Vikan - 30.09.1976, Síða 2
40. tbl. 38. árg. 30 sept. 1976
GREINAR:
2 Banani á Grsenlands grund. Sagt frá dagsferð til Græn- lands.
16 Stjörnuspeki kínverja.
25 Gyðjur og goð ungdóms- áranna.
VIÐTÖL:
14 Káta Kata — skiptinemi frá Bandaríkjunum.
SÖGUR:
20 Snara fuglarans. Þrettándi hluti framhaldssögu eftir Helen Maclnnes.
28 Hin konan. Fjórði hluti fram- haldssögu eftir Doris Lessing.
34 Mummi og krónan. Áttundi hluti framhaldssögu fyrir börn eftir Herdísi Egilsdóttur.
36 Glímumaðurinn. Smásaga eft- ir Ernest Hemingway.
FASTIR ÞÆTTIR:
7 Poppfræðirit Vikunnar í umsjá
Halldórs Andréssonar.
9 Krossgáta.
11 í næsta blaði.
12 Póstur.
,19 Meðal annarra orða.
24 Tækni fyrir alla.
26 Á fleygiferð í umsjá Bjarnasonar. Árna
30 Stjörnuspá.
40 Draumar.
42 Eldhús Vikunnar í Drafnar Farestveit. umsjá
BLADAUKl
HANDAVINNUSYRPA Á
ÁTTA SÍÐUM.
6RÆMUIM
Hefur þú aldrei sagt við sjálfan
þig, þegar þig hefur langað til að
fara eitthvert, hvert get ég farið,
sem ég hef ekki farið áður?
Hvernig væri til dæmis að reyna
dagsferð til Grænlands?
Fjölskylda mín og ég vorum svo
heppin að komast með í Græn-
landsferð dag einn á síðastliðnu
sumri og fórum frá Reykjavík
klukkan eitt eftir hádegi. Við
lentum á Kulusuk klukkan tólf á
hádegi, en það er vegna þess, að
þar eru þeir þremur klukkustund-
um á eftir okkur. Ferðir þessar eru
farnar á tímabilinu frá 2. júní til 16.
september, og er flogið á mánu-
dögum, miðvikudögum og
fimmtudögum. Auk þess er flogið
aukalega, sé þess óskað af hóp-
ferðamönnum.
Flugferðin tekur tvær klukku-
stundir, og á þeim tíma er einu
sinni borinn fram kaldur matur á
plastbakka. í flugvélinni, sem var
af gerðinni Fokker Friendship og
tók 44 farþega, var hægt að kaupa
áfengi og tóbak á heimleiðinni.
Ferðamennirnir koma einkum frá
norðurlöndum og Þýskalandi,
enda hafa þeir einir efni á ferðum
sem þessum, og er þeim þjónað af
tveimur flugfreyjum. Ferðin kostar
25.345 fyrir manninn, og er flug-
vallargjald ekki innifalið. Fyrir hjón
með tvö börn kostar ferðin sumsé
sjötíu og fimm þúsund krónur.
Alvag hræbillegt — eða hvað?
Þegar komið er yfir Kulusuk er
flogið í stóran hring umhverfis til
þess að leyfa fólkinu að njóta
útsýnisins, og er óhætt að full-
yrða, að það útsýni er alveg
einstaklega fallegt. ís svo langt
sem augað eygir og fyrir ofan
heiðblár himinninn.
Þegar véiin hafði lent stigum við
út í skínandi sólskinið, en okkur
brá heldur betur í brún, þegar við
fundum kuldann. Það var aðeins
þriggja stiga hiti, sem við vorum
alls ekki búin undir að þola, svo að
okkur varð strax kalt. Þegar við
stigum út úr flugvélinni, fengum
við einn banana hvert, ég veit ekki
hvers vegna, því að þarna voru
engin tré til að sveifla sér í.
Jæja, nú var lagt af stað í
heillanga gönguferð, klukkustund-
ar gang um grænlenska náttúru.
Landslag er ekkert frábrugðið
landslagi á islandi uppi á öræfum,
melar, stórgrýtisurðir og allt að
hnédjúpur snjór. Ekki er hægt að
segja, að leiðsögumaðurinn hafi
sniðið ferðahraðann eftir ferða-
mönnunum, því að eftir skamma
stund var eldra fólkið farið að
dragast aftur úr. Við áðum nokkr-
um sinnum til að láta þreytuna líða
úr fótunum, og í hvert skipti
þyrptust börn að okkur, sem vildu
selja okkur muni úr perlum og
beini og alls kyns dót. Sumir
ferðamannanna gáfu krökkunum
sælgæti og ávexti, sem þeir tóku
við með mikilli ánægju. Við gáfum
lítilli telpu banana, og hún borðaði
hann með hýði og öllu saman.
Fyrst hljóp hún þó til mömmu
sinnar og sagði henni frá.
Börnin þyrptust að eins og mý að.
mykjuskán, og oft varð okkur um
og ó. Sum þeirra voru í skóm af
sinni hvorri gerðinni, buxum og
jökkum, sem ýmist voru of stórir
eða of litlir, og engu þeirra var
vanþörf á baði. Það er þó hægara
sagt en gert, því að engin eru
böðin í híbýlum þeirra.
Þegar við nálguðumst þorpið,
tókum við eftir því, að þar voru
leiði á víð og dreif um allt.
Skýringin á þeim er sú, að
grænlendingar grafa hina látnu þar
sem hægt er, því að bæði er
jarðvegurinn grunnur víðast hvar,
og svo fer frost afar seint úr'jörðu,
fari það nokkurn tíma. Viðkunnan-
legt, finnst ykkur ekki?
Nú vorum við komin inn í
þorpið, sem kallað er Kap Dan.
Þetta er lítið þorp, en þar sáum við
mikið af konum og börnum, fáa
karla. í þorpinu er lítil kirkja, lítiö