Vikan


Vikan - 20.06.1974, Blaðsíða 34

Vikan - 20.06.1974, Blaðsíða 34
Bill sá hóp af lögregluþjónum, þegar hann kom út af knæpunni. Hann flýtti sér til þeirra og þeir sögöu honum hvaö um væri að vera, — sögöust liklega neyðast til þess að láta strákinn fara meö gömlu konuna. Þeir sögðust ekki geta hætt á, að hann yrði kannski mörgum að bana. Hann gæti heldur ekki komizt langt og þeir myndu fljótlega hafa hendur i hári hans. Hann gæti ekki farið fljótt yfir meö gömlu konuna. Hann myndi trúlega myrða hana eða skilja hana eftir meðvitund- arlausa á einhverjum afviknum stað. Bill hlustaði á þá stundarkorn, svo smeygði hann sér inn i húsið og fór úr skónum. Loksins komst Tommy alla leið heim, en þegar hann fann húsið mannlaust og Depil lokaðan inni i eldhúsi, flýtti hann sér út aftur, með hundinn á hælunum. Mamma hans var að öilum lik- indum að svipast um eftir honum i rústunum og það gat verið að hún lægi þar einhvers staðar, kannski ósjálfbjarga og illa meidd. Þegar hann kom út var leigu- bifreið að renna upp að húsinu og út úr henni stökk maður. Það var faðir hans. Þeir horfðu stundar- korn hvor á annan, svo hljóp Tommy i faðm föður sins. David sagði: — Ég vissi að þú vildir mér eitthvað.... og þegar drengurinn varð niðurlútur, flýtti David sér að segja: — Það var alls ekki eins og þú hélzt, — ég var veikur, var búinn að liggja i rúm- inu i heila viku. Það var rétt svo, að ég gat staulazt til dyra, þegar þú hringdir.... Tommy ijómaði af ánægju og þrýsti sér fastar að föður sinum, en svo kom hann auga á allt fólkið á götunni, lögregluna og upplýsta glugga i verksmiðjunni. Tommy sagði vesældarlega: — Heldurðu að það geti verið mamma, þaö geti verið eitthvað að....? Og svo tóku þeir báðir til fót- anna. Bill þrýsti sér fast að veggnum og læddist upp stigann á sokka- leistunum. Hann var kominn upp á stigapallinn á annarri hæð, áður en nokkur maður tók eftir honum. Lögregluþjónn opnaði munninn til að segja eitthvað, en Bill benti honum að þegja og svo hélt hann áfram upp stigann. Hann var bú- inn að missa sjónar á lögreglu- þjóninum, en hann vonaði að hann hefði skilið hvað hann átti við. Hann smaug þetta áfram, þar til hann var kominn upp á loft- skörina, aðeins hálfum meter fyrir aftan Dellu. Hún hafði ekki einu sinni hreyft höfuðið, en hann vissi, að hún hafði tekið eftir hon- um. Hann lét sig falla niður á fjóra fætur og hélt sig fast upp aö veggnum. Kvalirnar i hnénu ætl- uðu alveg að gera úr af við hann. En hann fann, að hann gat hreyft sig hljóðalaust, rétt eins og mað- ur með báða fætur heila. Hann mjakaði sér áfram i skjóli við viða kápuna, sem Della hafði lagt lauslega um axlirnar. Bill var nokkurn veginn viss um að drengurinn sá hann ekki, frá þeim stað, sem hann stóð. Ef hon- um tækist aðeins að komast óséð- ur út að dyrunum.... Eitt ógnvænlegt augnablik hélt hann að hnéð ætlaði ekki að láta að stjórn, svo hann gæti ekki stað- ið upp. Hann fann svo mikið til, að það lá við að hann ræki upp óp. En svo var hann allt i einu staðinn upp, mit-t á milli drengsins og Dellu. Hann sá að höndin sem hélt á byssunni fór að titra og honum varð flökurt við að hugsa til þess, sem nú gæti skeð. En rödd hans var róleg og ákveðin. — Hlustaðu á mig, drengur minn, áður en þú gerir eitthvað, sem þú átt eftir að iðrast.... . Drengurinn kyngdi munnvatni. — Það er ekkert að tala um