Vikan - 20.06.1974, Síða 28
PLOTUR
AÐ LANI
Bæjar- og héraðsbókasafnið í Hafnarfirði
hefur undanfarin ár lánað út hljómplöt-
ur. Nú hefur hljómplötudeildin fengið
stórbætta aðstöðu i nýjum húsakynnum
og Vikan fór á stúfana til að kynna sér
þessa starfsemi bókasafnsins.
Töluvert er um liöið siðan fyrst
var haft á orði að koma upp
hljómplötusafni i tengslum við
Bæjar- og héraðsbókasafnið i
Hafnarfirði, en ekki var úr fram-
kvæmdum þar til fyrir tiu árum,
að keypt var nokkurt magn eldri
hljómplatna með sigildri tónlist
og allar þær plötur islenzkar, sem
fáanlegar voru. Þær elstu eru frá
þvi rétt eftir aldamótin siðustu.
Tveimur árum siðar, eða árið
1966, var farið að lána út hljóm-
plötur i safninu. 1 fyrstu var úr-
valið litið, aðeins rúmar 150 plöt-
ur. En þessari nýbreytni var vel
tekið og plötusafninu óx fljótt
fiskur um hrygg. Þrengsli hafa þó
alltaf staðið vexti þess fyrir þrif-
um þar til nú, að Friðriksdeild
safnsins hefur fengið stærri og
fullkomnari húsakynni til afnota,
en þau voru formlega tekin i notk-
un rétt fyrir páskana. Teiknistof-
an Höfði teiknaði innréttingar
deildarinnar, sem er sérlega vist-
leg, og hafði Knud Jeppesen arki-
tekt yfirumsjón með uppsetningu
þeirra, en yfirsmiður var Jón Kr.
Jóhannesson.
Friðriksdeild er kennd við Frið-
rik Bjarnason tónskáld og söng-
kennara, sem lengst af starfaði i
Hafnarfirði, en hann ánafnaði
bókasafninu þar eigur sínar að
sér látnum. Friörik átti mikið
safn söngkennslubóka, bæði er-
lendar og allar islenzkar bækur af
þvi tagi. Auk söngkennslubóka
átti Friörik töluvert safn'nótna-
bóka og annarra tónlistarbóka og
eru þær allar varðveittar i Frið-
riksdeild ásamt húsgögnum Friö-
riks og konu hans og hljóðfæri
tónskáldsins. Bækur Friðriks eru
góöur og verðmætur stofn tónlist-
arbókasafni, en þær eru ekki fá-
anlegar að láni. Safngestir geta
þó fengið þær til aflestrar i sér-
stökum leskrók deildarinnar.
Bókakostur Friðriksdeildar hefur
lika veriö aukinn smám saman á
undanförnum árum, en þrengsli
hafa til þessa hamlað þeirri starf-
semi deildarinnar sem annarri.
Nú eru hljómplötur safnsins,
Hljómflutningstækin i Friöriks-
deild eru hin fullkomnustu og það
er ekki amalegt að láta fara vel
um sig við að hlusta á uppáhalds-
tónlistina sfna þar.
Lag Friöriks við ljóö Daviðs Ste-
fánssonar Abba-Iabba-lá er vel
þekkt og á hljóðfæri tónskáldsins
biasir við handritiö að þessu lagi.
28 VIKAN 25. TBL.