Vikan - 12.02.1976, Qupperneq 39
Dúfnarækt
leikarans
Sandaríski kvikmyndaleikarinn Yul Brynner,
sem hefur einhvern frægasta skalla í heimi,
er löngu orðinn vellauðugur á leik sínum.
Peningunum hefur hann meðal annars varið
til að kaupa sér höll eina í Normandí,
þar sem hann ræktar dúfur. Hér er hann á
dúfnabúinu sínu, og ein dúfan hvílir sig á
heimsins frægasta skalla.
Afkomendur Indiru
Indira Gandhi er misvel þokkuð sem stjórn-
málamaður, en fjölskylda hennar dáist mjög
að henni. Synir Indiru búa heima hjá
mömmu ásamt konum sínum og börnum,
og þessi mynd er af Indiru, tengdadóttur
hennar og tveimur sonarsonum.
DÝRÐIN I ÍRAN.
í íran er október kallaður konunglegi
mánuðurinn, þar sem flestir prinsanna og
prinsessanna eiga fæðingardag í þeim mán-
uði. Og ekki má gleyma keisaranum sem varð
56 ára þ. 26. október s.l. og hélt upp á daginn í
viðhafnareinkennisbúningi í gylltum sölum
Golestan-hallarinnar, sem er eins og ævintýra-
hallir þúsund og einnar nætur.
í sumarhöll keisarafjölskyldunnar í Saadabad
hélt krónprinsinn Reza Cyrus upp á 15 ára
afmæli sitt þ. 31. október s.l. Öll fjölskyldan
var samankomin úti í guðs grænni náttúrunni,
og á persnesku teppi skar Reza afmælistertuna
fyrir foreldra sína og systkini.
Hirðin stendur oft á öndinni yfir uppátækjum
Reza, og foreldrar hans hafa áhyggjur af fífl-
dirfsku hans, því hann er með algjóra bíladellu
og flýgur sjálfur tveggjahreyfla flugvél. Hans
æðsti draumur er að fá að stjórna árásarflugvél
af gerðinni Mystere 20. Keisarinn vonar, að
Reza taki nú einhverjum sönsum á hátíðarárinu
1976 en þá verður mikið um dýrðir og
stórveislur í hverjum mánuði í tilefni 35 ára
valdasetu hans.
Stóryrt blaðakona
ítalska blaðakonan Oriana Fallaci er í hópi
þekktustu blaðamanna heims, og þau
stórmenni eru fá, sem hún hefur ekki rætt
við. Þó er hún kannski enn þekktari fyrir
ummæli sín um viðmælendur en fyrir skrif
sín um þá. í viðtali við bandaríska tímaritið
Time sagði hún, að Haile Selassie fyrrum
eþíópíukeisari, sem nú er allur, væri leið-
indakurfur og heimskingi, Henry Kissinger
utanríkisráðherra Bandaríkjanna væri einum
of svalur fyrir sinn smekk, og Cunhal
leiðtogi portúgalskra kommúnista væri
stalínisti, sem alls ekki kynni fótum sínum
forráð.
fíeza krónprins, í ermastuttri sportskyrtu, bauð
mömmu, pabba og systkinum sínum upp á
tertu á fimmtán ára afmælinu.
Í Go/estan-hö/linni tók keisarinn á móti
sendiherrum og öðrum gestum i tilefni 56 ára
afmælisins. Þeir dubba sig a/deilis upp í
afmælisboðunum í þvísa landi.
7. TBL. VIKAN 39