frek- ar. Ég er búinn að segja, að.... — En nú er ástandið annað, sagði Bill. — Þú þurftir að hafa auga með tveim konum, nú er það aðeins ein. Og meðan þú skýtur hana, ef þú skýtur hana, fleygi ég mér yfir þig. Og ég hefi i hyggju að ganga af þér dauðum. Drengurinn dró djúpt andann. — Þegið þú, þú ert ekki annað en vesæll krypplingur.... — Þú skalt reyna það, sagði Bill og hugsaði um leið: Fyrir- gefðu mér ungfrú Jenny, ég er að tefla á tvær hættur, leggja lif þitt i hættu. Röddin var skræk. — Þú þorir ekki. Það sem lögreglan þorir ekki.... — Lögreglan verður að fara að lögum. Bill sá skugga á hreyfingu bak við Sid. Bill flýtti sér að halda áfram. — Einstaklingar geta gert það sem ekki er á færi lögregl- unnar. Eins og þú sérð, þá hefur ástandið breytzt, og.... Frank lyfti sálmabókinni og sló Sid fast i höfuðið. Bill stökk fram. Kvalirnar i fætinum voru alveg að gera út af við hann, en hann fleygði sér á drenginn og þeir ultu um koll á gólfinu. Frank reyndi að ná byssunni af Sid, en gat ekki náð henni úr greipum hans. Frank datt yfir veika fótinn á Bill og hann var hræddur um, að hann missti meðvitund af sársauka. Hann fann að Sid var að reyna að snúa sig úr höndum hans og hann beitsig i vörina, til að hverfa ekki algerlega inn i meðvitundarleysið og hann gat kippt honum aftur niður á gólfið. Skotið hljóp úr byssunni. Drengurinn rak upp óp, snerist eins og ormur á gólfinu og svo lá hann grafkyrr. Dorrie þurrkaði sér um augun og snýtti sér. Lögregluþjónarnir höföu lagt fyrir hana óteljandi spurningar, sem hún reyndi að svara eftir beztu getu. Hún leit á lögregluþjóninn, sem varð eftir hjá henni. — Ert þú ennþá hérna i Laburnum Street? spurði hún. — Já, sagði hann. — Og þú get- ur verið ánægð yfir þvi. Ég var nefnilega rétt fyrir aftan herra Baxter og þess vegna sá ég greinilega allt sem gerðist og ég get borið það fyrir rétti, að bróðir þinn gerði allt hvað hann gat, til að hjálpa. — Ætlar þú virkilega að gera það? Dauft bros breiddist yfir tárvott andlit stúlkunnar. — Og heldurðu að það verði til að bjarga honum? ■ — Já, að sjálfsögðu. — En klikan, sem hann var að fela sig fyrir.... Ná þeir þá ekki i hann? — Þú skalt ekki óttast það. Við vinnum verk okkar vel hjá lög- reglunni. Má ég lita inn til ykk- ar.... kannski annað kvöld? Þá getum við talað betur saman um þetta. — Þeir sögðu að ég mætti heimsækja Shirley á morgun. — Þá hitti ég þig fyrir utan sjúkrahúsið og fylgi þér heim. — Ætlarðu að gera það? og I þetta sinn ljómaði brosið um allt andlitið. Lögreglumaður hjálpaði hon- um upp stigann og gekk svo flaut- andi niður aftur. Þegar augu Bills voru búin að venjast ljósinu, sá hann Beth, sem tók brosandi á móti honum. Það var eins og kvalirnar i hnénu hyrfu. — Hvers vegna léztu hann hjálpa mér hingað upp til þin? tautaði hann. — Þú verður að passa betur mannorð þitt stúlka min, þú ert hjúkrunarkona i hverfinu og verður að hafa ó- flekkað mannorð. Hún fékk honum ,glas með koniakslögg i. — Eftir það sem ég sagði og gerði, þegar ég hélt að þú værir dáinn, er vist mannorð mitt farið út i veður og vind. Nema þú kvænist mér. — Það get ég ekki, sagði hann hnugginn. — Ég hefi ekkert upp á að bjóða. Drengurinn hafði á réttu að standa, ég er ekki annað en aumkunarverður krypplingur. Og svo er ég lika orðinn mjög taugaveiklaður eft'ir slysið. Ég er lika bölvaður heigull.... Hún