Vikan


Vikan - 16.05.1974, Page 13

Vikan - 16.05.1974, Page 13
Emilia Dingle var ein þeirra, sem alltaf lita út fyrir aö vera miklu eldri en þær eru.Er hún var tvitug leit hún út fyrir uð vera þritug. Pegar hún var þritugr heföi mátt halda aö hún væri fertug. Vissulega myndarleg fertug kona, en... Hún var elzt Dingle-systranna. Eva og Samantha liktust móöur þeirra, bústnar meö löng aúgnhár og háa rödd. En Emilia liktist föður sinum, há, grönn og feimin, með arnarnef, sem var allt of stórt ihlutfalli viö fölt, hjartalaga andlitiö. Yngri stúlkurnar tvær voru allt- af með strákastrollu á hælunum, alveg frá þvi þær voru i gagn- fræðaskóla, en Emilia var hærri en strákarnir, sem hún þekkti, og hún vissi sem var, að enginn þeirra var sérlega spenntur fyrir henni. „Emilia ætti aö verða kenn- ari”, sagði faðir hennar, sem sjálfur var lögfræðingur. „Hún hefur alltaf verið svo mikill bóka- ormur’’. Emilia var þ.vi sett i kennara- skóla og að kennaraprófi loknu geröisf hún barnakennari i fæð- ingarþorpi sinu, Doogalook I Queensland-fylki i Astraliu. Eva og Samantha giftust báðar ungar. Emilia var brúðarmær við bæði brúðkaupin og gætti þess vel að ganga i hæfilegri fjarlægð á eftirsystrum sinum, til að minna bæri á þvi hve há hún var. Brátt kom að þvi aö fólk fór að segja „aumingja Emilia”. , Þegar systrabörn Emiliu fædd- ust prjónaði hún á þau peysur og sokka, eins og góðri frænku sæm- ir. Hún þráði að eignast börn sjálf — en einhvern veginn varð ástin ekki á vegi hennar og sjálf var hún of feimin til þess að leita hennar. Þegar Emilia var þritug, hefði hún verið allra huggulegasta stúlka, ef hún hefði kunnað að nota snyrtivörur og hætt að taka hárið i hnút i hnakkanum. Ekki bættu smekklaus lestrargleraug- un úr. Þegar herra Dingle lézt, ákvað kona hans að leggjast i kör, svo það var heppilegt að Emilia bjó heima hjá henni. Emilia var lika fyrirtaks parnapia, þegar systur hennar og menn þeirra þurftu að bregða sér utan. „Len, ég held henni finnist svo gaman að nostra við þau”, sagði Samantha, þegar Len, maður hennar, vaktí máls á þvi, hvort ekki væri til of mikils ætlazt að láta Emiliu eyða öllu sumarleyfi sinu við barnagæzlu. „Vesalings -Emilia. Hún á tæplega eftir að fá aðra útrás fyrir ástúð sina”, bætti Samantha við. Emilia varð' ástfangin einu sinni eða tvisvar. I fyrra skiptið var það ungur maður, sem fluttist til Doogalook og setti upp út- varps- og sjónvarpsbúð i aðalgöt- unni. Hann kenndi einnig á pianó og flautu. Emilia keypti §ér flautu. Þetta var litil flauta og hún gat æft sig á hana i herbergi sinu, án þess aö móðir hennar yrði þess vör. Ungi maðurinn hét Dennis Delaney og hann hafði dökkbrún augu og dreymandi bros og timarnir hjá honum voru hápunktarnir i lifi Emiliu. Emilia var sem i unaðsheimi, þegar Dennis var að spila undir hjá henni. Það fór um hana undarlegur fiðringur, þegar lang- ir fingur hans færöu fingur henn- ar til á flautunni. Þetta hlaut að vera ást. Hún skrifaði honum bréf, sem aldrei voru póstlögð, og hún gekk um með glampa i aug- um. En eitt kvöldið kom hún of snemma i tima. Á sófanum var Dennis i innilegum faðmlögum með dóttur skólastjórans. Hún var að læra á pianó — en nú voru þau að fullnema sig á öðru sviöi. Emilia flýtti sér út, alveg utan við sig. Siðar um kvöldið skrifaði hún Dennis nokkrar linur — og þessar linur voru settar i póst. Þar sagði hún honum, að hún þyrfti að vera heima hjá -fnóður sinni á kvöldin og hefði þvi ekki tima til flautuleiks. Siðan þurrk- aði hún sér um augun og horfði lengi á sjálfa sig i spegli. Hún