Vikan


Vikan - 16.05.1974, Blaðsíða 33

Vikan - 16.05.1974, Blaðsíða 33
■ Orkideur handa Emiliu Framhald af bls. 14 Emilia gat aftur á móti enn not- aö föt númer 12 og þurfti aldrei að fara á megrunarkúr.Nef hennar fór nú orðið mjög vel á andlitinu og gaf henni virðulegan svip. Hún leit alls ekki út fyrir að vera orðin fertug, og systur hennar töldu að auknar fristundir, ylurinn i gróðurhúsinu og hvildinhefðugert þetta að verkum. „Veiztu bara hvað, Len. Ég heyrði hana um daginn vera að taía við blómin i gróðurhúsinu, eins og þau gætu heyrt til henn- ar”, sagði Samantha við mann sinn dag nokkurn. „Finnst þér að við ættum að gera eitthvað i mál- inu?” „Hvernig i ósköpunum ætti ég að vita það. Ég hef ekki vitað til þess að það varðaði við lög að tala við blóm. Að minnsta kosti er það betra en margt annað, sem er að gerast i kringum okkur”. Og Len barði pipunni harkalega i forljót- an öskubakka, sem Samantha hafði gert á siðasta keramiknám- skeiði. Emilia var nú farin að leika á flautu i gróðurhúsinu, áður en hún fór i skólann á morgnana. Hún keypti allar fáanlegar bækur um orkideurækt og komst i bréfa- samband við orkideuklúbba um allan heim. Einn af nýju vinunum hennar var H.P. Tanner i Kaliforniu, en hún taldi mjög þýðingarmikið að tala við plöntur, já lika að syngja fyrir þær. Hún féllst á þá skoðun Emiliu, að væri söngröddin ekki góð, myndi flautuleikur gera sama gagn. „Það bætir skap þeirra og þitt llka, min kæra”, sagði Tanner. Plönturnar döfnuðu vel af allri þeirri alúð, sem þeim var veitt — ogeinn morguninn tók Emilia eft- ir litlum, brúnum sprotum, sem gægðust upp. Var hugsanlegt að þetta væru blóm? Hún fletti upp i nokkrum bókum og flýtti sér siðan aftur út i gróðurhúsið, til að athuga þetta nánar. Jú, það lék enginn vafi á þvi að orkideurnar voru farnar að blómstra. Alvöru orkideur, sem hún hafði sjálf ræktað. Þegar Emilia kom i skólann þennan dag, sáu börnin strax að eitthvað stórmerkilegt hafði gerzt. Hún var eins og annars hugar og ekki nærri eins eftir- tektarsöm og venjulega, og börn- in notfærðu sér þetta út i yztu æs- ar til saklausra prakkarastrika. En viðbrögðin voru ekki þau, sem börnin höfðu vænzt. Emilia var i sinum eigin hugarheimi, þar sem hún sá fyrir sér fyrstu verðlaun fyrir orkideur og bláa verðlauna- borða, sem prýddu veggina hjá henni. Eftir þvi sem orkideurnar döfn- uðu, óx metnaður Emiliu — og hún ákvað að skrá sig til þátttöku i blómasýningu i Doogalook. Harry Green hafði allt of lengi verið aðalstjarnan og það var kominn timi til að honum yrði veitt samkeppni og hann fengi að vinna fyrir verðlaununum. Emiliu fannst hún sjálfkjörin til að veita honum þessa samkeppni. Emilia skrifaði strax pennavin- um sinum og sagði þeim frá fyrir- ætlun sinni. Viðbrögð þeirra voru mjög uppörvandi og bezt var bréfið frá H.P. Tanner. Emilia fór að hugleiða hve ótrúlega ná- inn vinskapur gæti orðið i gegnum bréf. Ungfrú Tanner virtist alveg á sömu linu og hún — og þær höfðu orðið perluvinkonur strax i fyrstu bréfunum. Emilia skrifaði: „Ég hef trú á þvi að ein af plöntunum minum muni fara með sigur af hólmi á sýningunni. Ég hef auðvitað aldrei tekið þátt i neinu svona fyrr, og systur minar halda áreið- anlega að ég sé orðin meira en lit- ið klikkuð. En ég er alveg ákveðin i að rækta sigurblómið”. Timinn flaug áfram og eftir þvi sem nær leið blómasýningunni fór kviði að gera vart við sig hjá Emiliu. Litlu plönturnar döfnuðu ágætlega, en þær virtust ekki ætla að verða neitt sérstakt. Harry Green myndi áreiðanlega hafa fjöldan allan af fallegri blómum. Mestar áhyggjur hafði hún þó af sigurvoninni, orkideunni, sem hún hafði vonað að myndi slá öll- um öðrum við. Það hafði skyndi- Jéga dregið úr vexti hennar, þvert ofan i öll orkideulögmái. Nú hefði hún einmitt átt að vera i þann veginn að springa út. Eina manneskjan, sem hún hefði getað leitað ráða hjá var Harry —-en það var útilokað Kins og hún gæti farið til hans og sagt „Viltu hjálpa mér að örva vöxt hennar, svo hún blómstri i tima fyrir sýninguna, þvi þar á hun að sigra allar þinar'’” Orkideuræktun var aðalstarf Harry. Hjá henni var þetta aðeins tómstundagaman — eða var orki deuræktun kannski orðin lienm eitthvað meira? „Þær eru minar ær og kýr". sagði hún við sjálfa sig ..Kg hef eiginlega aldrei fyrr verið svona hamingjusöm. Bara ef þetta þetta krili vildi hlýða mér En „krilið” lét þetta engin áhrif á sig hafa. Knapparnir voru ekki á þvi að fara að opna sig, þótt allár orkideurnar i kring kepptust við að blómstra. Daginn, sem komið skyldi með blómin til sýningarinnar, vaknaði Emilia klukkan 5 og hljóp beint út i gróðurhús. undir venjulegum kringumstæðum hefði blóma- skrúðið heillað hana — en nú sá hún ekkert annað en „sigurvon- ina” og hún læddist að blómínu, eins og hún óttaðist að ónáða það. Það var eins og grænu blöðin, sem umluktu einn knappinn, væru að byrja að flettast frá, en þó ekki nóg til þess að hún gæti séð litinn á blóminu. Vonbrigðin virtust ætla að yfir- buga hana. öll eftirvæntingin var að engu orðin. Blómið ætlaði að springa út of seint fyrir sýning- una, þvi reglur kváðu á um að knapparnir ættu að vera vel út- sprungnir. „Doogalook-disin” hennar ómótstæðilega var of sein á sér. Hún klæddi sig hægt og rólega og eins og i leiðslu for hún i skól- Framhald á bls. 42 IStTKicUdj Úrvalsvörurnar frá Marks & Spencer fást í Gefjun Austurstræti, Domus Laugavegi 91. og hjá kaupfélögum um land allt. Fatnaöur á alla fjölskylduna. Vörurnar, sem eru þekktar og rómaöar um víða veröld. Framleiddar undir strangasta gæðaeftirliti. XSI Samband ísl. samvinnufélaga —\ ^ ! v NNFLUTNINGSDEILD ■i VIKAN 33

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.