Vikan - 30.09.1976, Side 11
fvií -CTil I
pS/ • >
<’v 1
LM
■S,
í
^£Í\\b
í NÆSTU lflKU
ÞEGAR AUSTRIÐ OG VESTRIÐ
MÆTAST
Mörgum er enn I minni, þegar Anna Geirsdóttir var
kjörin önnur fallegasta stúlkan í keppninni ,,Ungfrú
alþjóð” árið 1962, en eftir það ferðaðist hún vlða um
hcim og vann við fyrirsætustörf, kvikmyndaleik og
fleira. Hún fékk sérstakt dálæti á Filippseyjum, og þar
kynntist hún eiginmanni sínum, Justiniano ,,Ning” de
Jesus. Vikan hcimsótti þau Önnu og Ning og sjö ára
dóttur þeirra, Níní, en þau hafa búið hér á Islandi
síðastliðin tvö ár. Viðtalið birtist í næstu Viku.
ÁSTIR KÍNVERJA 1976
A eyjunni Formósu er gifting undarlegt sambland
gamalla hefðaog nýrrasiða. Foreldrarnir ráðamakavali, en
ekkert er sagt við því, þótt kærustuparið taki forskot á
hjónabandssæluna, svo framarlega sem ekki fylgja
óæskilegar afleiðingar í kjölfarið. J il þess að kynnast
þessu nánar skulum við bregða okkur I brúðkaupsveislu
þangað austureftir og fylgjast með tilhugalífi og giftingu
þcirra Shan og Chung. Sjá næsta blað.
HVAÐ ER SMJÖRLIKI?
Neytendur velta eflaust fæstir vöngum yfir því, hvernig
þær verða til, vörurnar, sem við kaupum og notum
daglega. Hvernig er til dæmis smjörlíki búið til? Er það
kannski búið til ur hveitijafningi og blandað slatta af
smurolíu? Eða er það lituð koppafeiti með pipar og salti
saman við? I traustir þess, að fleiri væru forvitnir um gerð
smjörlíkis en við hérna á Vikunni, fórum við á stúfana og
heimsóttum smjörlíkisverksmiðju. I næsta blaði segir af
þeirri heimsókn.
SMÁSAGA EFTIR JOHAN BORGEN
Smásögur eru eitthvert vinsælasta efni Vikunnar, og oft
höfum við fengið óskir frá lesendum um að hafa fleiri
smásögurt hverju blað. En á meðan blaðið er ekki stærra en
það er núna, verðum við að láta okkur nægja eina sögu t
hverju blaði. I næstu Viku birtist sérstæð og hugljúf
smásaga eftir einn kunnasta rithöfund norðmanna,
Johan Borgen.saga um litla stúlku og lítinn dreng. Sagan
heitir Jórunn og Litlibróðir .
VIKAN Otgefandt Hilmir h.f. Ritstjóri: Kristín Halldórsdóttir. Blaðamenn: Trausti Ólafsson,
Guðmundur Karlsson, Ásthildur Kjartansdóttir, Halldór Tjörvi Einarsson. Otlitsteiknari: Þorbergur
Krtstinsson. Ljósmyndart: Jim Smart. Auglýsingastjóri: Ingvar Sveinsson. Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla
og dreifing Síðumúla 12. Símar 35320-35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 300.' Askriftarverð kr.
3.350 fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, kr. 6.320 fyrir 26 tölublöð hálfsárslega eða kr. 11.700 í ársáskrift.
Áskriftarverð greiðist fyrirfram. Gjalddapar: nóvember, febrúar, maí, ágúst.
40. TBL. VIKAN 1 1