Vikan - 20.02.1975, Blaðsíða 25
ina. „Við námum staðar —
Strindberg lagöi hendina á hand-
legginn á mér og leit inn i garð-
ínn. Þá sá hann eplatré, sem haföi
blómstrað viö hitann af eldinum.
Það stóð þarna eins og opinberun
innan um öskuna og eyðilegging-
una.”
Þessi atburður varð til þess, að
Strindberg tók að skrifa leikrit
sitt Branda Tomtén (Brunarúst-
in), sem sýnt verður i sjónvarp-
inu á sunnudagskvöldið. Af dag-
bók Strindbergs má ráöa, að hann
hóf að skrifa leikritið i janúar 1907
og kallaði það þá Varldsvaversk-
an. Hann lauk við samningu leik-
ritsins i byrjun mars.
Leikritið var fyrst sýnt i Intima
Teatren 5. desember 1907 og fékk
ákaflega slæma dóma gagnrýn-
enda. Þá var það aðeins sýnt sjö
sinnum.
25 ár liðu, áður en leikritið var
metið að verðleikum, en það
gerðist ekki fyrr en það var flutt i
útvarp i desember 1933.
I janúar 1946 setti Olof Moland-
er leikritið á svið i Stokkhólmi. Þá
skrifaði leiklistargagnrýnandinn
Sten af Geijerstamm §vo um sýn-
inguna : „Við vissum það fyrir, að
Molander er lagið að finna ljóð-
rænuna bak við mannfyrirlitning-
una. En aðhægt væri að vekja ká-
tinu meðal áhorfenda á Strind-
bergsýningu, gat engan grunað
fyrir....”
Siðan hefur leikritið verið sýnt
viða um heim, og þykir ekki gefa
öðrum leikritum Strindbergs
neitt eftir.
Norrtullsgatan 14 var i norður-
hlutaStokkhólms og þar i grennd-
inni var kráin Sista Spiken, þar
sem likvagnaeklarnir fengu sér
ölkrús á leiðinni úr kirkjugarðin-
um, og áður fyrr var siður, að
dauðadæmdir menn fengu þar
siöustu hressinguna á leið til af-
tökustaðarins. Stokkhólmur eins
og borginni er lýst i leikriti
Strindbergs, er Stokkhólmur
aldamótanna, Stokkhólmur
bernsku- og æskuára skáldsins
sjálfs. 1 leikritinu er lýst heim-
komu svia nokkurs eftir þrjátiu
ára dvöl vestan hafs. Þegær hann
kemur heim, er bernskuheimili
hans brunnið til grunna. Hann
reikar um æskustöðvamar og
minningarnar flykkjast að hon-
um. Hann hittir bróður sinn, litar-
ann Rudolf Valström, málara,
steinhöggvara, stúdent og fleiri,
sem hafa ýmist átt heima i húsinu
sjálfu, eða búa i nágrenninu.
Þennan efnivið notar Strindberg til
þess að sýna Stokkhólm aldamót-
anna og lif smáborgaranna þar. í
samtölum sinum kemst sá heim-
komni að þvi, að brunna húsið
hefur verið griðastaður afbrota-
manna og skúrka. I þessu leikriti
Strindbergs nýtur kaldhæðni hans
sin ákaflega vel — á stundum er
hann næstum gamansamur.
Með helstu hlutverk I sýningu
sjónvarpsins á Brunarústinni
fara Erland Jospehson (eigin-
Strindbergsleikritiö á sunnudagskvöldiö.
maöurinn I hjónabandsþáttum
Bergmans), sem leikur Arvid
Valström, þann heimkomna, Jan-
Erik Lindqvist leikur Rudolf Val-
ström bróður hans, Ulla Blom-
strand leikur konu Rudolfs, og
með önnur hlutverk fara þau Ar-
thur Fischer, Marta Ternstedt,
Bengt Eklund, Brittlouise Till-
bom og fleiri. Leikstjóri er Hakan
Ersgard.
John Wayne I ham.
Laugardagsmynd sjónvarpsins
heitir Leitarmenn og er banda-
risk frá árinu 1956. í henni segir
frá leit Johns Wayne og fleiri
kappa að beljuþjófum, og eins og
að lfkum lætur eru indjánar vald-
ir að hvarfi kvikfjárins. út úr
öllu saman verða náttúrlega bar-
dagar og heilmikill hasar. Meðal
þeirra, sem drepnir eru i mynd-
inni, er Debbie Edwards, sem
Natalie Wood leikur. Meðal ann-
arra leikara eru Jeffrey Hunter,
Vera Milés og Ward Bond.
Lifand túndra
Fimmti og næstsiðasti þáttur
fræðslumyndaflokksins Lifandi
veröld, verður sýndur á föstu-
dagskvöldið, og heitir hann Lif-
andi túndra. Þar er sagt frá
túndrunni i Alaska, þar sem allt
erhulið snjó á vetrum, og kuldinn
er svo mikill, að fátt lifir veturinn
af. En þegar vorar, breytist allt,
ísinn bráðnarog tundran logar af
blómaskrúði. Auk þess er dýralif-
ið ótrúlega fjölskrúðugt. Höfund-
ur þessa þáttar er Hugh Falkus.
Alison Fiske scm Helen i nýjum framhaldstnynduflokki, sem hefur göngu sina á þriöjudagskvöldiö.
8.TBL. VIKAN 25