Vikan - 12.02.1976, Blaðsíða 43
SUNNUDAGSEPLAKAKA.
Útbúið mördeig:
4 dl hveiti
1 tsk. lyftiduft
1—2 tsk. vanillusykur
1 1/2 dl sykur
1 egg
dál. sítrónusafi
200 gr. smjör eða smjörlíki.
Hnoðið degið rösklega saman og
látið bíða á köldum stað, áður en
það er flatt út og látið þekja form,
sem er ca. 25 cm. í þvermál. Setjið
hálf flysjuð epli, sem steinarnir
hafa verið teknir úr (ef eplin eru
mjög hörð þarf að hleypa upp á
þeim suðunni fyrst). Setjið inn i
175° heitan ofn í ca. 30 mínútur.
Þeytið létt saman 2 egg, 2 msk.
sykur og 1 1/4 dl rjóma og hellið
yfir, látið kökuna aftur inn í ofninn
og látið vera í ofninum, þar til
eggjakremið er stífnað. Berið fram
volgt með mjúkum vanilluís, rjóma
eða vanillusósu.
SUNNUDAGSBUFF.
Notið hakkað kjöt í þennan rétt.
Deigið má drýgja á margan máta,
Ld. með hökkuðum soðnum
kartöflum, einhverju mjöli, brauð-
rnylsnu eða þ.h. en annars er það,
sem ofan á er sett, aðalatriðið.
Steikið buffkökumar.
2 laukar eru skornir smátt og
steiktir mjúkir og 1/2 dós af
niðursoðnum tómötum látin
krauma með ásamt helmingnum
af vökvanum í dósinni. Bragðbæt-
ið með salti og pipar.
Buffið sett aftur á pönnuna og
dálítið af tómatblöndunni á hverja
buffköku. Síðan er gott að setja 1
Pk- af blönduðu frosnu grænmeti
á pönnuna, ásamt því sem ekki
komst ofan á sneiðarnar. Berið
fram með hrærðum eða soðnum
kartöflum eða hrísgrjónum.
H.H.HBHHr^
^'HHSrft!V%Bl
DROFN
FARESTVEIT
HUSMÆÐRAKENNARI