Vikan - 20.02.1975, Qupperneq 44
Vinsælasta
hljómsveitin 1974
Eins og skýrt var frá i 6. tbl. var
hljómsveitin Pelican kosin vin-
sælasta hljómsveitin 1974. Af þvi
tilefni er hér birt litmynd af
hliómsveitinni, og er það von
þáttarins, að hinir fjölmörgu
aödáendur hljómsveitarinnar
megi njóta hennar bæði vel og
lengi.
Pelican erum þessar mundir i
Bandarikjunum við upptöku á
nýrri L.P. plötu, og mun hljóm-
sveitin einnig leika á hljómleik-
um og i klúbbum þar i landi um
þriggja vikna skeið. Frá þessu
hefur þegar verið skýrt ýtarlega i
dagblöðum og þvi væntanlega
óþarfi að rekja það nánar hér,
hvað hljómveitin hyggst taka sér
fyrir hendur.
Pelican hljómplatan
,,Uppteknir” varð lang söluhæsta
L.P. plata ársins 1974 og
jafnframt kosin viosælasta plata
ársins sem leið. Seldist piatan
hérlendis i tæpum átta þúsund
eintökum á s.Í. ári, og er það
algjört met. Og hún heldur áfram
að seljast á þessu ári. Til marks
um vinsældir laga hljómsveit-
arinnar, má nefna iagið A
Sprengisandi eftir Sigvalda
Kaldalóns. Það var eina lagið að
visu, sem ekki var frumsamið á
plötunni Uppteknir, en höfðaði
jafnframt til stærri hlustenda-
hóps en flest önnur lög hljóm-
sveitarinnar. Lagið þekkja allir
bæði ungir og aldnir, og skemmti-
leg útsetning Pelican á þessu lagi
vann þvi auknar vinsældir. Þetta
varð 3M var við strax s.l. haust,
þegar hljómsveitin Pelican lék
undir beru lofti fyrir utan hljóm-
plötuverslun i Reykjavik. Þá
staðnæmdust i hæfilegri fjarlægð
fjölmargir menn á sextugs- og
sjötugsaldrinum og lögðu við
hlustir. Þátturinn tök einn þeirra
tali og spurði svona, hvernig
honum litist á, og hvort hann
þekkti lagið sem leikið var. Hann
sagðist nú halda það og bætti við
með bros út i bæði munnvik, — og
mikið asskoti er það fjörugt
maður —. Þá spurði 3M, hvort
hann hefði áhuga á að eignast
plötuna og kvað hann margt
annaö ólfklegra, en bætti þvi jafn-
framt við, að þeir félagarnir á
Grund mættu ekki spila mjög hátt
á grammófóninn.
Þarna var greinilega komið
eitthvað, sem tengdi saman hina
eldri kynslóð og þá yngri. En á
næstu plötu Pelican verður
eingöngu um frumsamið efni að
ræða. Enn sem fyrr verður hún
hljóðrituð f Shaggy Dog stúdióinu
i Massachusets i Bandarikjunúm.
Hafa eigendur Shaggy Dog
jafnframt tekið að sér að kynna
tónlist Pelican og hljómsveitina
sjálfa i Bandarikjunum. Hins
vegar er um auðugan garð að
gresja i þeim bransanum i
Bandaríkjunum, svo við þvi má
tæplega búast, að hljómsveitin
nái nokkuð áleiðis þar i landi. En,
— það má jú alltaf reyna.
Þátturinn óskar Pelican til
hamingju með titilinn og óskar
þeim alls góðs á árinu 1975.
Þau fengu verðlaunin
Eins og sagt var frá í 6. tbl., var
verölaununum fyrir kosninga-
seöil með þeim 10 nöfnum, sem
lentu slöar i fyrsta sæti, deilt á
milli tveggja. Þau voru bæði úr
Reykjavik að þessu sinni: Bjarni
Jóhannesson, Laugarásvegi 43 og
Guðrún Andrésdóttir Tómasar-
haga 36. Þátturinn náði tali af
þeim I hljómdeild Faco, þar sem
þau veittu hljómplötunum
viötöku:
Guðrún er í 3ja bekk Verslunar-
skóla íslands og er 18 ára gömul.
Hún sagðist vera áskrifandi að
Vikunni og henni fyndist efni
blaðsins bara ágætt.3M stóðst að
sjálfsögðu ekki freistinguna að
spyrja um álit hennar á þættin-
um, og sagði hún, að hann væri
með ágætum, en félli raunar
dálítiö oft niður, en það var nú
ekki meira en þáttarritari vissi
þegar. (Það vilja nefnilega svo
margir skrifa í blessað blaðið og
svo eru það auglýsingarnar) Guð-
rún er á þeim aldri, sem tilfinn-
anlega vantar skemmtistaði og
aðspurð um, hvert hún færi að
skemmta sér, sagði hún að það
væri ekki um auðugan garð að
gresja hvað það snerti en aðal-
lega færi hún í skólann á böll. Hún
sagði einnig, að fyrir hennar
smekk vantaði algjörlega
skemmtistaði, þar sem fók gæti
komið og talað saman i rólegheit-
um og hlustað á músik, án þess
aö þar væri ærandi hávaði eins og
nú er á flestum skemmtistöðum
borgarinnar. Nú, Guðrún valdi
sér plöturnar með hjálp Steinars
Berg, verslunarstjóra hjá Faco.
Hún valdi sér Three Degrees og
nýja plötu með öðru söngtriói,
sem heitir Labelle. Að sögn
Steinars er sú plata á hraðri
uppleið á vinsældalistum vestan
hafs og alveg öruggt, að hún mun
verða vinsæl hérlendis innan
skamms.
Bjarni Jóhannesson er 14 ára og
stundar nám i 2. bekk Langholts-
skólans. Hann hlustar mikið á
plötur og á m.a. allar stóru
Islensku plöturnar, sem komu út
á s.l. ári. Honum fannst erfitt að
gera upp á milli platnanna, en
taldi þó, að Change platan væri
einna jafnbest, þegar farið væri
að hlusta á þær til lengdar.
Honum finnst lítið gaman að soul
músík og vildi fá að velja sér
góðar rokkplötur. Guðrún valdi
sér hins vegar soul plötur
eingöngu. Bjarni valdi1 sér nýj-
ustu plötuna með Rod Stewart, og
svo Tubular Bells með Mike
Oldfield.
3M vill þakka þeim kærlega
fyrir þátttökuna i vinsælda-
kosningunni, svo og öllum þeim,
sem sendu inn kosningaseöla.
44 VIKAN 8. TBL.