fór að hlæja. — Já, sér er nú hver heigullinn, sem gengur beint á móti byssuhlaupi, — hlað- inni skammbyssu! Þér batnar bráðum i hnénu. Eða þú venur þig við það. Og þótt þú eigir hvorki ibúð eða bil nú sem stendur, þá getum við lagt saman og sparað, til að geta keypt það með timan- um, er það ekki? Bill opnaði munninn, eins og til að segja eitthvað, en hætti svo við það. Hann dró Beth til sin niður á sófann, sneri ljósum hárlokk um fingur sinn og kyssti hana, lengi og innilega. Della var skjálfrödduð, þegar hún sagði: —- Þú heföir átt að segja mér það. Ef ég hefði vitaö, að þér var alvara, að reyna.... — Þú hefðir ekki trúað mér. Ekki i fyrstu, að minnsta kosti. Og þegar ég sendi þér peningana og þú endursendir þá.... — Það var vegná þess, að ég vissi að þeir voru frá móður þinni. Þú áttir enga peninga. — Ég seldi bilinn, sagði hann. Hún stóð lengi þegjandi. Hún vissi hve mikils virði þessi bill var honum. — Seldiröu bilinn? Til að senda okkur peninga? — Ég hefði aldrei átt að kaupa hann. Allt, sem þú sagðir, meðan við vorum gift, hefur veriö mér umhugsunarefni. Ég kvæntist þér, ég varð faðir Tommys og samt hagaði ég mér eins og sautján ára strákkjáni. Það skán- aði litið eftir að þú fórst frá mér, aö minnsta kosti ekki fyrst í stað. Þegar þú endursendir peningana, drakk ég mig blindfullan. Svo missti ég hvert starfið af öðru og þannig gekk það, þangað til fyrir rúmu ári siöan. Einn daginn slag- aði ég út af einni knæpunni og stóð þar i sólskininu. Þá sá ég þrjár manneskjur koma út af matbar. Foreldrarnir hefðu getað verið á okkar aldri og drengurinn á aldur við Tommy. Þau voru að tala um að fara i dýragarðinn. Hann gekk yfir gólfið og tók i hönd hennar. — Þau voru fjöl- skylda, Della. Frakki mannsins var slitinn og gamall, þau voru I litlum bilræfli, sem allur var beyglaður og skellóttur. En skyndilega varð mér ljóst hve rik þau voru. Og hverju ég hafði sjálfur kastað á glæ.... Della, gefðu mér eitt tækifæri ennþá.... Ég veit, að sjálfsögðu, að þú getur ekki elskað mig.... Hún hló og tárin runnu niður kinnar hennar. — 0, að elska! sagði hún. — Ég hef reyndar aldrei skilið til fulls, hvað ástin er i raun og veru. Það byrjar með þvi, að maður verður ástfangin, svo eru það gönguferðir i tungl- skini og kossar, en skyndilega verða þetta aðeins ógreiddir reikningar, uppþvottur og gleði- snauð tilvera.... En ástin er samt undirstaðan, aðeins ef maður hefur þolinmæði til að skynja það. Hann lyfti andliti hennar upp. Og þegar hann kyssti hana, var það eins og að koma heim eftir langa og erfiða ferð. Ungfrú Jenny lá vakandi og hlustaði á reglulegan andardrátt systur sinnar, sem lá við hliðina á henni. Gegnum sængina fann hún ylinn frá Tibby, sem lá ofan á henni. Hún hafði tekið svefntöfluna, sem systir Beth hafði látiö hana fá, en samt gat hún ekki sofnað. Hún lá þarna i myrkrinu og bros lék um gamlai^ varirnar. Þótt ég lifi það, að verða hundr- að ára, sagði hún við sjálfa sig, þá mun ég aldrei geta skiliö þetta. Sjálf var hún ekkert annað en gamla ungfrú Jenny, sem rölti um götuna með innkaupatöskuna sina, hún dekraði við systur sina og Tibby, hún sat með prjónana sina við sjónvarpið og horföi á Ashton-fjölskylduna. Og svo haföi hún, allt i einu, gengið út til aö drepa með köldu blóði. Lögregluþjónninn, Sá lág- 34 VIKAN 25. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.