Vikan - 12.02.1976, Síða 29
RIANNE
Hvítt lcrcftsver hafði verið sett utan
um sængina. En Marianne hafði
ckki í hyggju að ganga til hvllu.
Hún byrjaði á því að kasta eldiviði
á glæðurnar og eldurinn lifnaði
skjótt við. Hann lýsti upp herberg-
ið og bægði frá drungalegum
skuggunum. Að þvl búnu gekk
hún að glugganum og dró frá
snjáð gluggatjöldin. Henni til
hrellingar sá hún að glugginn var
vandlegajokaður og meira að segja
hengilás fyrir honum. Morvan
ætlaði greinilcga ekki að tefla I
tvlsýnu. Hún fylltist vonleysi.
Nú myndi hún ekki gcta náð fundi
Jeans og óheillavænlegur morgun-
dagurinn beið þeirra beggja.
Hvernig átti hún að komast út?
Morvan hafði áreiðanlega lokað dyr-
unum og raunar fannst henni eins
og hún hefði heyrt lykli snúið
núna rétt áðan.
J
BENZONI
Þrátt fyrir bölsýnina gekk hún þó
yfir að dyrunum og lyfti lokunni,
en sleppti henni strax aftur. Ein-
hvcr fyrir utan var að snúa lykl-
inum. Marianne hörfaði hljóð-
laust aftur á bak og á sama andar-
taki opnuðust dyrnar. Fölt andlit
skraddarans birtist I gættinni.
Hann brá fingri upp að vörum
sér eins og til þess að róa Marianne.
,,Uss! Má ég koma inn rétt sem
snöggvast?”
Hún gaf honum merki um að
það væri I lagi og veitti því athygii,
að þcssi litli, sérkennilegi maður
talaði ágæta frönsku. Hann haltr-
aði yfir að viðarvcggnum þar sem
innbyggða rúmið var og opnaði
skáphurð. Er hann hafði fullvissað
sig um að enginn væri þar, snéri
hann sér að Marianne, sem horfði
furðu lostin á hann.
,,Hægra megin við hlöðudyrn-
ar,” hvíslaði hann, ,,munuð þér
finna glufu á veggnum. Þar er
lykillinn geymdur.”
,,Þakka yður fyrir,” sagði Mari-
anne, ,,en hvernig á ég að komast
út úr herberginu? Jafnvel glugg-
inn er harðlokaður.”
,Já, yðar, en ekki hinir og alls
ekki sá, sem er I vinnuhcrberginu
mínu. Hann er að vísu lítill,
cn þér eruð ekki fyrirferðarmikil
og hlaðan er þar beint á móti.”
Það var stutt þögn og Marianne
horfði á þcnnan litla kroppinbak
full undrunar. Augu hans leiftruðu
eins og tvær litlar stjörnur og hann
virtist vera heldur betur I essinu
sínu.
,,Hvers vegna gerið þér þetta
fyrir mig?” spurði hún. ,,Þér
vitið að ég ætla að flýja og böndin
munu berast að yður.”
,,Alls ekki. Hann mun halda að
madame Afbrýðissöm hafi hleypt
yður út. Hver færi llka að gruna
ómerkilegan skraddara um slíkt?
Og hvers vegna ég geri þetta...ja,
við skulum scgja að ég hafi gaman
að þvl að blekkja fólk, sem er
einum of sjálfumglatt, eða að ég
hafi mínar pcrsónulegar ástæður
fyrir því að hata Morvan lávarð.
En flýtið yður nú... ”
,,Mig langar að þakka yður aftur
fyrir hjálpina.”
,,Það er einum of snemmt.
Ég er ekki viss um að þér komist
undan, þ.c.a.s. ekki nema þér farið
e i n. ”
, ,Hvað eigið þér við?”
,,Það kemur á daginn. En hvað
sem öðru llður, þá mun ég koma
aftur fyrir dögun og læsa þessum
dyrum, hvort sem þér verðið komn-
ar aftur eða ekki. En ég ráðlegg
yður að skilja þetta Ijósa sjal eftir.
Það er of áberandi, jafnvel þótt
komið sé myrkur.”
Marianne tók af sér sjalið og gekk
yfir að einu rúmstæðinu, þreif þar
brúnt teppi og vafði því utan um
sig. Hún skalf bæði af gcðshrær-
ingu og vegna kuldans. Svo snéri
hún sér aftur að Perinnaic.
..Hvernig get ég endurgoldið
yður það scm þér hafið gert fyrir
mig?”
..Auðveldlcga!” I staðinn fyrir
brosið á ásjónu hans var nú kominn
grimmdarsvipur. ,,Sjáið til þess að
Morvan vcrði gerður höfðinu styttri
og þá hafið þér bætt mér það upp
þúsundfalt!”
Marianne reyndi að halda aftur
af skjálftanum sem fór um hana er
hún sá taumlaust hatrið I andliti
þessa kroppinbaks.
,.Ekki vcit ég hvcrnig ég get
komið þvl I kring. Ég veit ekki
einu sinni hvernig hann lltur út.”
,,Ekki ég heldur. En hann er
mjög oft að heiman og ég veit að
þá fer hann til Parísar. Þar hlýtur
hann að taka ofan grímuna. Reynið
að komast eftir þvl hver hann er og
cf vður tekst það, þá að koma hon-
um undir fallöxina, sem hann hefvr
skotið sér undan alltof lengi. Á
þann hátt munuð þér koma fram
hcfndum fyrir ótal vansælar sálir!
En farið nú. Ég hef þegar sagt of
mikið og orð geta dregið dilk á
cftir sér.”
M.arianne flýtti sér út úr herberg-
inu.' Perinnaic hafði fengið henni
mjótt kerti svo hún sæi betur til,
en hún þekkti vel leiðina að stóra
eldhúsinu og brátt var hún komin
þangað. Þar logaði cnn I eldstæð-
inu og birtan var það mikil, að
Mariannc slökkti á kertinu og skildi
það eftir á arinhillunni. Hún fór
inn I litla hcrbergið, skreið þar upp
á mjótt borð og bjóst til að opna
gluggann. Vonandi hrikti ekki I
honum. Hcnni til mikils léttis var
auðvelt að opna hann og ekkert
hljóð hcyrðist. Marianne hallaði
sér út um hann.
Það var hvasst úti og nóttin
var dimm, en augu hennar vönd-
sut fljótt myrkrinu. Við henni
blasti stórt hús, scm hlaut að vera
hlaðan. Tcppið Iþyngdi hcnni
og hún fleygði því út. Þvl næst
smcvgði hún sér I gcgnum glugga-
boruna. Það var rétt með herkjum
aðhenni tókst það og hún hruflaði
olivetti
EDITOR
rafritvélar
O VERÐLÆKKUN
Til á lager - Grelóskikjör <
5 MISMUNANDI LETURGERÐIR
EDITOR 3
rnlmoe' ^ Verófro kr. 98.740
EDITOR4
EDITOR 4c
H|á Olivotti á Islandi vinna skrifvélavirkjar - þjálfaáir hjá Olivettl erlendis.
Viá erum í símaskránni og veráum þar einnig á morgun.
alivetli
SKRIFSTOFUTÆKNI hf. Tryggvagötu - Box 454 - Síml 28511
7.TBL. VIKAN 29