stelpan, sem sagði mér það,
hefur logið svo mikið að mér. Ég
er steinhætt að trúa henni.
Hann er nokkru eldri en ég og
ég hef ekkert hitt hann svo lengi.
A ég að fara og tala við hann, eða
á ég að láta hann eiga sig?
Ég vonast eftir svari sem fyrst,
elsku Póstur, þvi að ég er að
deyja úr leiðindum. Vertu svo
blessaður og sæll, elsku Póstur.
Ein, sem veit ekki sitt rjúkandi
ráð.
P.S. Hvað heldurðu, að ég sé
gömul?
Fyrst þú ert steinhætt að trúa
stelpunni, vegna þess hvað hún
hefur skrökvað mikið að þér,
skaltu ekkert vera að trúa henni
núna heldur. Þú segir lika, að
strákurinn sé ofsalega hrifinn af
þér, svo að þú ættir ekki að þurfa
að hafa neinar áhyggjur. Næst,
þegar þú hittir strákinn, ættirðu
samt að ganga úr skugga um, að
hann hafi ekkert verið að dufla
við aðrar stelpur. Þú ert ekki
nema þrettán ára.
//Hjálmar og Hulda"
Kæri Póstur!
Fyrir nokkrum árum birtist i
Póstinum hjá þérljóðið „Hjálmar
og Hulda ”, en þar sem ég get ekki
fundiö blaðiö, langar mig til að
biðja þig aö finna það fyrir mig og
senda mér það.
Með kveðju og þakklæti.
T.E.
Það er svo Iangt um liðið, siðan
þetta ljóð var birt í Póstinum, að
varla er vinnandi vegur að hafa
upp á þvi. En ef einhver lesenda
Póstsins á nú þetta ljóö i fórum
sinum, væri þaö vel þegið til
birtingar.
Lyfseöill á Jesú!
Kæra Vika!
Þú, sem getur svarað öllum
spurningum lesenda þinna og
greitt úr öllum flækjum, hjálpaðu
okkur nú. Við erum tvær, sem
höfum veðjað um atriði úr sjón-
varpinu, sem kom fyrir i
umræðuþætti um áfengismál og
eiturlyfjaneyzlu fyrir nokkru.
Einn þátttakenda i umræðunum
lét þau orð falla, að ekki væri
hægt að fá resept á Jesú eða guð
almáttugan. Nú er spurningin:
Er sá, sem þetta sagði, læknir eða
félagsfræðingur?
Vonumst til að fá svar sem
fyrst.
Með þakklæti fyrirfram.
Tóta.
Nú vandast málið, Tóta.
Pósturinn sá ekki þennan þátt i
sjónvarpinu og veit ckki, hver
þátttakenda sagði þessi orö. En
spurningunni er hér með komið á
framfæri við lesendur Póstsins.
Áhugalaus piltur!
Kæri póstur!
• Ég ?etia bara aö koma strax að
efninu. Þannig er mál með vexti,
að ég er hrifin af strák, sem er
jafngamall mér, en hann vill
ekkert með mig hafa. Hann er
alltaf að reyna við einhverjar
aðrar stelpur eins og til dæmis
vinkonur minar, en er alltaf svo
leiðinlegur við mig.
Elsku Póstur! Hvaö get ég gert
til að ná I hann? Ég er að deyja úr
ást? Ég vona, að þú birtir þetta
bréf og svo þakka ég fyrir.
Ein ástfangin.
P.S. Hvernig er skriftin, hvað
lestu úr henni og hvað heldur þú,
að ég sé gömul? Hvernig fara
tvær vogir saman?
Vogir af gagnstæðu kyni eiga
mikla ást og hamingju i vændum
saman. Þú ert þrettán ára,
skriftin er ekki slæm, en svolitið
sóöaleg og bendir til þess að þú
eigir i einhverjum vandræðum
með sjálfa þig. Reyndu nú að
slaka svolitið á og i öllum bænum
haltu þér svolitið til. Þá getur vel
verið, að þetta gangi eitthvaö
með strákinn.
Handavinnukennsla
Kæri Póstur!
Ég vil segja eins og aðrir, sem
skrifa þér: Ekki láta þetta bréf
lenda i ruslakörfunni. Ég er mjög
stolt af þér. t Póstinum hafa
komiö svör viö mörgum spurn-
ingum, sem ég hef veriö að velta
fyrir mér. Og nú langar mig til að
spyrja þig: Hvaða nám þarf til
þess að verða handavinnukennari
I barnaskóla? Er landspróf
nauðsynlegt? Mig langar lika til
að vita, hvaö er gott fyrir þurra
húð, sem ekki þolir klór I sund-
laug? Hvað helduröu aö ég sé
gömul og hvað lestu úr skriftinni?
Ein á Akureyri.
Pósturinn þakkar hlý orð i sinn
garð. Til þess að verða handa-
vinnukennari þarf að stunda 3ja
ára nám við handavinnudeild
Kennaraháskóla tslands, en |
inntökuskilyrði í Kennara-
4 VIKAN