Vikan - 16.05.1974, Síða 38
MORÐ A
SKURÐARBORÐI
Dr. Alice Wynekoop var þekktur læknir.
Hún var einnig viðurkenndur visinda-
maður og hafði vakið undrun og aðdáun
fyrir rannsóknir sinar á sviði læknisfræð-
innar. En ekkert af þessu varð henni til
bjargar, þegar hún var ákærð fyrir að
hafa myrt tengdadóttur sina, sem hafði
tekið eftirlætisbamið hennar frá henni.
Erfitt er aö ímynda sér, að
moröið á Rhetu Wynekoop,
fæddri Gardner, skuli hafa verið
framið á þessari öld. Enda á það
rætur slnar að rekja til hugsana-
gangs og tiðaranda aldarinnar
sem leið.
Rætur þess verða raktar til
hugsanagangs dr. Alice Wyne-
koops. Þessi þekkti læknir fæddist
I janiíar árið 1900 og faðir hennar,
dr. Albert Herbert Lindsay, ól
hana upp i ströngum viktoriönsk-
um anda. Heiður og æra fjöl-.
skyldunnar skiptu mestu máli I
augum föðurins.
Heimili Alice, sem dr. Lindsay
byggði utan við Chicago tveimur
árum áður en hiín fæddist, var
einnig i viktoriönskum stil. Það
stóð I sjötiu ár, áður en það var
rifið til þess að rýma fyrir skýja-
kljúfum. En siðustu átta árin,
sem það stóð, var ekkert lif að
finna innan veggja þess. Enginn
bjó þar og ógerlegt var að fá
leigjanda að húsinu. ógeðfelldar
minningar voru á sveimi i húsinu
og siðasti eigandi þess sat i fang-
elsi að afplána 25 ára dóm fyrir
eitt ógeðfelldasta morð, sem um
getur.
Alice valdi sér ung sama starf
og faðir hennar. Snemma fór að
bera á góðum gáfum hennar og
miklum dugnaði. Hún lauk
læknaprófi aðeins nitján ára að
aldri, en i stað þess að hefja al-
menn læknastörf, ákvað hún að
gefa sig að læknisfræðílegum
rannsóknum. 25 ára að aldri var
hún orðin sérfræðingur i barna-
sjúkdómum.
Þritug giftist hún hjartasér-
fræðingnum Frank Wynekoop.
Þau fluttu I húsið, sem faðir Alice
hafði byggt, og hún erfði, enda
varhún einkabarn foreldra sinna.
Dr. Alice Wynekoop ól þrjú
börn. Þegar þeir atburðir gerð-
ust, sem hér verður sagt frá, var
það elzta þeirra Walter, 28 ára,
Chatherine var 25 ára og það
yngsta, Earle, var 24 ára. Eldri
börnin tvö höfðu fetað i fótspor
foreldra sinna og orðið læknar.
En sá yngsti, Earle, var slæpingi
og mjög háður móður'sinni.
Árið 1959 missti Alice mann sinn
úr hjartaslagi. Sjálf var hún held-
ur ekki of heilsusterk. Hún þjáðist
fyrst og fremst af gigt. Hún átti
erfitt um hreyfingar og hún gat
ekki lengur framkvæmt hand-
lækningaaðgerðir. Hún lét form-
lega af störfum.
Eldri börnin, Walter og
Catherine voru gift og flogin úr
hreiðrinu, en Earle var enn
heima hjá móður sinni. Hann
eyddi miklu af tima sinum með
stúlku, sem hét Rheta Gardner og
var frá Indiana, þar sem hún
hafði verið kjörin fegurðardrottn-
ing. Hún var litil og grönn, en þó
var hún föngulegasta stúlka og
gædd miklum persónutöfrum.
Hjá Alice og Earle bjó fröken
Hennesey, sem var 49 ára að
aldri. Henni fannst Rheta ekki
vera rétta stúlkan fyrir Earle.
Alice lét sér standa á sama, þótt
Earle hefði aldrei verið I fastri
vinnu eftir að hann lauk mennta-
skólanámi.
öllum kemur saman um, að
Alice Wynekoop hafi verið mjög
mótfallin þvi, að Earle, eftirlætis-
barn hennar, gengi að eiga Rhetu
Gardner. Henni fannst eins og
fröken Hennesey, að Rheta væri
ekki rétta stúlkan fyrir Earle.
Earle Wynekoop var ekki undir
það búinn að stofna eigið heimili
með Rhetu og þegar móðir hans
bauð þeim að setjast að hjá sér,
þáðu þau það. Aður en varði, var
Earle farinn að leggja lag sitt við
aðrar stúlkur og það olli Rhetu
miklu hugarangri og gerði hana
stirðlynda. Hún rak upp öskur,
þegar hún hafði enga ástæðu til
þess og hún skellti alltaf hurðum,
þegar hún gekk um. Konan, sem
fór ekki fram á annað af Earle en
hann héldi sig heima á næturnar
og stofnaði með henni eigið heim-
ili, var orðin plága á honum.
Konan á skurðarborðinu.
Fjögur ár liðu. Foreldrar Rhetu
báðu hana um að koma heim til
þeirra og sækja um skilnað við
Earle. En Rheta afþakkaði boðið.
Hún vonaði enn, að henni tækist
að gera Earle að þokkalegum
eiginmanni.
Þannig var ástandið, þegar upp
komst um morð, sem kom öllum
Bandarikjunum til að standa á
Dr. Chaterine Wynekopp bar blak
af móður sinni bæði fyrir og eftir
réttarhöldin yfir henni. Hún vildi
ekki trúa þvi, að móðir hennar
hefði gert það. En hver hafði þá
drepiö Rhetu?
Dr. Alice Wynekoop var ákærð
fyrir morð að yfirlögðu ráði. Hún
var þekktur læknir og visinda-
maður, en þoldi ekki sambúð
eftirlætissonar sins og konunnar,
sem hann var kvæntur.
38 VIKAN