Vikan - 12.02.1976, Blaðsíða 7
NAFNMEIKIR
Elton hét áður Reg Dwight og
þótti það ekki nógu tilkomumikið
heiti á rokksöngvara, svo hann tók
upp skírnarnöfn tveggja félaga
sinna í enskri hljómsveit, sem
hann lék með á táningsárum,
þeirra Eltons Deans og Johns
Baldrys.
Eins og allir vita hét Muhammad
Ali áður Cassius Clay, en það þótti
honum ekki nógu áferðarfallegt
heiti eftir að hann gerðist blakkur
múslím, tók sér þá fyrst nafnið
Cassius X, vegna þess að hann
var einlægur aðdáandi Malcolms
X, og síðar nafnið Muhammad Ali
til að tjá lotningu sína fyrir
múhameðska leiðtoganum Elijah
Muhammad.
Einn bandarískur leikari hefur
breytt nafni sínu af pólitískum
orsökum. Sá er Charles Buchin-
sky, sem hét svo, uns hann
neyddist til að breyta Buchinsky í
Bronson, þegar svo hátt lét í
maccarthyismanum í Bandaríkj-
unum upp úr 1950, að meira að
segja nöfn með rússneskum blæ
urðu óvinsæl.
Viðhorf Cloris Leachman til
nafns síns er dæmigert fyrir yngri
leikara í Bandaríkjunum, og þó hóf
hún leikferil sinn fyrir 1950. Kvik-
myndaframleiðendur reyndu ítrek-
að að fá hana til að fórna nafni sínu
fyrir annað frumlegra, en leikkon-
an þvertók fyrir það og sagði: Ég
verð að vera ég sjálf — og ég heiti
Cloris Leachman.
Fleiri þættir hafa einnig stuðlað
að því, að nú þurfa leikarar ekki að
fórna skírnarnöfnum sínum á altari
frægðarinnar. Nú horfa til dæmis
fleiri á óþekktan listamann, sern
kemur fram í sjónvarpsþætti en á
Clark Gable á mörgum vikum,
áður en sjónvarp varð almenn-
ingseign. Hæfileikarnir ráða því
meiru en nafnið um það, hvort
áhorfendur muna seinna eftir
listamanninum. Þeir dagar eru því
liðnir, þegar Marion Morrison varð
STJÖRNUNAFNALISTI
STJÖRNUNAFN: RÉTT NAFN: STJÖRNUNAFN: RÉTT NAFN:
Fred Astaire Frederic Austerlitz Bing Crosby Harry Crosby
Natalie Wood Natasha Gurdin Eddie Cantor Edward Isskowitz
William Holden Wi/iiam Beed/e Cary Grant Archibald Leach
Lauren Bacall Betty Persky Judy Garland Frances Gumm
Sandra Dee Aiexandra Zuck Rita Hayworth Carmen Margarita Cansinc
Diana Dors Diana Fiuck Jean Harlow Har/ean Carpenter
Anne Bancroft Margarita Italiano Greta Garbo Greta Gustafson
Shirle MacLaine Shir/ey MacLean Beaty Carole Lombard Jane Peters
John Barrymore John B/ythe Gary Copper Frank James Cooper
Mary Pickford Gladys Mary Smith Betty Davis Ruth E/izabeth Davis
Joan Crawford Luciiie LeSueur Marilyn Monroe Norma Jean Baker
Mickey Rooney Joe Yule, Jr. Rhonda Fleming Mariiyn Louis
Stan Laurel Arthur Stanley Jefferson Marlene Dietrich Maria Magdalene Dietrich
Al Jolson Asa Yoelson John Wayne Marion Morrison
Mary Astor Lucille Langhanke Doris Day Doris Kappeihoff
Robert Redford Sama Kirk Douslas Issur Danielovitch
Cher Cheriiyn Sarkisian Karl Malden Mladen Sekulovich
Elton John Reg Dwight RobertTaylor Spangler Arlington Brough
BarbraStreisand Barb(a)ra Streisand Roy Rogers Leonard Slye .
Mary Tyler Moore Sama Tony Curtis Bernie Schwartz
Steve McQueen Sama Dean Martin Dino Crocetti
Marlon Brando Sama Jerry Lewis Joseph Levitch
Paul Newman Sama Rex Harrison Reginald Carey
James Caan Sama Ray Milland Reginald Truscott-Jones
Clint Eastwood Sama Boris Karloff William Henry Pratt
Elvis Presley Sama Mike Nichols Michael Igor Peschkowsky
Jack Nicholson Sama Rock Hudson Roy Fitzgerald
Telly Savalas Aristot/e (Teiiy) Sava/as Mike Connors Krekor Ohanian
Muhammad Ali Cassius Clay James Garner James Baumgarner
Elizabeth Taylor Sama Liberace Wladziu Valentino Liberace
Richard Burton Richard Jenkins Rudolph Valentino Rodolpho Alphonso Guglielmi
Valerie Harper Sama Di Valentina d'Antongueila
Cloris Leachman C(h)ioris Leachman at Castellaneta
Angie Dickinson Sama Gloria Swanson Josephine Swenson
Alan Alda Sama Woody Allen Heywood Allen
Charles Bronson Charles Buchinsky Julie Andrews Julia Welles
Dustin Hoffman Sama Glenn Ford Gwyllyn Ford
Burt Reynolds Sama Susan Hayward Edythe Marrener
Warren Beatty Warren Beat(t)y Kim Novak Marilyn Novak
Liza Minnelli Sama Debbie Reynolds Mary Frances Reynolds
Faye Dunaway Sama Edward G. Robinson Emmanuel Goldenberg
Ann-Margret Ann-Margret O/sson Omar Sharif Michael Shalhouz
Sophia Loren Sophia Scico/oni Lana Turner Julia Turner
Bob Hope Lesiie Townes Hope Loretta Young Gretchen Young
John Wayne, Erances Gumm
varð Judy Garland og Lucille
Langhanke varð Mary Astor.
Þegar 20te Century Fox sá hvað
verða vildi með nafnið Norma
Jean Baker, flýttu forkólfar kvik-
myndafyrirtækisins sér að upp-
nefna hana Marilyn Monroe, stað-
ráðnir í að gera hana að einstæðri
þokkagyðju. Þó þótti þeim mari-
lynnafnið ekki nógu gott á annarri
þokkadís, sem hét Marilyn Louis.
Hana skírðu þeir Rhondu Fleming.
Þegar Columbia gerði samning
við spænskættaða dansmey, sem
hét Carmen Margarita Cansino,
var seinna nafn hennar stytt, og
að eftirnafni fékk hún nafn vinnu-
konu móður sinnar. Árangurinn
varð Rita Hayworth.
Greta Garbo hét upprunalega
Greta Gustafson, Jean Harlow
Harlean Carpenter, Marlene Die-
trich Maria Magdalena Dietrich og
Gloria Swanson Josephine Swen-
son. Á fjórða áratugnum varð
Dino Crocetti Dean Martin og
Bernie Schwaertz Tony Curtis.
Og enn eru ótalin fjöldamörg
fræg nöfn — Charlie Chaplin,
Clark Gable, Spencer Tracy,
Humphenry Bogart, Erroll Flynn,
Tyrone Power, Gene Autry, Shir-
ley Temple, Laurence Oliver,
Henry Fonda, Lucille Ball, Kathar-
ine Hepburn, Gregory Peck, Burt
Lancaster, Cliarlton Heston og
Sidney Poiter. Hvað skyldi þetta
fólk eiga sameiginlegt? Jú, það
hefur aldrei heitið neitt annað.