Vikan

Eksemplar

Vikan - 30.09.1976, Side 10

Vikan - 30.09.1976, Side 10
Orkukreppan vofir yfiri Bráft verða orkulindir jarðarinnar upp urnar. Sífellt verður mönnum Ijósari þörf þess að virkja sólarorkuna, sem stöðugt hellist yfir jörðina. Á hverju ári berst okkur orka utan úr himingeimnum, sem jafngildir 400 trilljónum kíló- wattstunda, og við höfum hingað til ekki hirt um að nota. Þessi orka er 50.000 sinnum meiri en sú raforka, sem notuð hefur veriö í heiminum samanlagt síðastliðin fimmtíu ár. En í kjölfar geimrannsókna hafa augu manna opnast fyrir því að einnig má virkja sólarorkuna á jöröu niðri. Sólarorkubreytir með tveggja fermetra flatarmáli framleiðir næga orku til að knýja sjónvarpstæki, og 15-20 fermetrar sjá fyrir allri þeirri orku sem eitt heimili þarf að nota. Oftast nær eru sóíarorkuþreytar búnir til úr fjölda lítilla kisilplatna sem unnar eru á sérstakan hátt. Þegar sólin skin á þær hlaðast þær rafspennu. Á þennan hátt má nýta 10 hundraðshluta þeirrar orku, sem býr í sólarljósinu. ÍT Nú þegar & viða iiarin virkjun sólarljóss tií rafmagnsframleiðslu. Á fjallatoppum í kring um flugvöllinn í Medina í Saudiarabíu eru sólknúnir vitar, sem leiðbeina flugmönnum í myrkri og vara þá við hættum. Texti: Anders Palm. Ekici er nýting sólarorku jafn auðveld hvar sem er á jörðinni. Við norðurpól verða sólarorkubreytarnir að vera fjórum sinnum umfangsmeiri en viö miðbaug eigi þeir að skila sömu orku vegna þess að þar er birtumagn sólarljóssins mun minna. Framfarimar i Á DAGINN ER SÓLARORKU BREYTT Í RAFORKU OG SETT Á RAFGEYMA nýtingu sólarljóss eru nú mjög hraðar og á síðastliönum árum hefur kostnaðurinn við orkufram- leiðslu minnkað stórlega vegna aukinnar vitneskju og tækni. Enn eru tlestir vitar búnir gasljósum, sem hafa þann leiða ókost í för með sér að skipta þarf um gaskúta með jöfnu millibili. Ekki er það þó einhlitt því að verið er að gera tilraunir með sólknúna vita, og lofa þær góðu. Þeir hafa reynst rnun betur þar sem veðurguðir eru hliðhollir, og ekki þarf að vitja þeirra ^Tlerrra^frrtrTTtai^ve^t^n-tf^•v^ðhalds:■■ ýý¥ta'söldfífhá dælústöðTh’héfur ny1éga”verið iékin" I notkun skammt utan við Dakar, sem liggur undan vesturströnd Afríku. Að vísu kostaði hún sem svarar 4,2 milljónum króna, en á hverjum sólardegi dælir hún ókeypis 15.000 litrum af vatni upp í tuttugu metra hæð. Teikningar: Sune Envall. ttmmiá

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.