bar sig saman við þokkafulla dóttur skólastjórans og strengdi þess heit að láta aldrei framar glepj- • ast af ástinni. Þegar Emilia var 32 ára varð hún ástfangin á ný. f þetta skipti var ástin annars eðlis. Þaö voru blóm, en ekki tónlist, sem tengdu Emiliu og Harry Green. Að minnsta kosti áleit Emilia þaö. Harry Green rak'gróðarstöðina i Doogalook. Emilia og Harry höfðu verið saman i barnaskóla; en eftir að þau uxu úr grasi höfðu þau sjaldan hitzt. Harry var stór og loðinn á skrokkinn. Þegar hann brosti, sá- ust fallegar tennurnar vel og aug- un kipruðust. Stóru hendurnar hans voru nær alltaf dökkar af mold og óhreinindum. Allir garöeigendur i Doogalook ráðfærðu sig við Harry, þvi hann vissi allt, sem garðrækt snerti. Hann stofnaði klúbbinn „Dooga- look framtiðarinnar”, þar sem hann m.a. rak áróður fyrir þvi að aðeins væri notaöur húsdýraá- burður. Hann var mjög andvigur þvi að flúoi^ væri settur i vatn, Emilia var aftur á móti mjög hlynnt flúór, enda hafði hún feng- ið nóg af tannpinunni i nemendum sinum. En hvað húsdýraáburðinn varðaöi, þá var hún á sáma máli og Harry. Harry var ritari klúbbsins og hann bað Emiliu um að aðstoða sig við ýmiss konar bréfaskriftir. Þetta var i fyrsta skipti, sem karlmaður hafði beðið Emiliu um eitthvað — og afleiðingin varð sú, að ástin náði tökum á henni. Emilia skrapp oft á ’kvöldin heim til Harry, til að hjálpa hon- um við sitt af hverju. Meöan þau réðu fram úr vandamálum klúbbsins var móðir Harry á si- felldum þönum með kaffi og kök- ur. Henni geðjaðist mjög vel að Emiliu og fannst hún hafa aristókratiskt nef. Emilia blómstraði, svo við lá að hún yrði fögur — einkum eftir að Harry bauö henni að koma og skoða orkideurnar sinar. Orkideuhúsiö var hinum megin við gróðurreitina og þar ræktaði hann orkideur fyrir flestar stærri borgir i fylkinu, svo og fyrir garð- eigendur i Doogalook. Það var eins og einhver sælutilfinning færi um Emiliu þarna i hlýjunni og rakanum, innan um burknana og blómin. Orkideurnar voru alls staðar. Það var eins og þær væru aö reyna að steypa sér út úr blóma- pottunum, þær hengu niður úr loftinu og hjúfruðu sig uþp að trjástofnum. Sumar stóöu i sinum fegursta skrúða. Emilia var gagntekin af þessari fegurö. Henni hafði aldrei verið gefin orkidea, fyrr en þetfa kvöld, er Harry tók eina og færöi henni. Um nóttina dreymdi Emiliu orkideur. Henni fannst hún vera á suðrænni eyju og hún sá Harry koma gegnum skóginn i stóru stigvélunum sinum og niður á loöna bringuna lá dumbrauöur blómakrans. Hana dreymdi lika naktar ungmeyjar, sem allar voru eins og dóttir skólastjórans. Emilia vaknaði rétt áöur en hringt var inn i skólanum. Frú Dingle fór að veita þvi eftirtekt að Emilia hafði breytt hárgreiðslunni litið eitt og aö á augnalokunum vottaði fyrir augnskugga. Hún var einnig farin að nota varalit. „Emilia er bara alls ekki svo ólagleg”, sagði frú Dingle við Samönthu, yngstu dóttur sina og Samantha fór aö velta þvi fyrir sér, hver maðurinn væri. Daginn eftir tókst frú Dingle aö fiska leyndarmálið upp úr Emiliu. „Ég er ástfangin af Harry”, sagði Emilia og kafroðnaði. ,,0g ég held að hann elski mig”. Frú Dingle lét fallast niður á stólinn og veinaði skelfingu lost- in: „Ó Emilia. Ekki hann Harry Framhald á bls. 14 Smásaga eftir Margaret Hazzard Orkideur handa Emilíu Hún var bara gamla, góða Emilía, sem öllum þótti sjálfsagt að gætti bama og aldraðra. Þaðkom þvi öllum á óvart þeg- ar Emilia fór skyndilega að blómstra, eins og orkidean hennar. VIKAN 13

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.