Vikan


Vikan - 16.05.1974, Side 22

Vikan - 16.05.1974, Side 22
Fyrstu verðlaun: Mallorkaferð með SUNNU. 1. Finnskur fóöraöur frakki frá PIRETTA. 2. Bómullarblússa meö viöu sniöi frá SÖS og IB. Ljósar tweedbuxur frá Cacharel. 3. Viöar denimbuxur frá IN WEAR, skyrtu- blússa og veloúrjakki frá SÖS og IB. 4. Sltt pils i beigc, skyrtublússa og velourjakki, allt frá SÖS og IB. Guðbjörg Jónsdóttir er 19 ára, dóttir Gyðu Júliusdóttur og Jóns Þ. Einarssonar. Hún á heima i Selbrekku 6 i Kópavogi, en vinnur á endurskoðunarstofu i Reykjavik. Guðbjörg tók gagnfræðapróf úr verzlunar- deild i Flensborg fyrir þremur árum. ,,Ég var ákveðin i að fara i verzlunardeild, en þar sem engin slik deild var i Kópavogi, varð ég að fara til Hafnarfjarðar”. segir Guðbjörg. „Veturinn eftir að ég tók gagn- fræðapróf fór ég að vinna á endurskoðunar- stofu og hef unnið við það i þrjá vetur”. „En hvað gerirðu á sumrin?” „Ég hef aðeins verið ráðin á endurskoðun- arstofuna yfir veturinn og þvi orðið að finna mér eitthvað annaö yfir sumarið. Siðustu tvö sumur hef ég verið i Englandi, þar sem ég hef unnið við þjónustustörf, annað sumarið á sumarleyfisstað i Wales en hitt i Somerset. Mér fannst mjög gaman fyrra sumarið, en varð fyrir nokkrum vonbrigðum það seinna. En ég hafði mjög gott af þessu og æfðist i að tala og skilja ensku”. „Gaztu mikið ferðazt?” „Ég gat sama og ekkert ferðazt, þvi við fengum svo litil fri. En ég stoppaði alltaf i London á leiðinni út og heim, og eftir fyrra sumarið fór ég með vinkonu minni i hálfan -mánuð til Spánar”. t sumar ætlar Guðbjörg að vera heima og fá sér fasta vinnu til frambúðar. Spurð um hvað hún geri aðallega i fristundunum sin- urp, segist hún gera fátt merkilegt — nema hvað hún lesi auðvitað skáldsögur og fari út að skemmta sér. ■|-■■■■■ Í Í 22 VIKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.