Vikan


Vikan - 16.05.1974, Side 5

Vikan - 16.05.1974, Side 5
háskólann — allar deildir — er stúdentspróf eöa hliðstæð menntun. Ekki er nauösynlegt að taka landspróf. Gagnfræðaprof ætti að nægja. Að þvf loknu þarf að stunda tveggja ára nám við framhaldsdeildir gagnfræðaskóla og siðan tveggja ára nám við undirbúningsdeild Kennara- háskólans. Jafnframt handa- vinnunni velja nemendur Ihanda- vinnudeild eina bóklega grein, sem þeir fá kennsluréttindi I að loknu prófi. Varðandi þurra húð skaltu leita læknis. Þú ert á fimmtánda ári og skriftin bendir til samvizkusemi. Kóróna Kæri Póstur! Okkur langar til að vita ýmis- legt og spyrjum þig þess vegna nokkurra spurninga. 1. Hvað mynduð þið gera, ef þið væruð að stofna hljómsveit? 2. Hvað gizkið þið á, að eitt trommusett kosti? 3. Hvað kostar bassi eða sóló? 4. Hvar er hægt að læra að syngja? 5. Hvað gizkið þið á, að kosti að reka hljómsveit? Við vonum, að þetta lendi ekki i ruslakörfunni. Erum að stofna hljómsveitina KORÓNA! Bless. Gauji, Einar og Kitti. Ef Pósturinn ætlaði að stofna hljómsveit, myndi hann byrja á þvi að læra almennilega á eitt- hvert hljóðfæri. Svo myndi hann reyna að komast I samband viö fleiri, sem kynnu að leika á hljóð- færi. Trommusett fáið þið varla fyrir minna en 40.000 kr. og þau kosta allt að 180.000 — 200.000 kr. Bassagítar og sólógitar kosta frá 18.000 krónum og upp I 80.000 krónur. Söng lærir fólk hjá söng- kennurum. Reksturskostnaður hljómsvcitar fer náttúrlega aðal- lega eftir þvi, hvaö reksturinn er umfangsmikill og ætli flestar hljómsveitir, sem leika opin- berlega, hafi ekki vel fyrir kostnaði. Spegillinn, færeyskt dagblað og fleira Kæri Póstur! Mig langar til að bera fram nokkrar spurningar. 1. Er timritið „Spegillinn” hættur að koma út? 2. Hvers vegna koma aldrei islenzk sakamálaleikrit eða gamanleikrit i islenzka sjón- varpinu? Eru þau kannski ekki til? 3. Er hægt að gerast áskrifandi að færeysku dagblaði? Ef svo er, hvernig þá? 4. Er hætt aö birta viðföl við ýmsa landsþekkta menn i „Vikunni”? 5. Væri ekki reynandi að fá The Beách Boys hingað i heimsokn? Eru þeir kannski of dýrir? 6. Er ekki hægt að fá einhverja landsþekkta skemmti- krafta til að skemmta I sjón- varpinu? Það er þá ekki meira að sinni. Kær kveðja, k.k.s: 1. Nokkur stöðvun hefur orðið á útkomu „Spegilsins”, en þó er óliklegt að hann sé búinn að leggja upp laupana fyrir fullt og allt. 2. tslenzk gamanleikrit hafa verið sýnd I sjónvarpinu oftar en einu sinni og jafnvel sakamála- leikrit lika. 3. Reyndu aö skrifa til Dimma- lætting, Erling Jallsgöta 6, Tórs- havn, Föroyar. 4. Nei. 5. Það gæti vel veriö reynandi, en kannski svolltið dýrt. 6. Eru landsþekktir skemmti- kraftar ekki alltaf öðru hverju að skemmta I sjónvarpinu? ii Jenny^ Skolavoróustig, vill segja fra |>að er vel líerl sem við <iérum siálfai Hannyrðavtirur frá JennS prvða lieimilið bómullargarni í öllum litum, CB og METTA. HATTA- OG HANNYRÐAVERZLUNIN Jenný SkólavörSustíg 13a • Simi 19746 - Pósthólf 58 - Reykjavik VIKAN 5

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.