Vikan

Eksemplar

Vikan - 30.09.1976, Side 17

Vikan - 30.09.1976, Side 17
KÍNVERJA Ár uxans 31. jan. 1889 -20. jan. 1890 19. febr. 1901- 8. febr. 1902 6. febr. 1913-25. jan. 1914 25. jan. 1925-12. febr. 1926 11. febr. 1937-31. jan. 1938 29. jan. 1949-16. febr. 1950 15. febr. 1961-4. febr. 1962 3. febr. 1973 -23. jan. 1974 Skapgerðareinkenni. Uxinn þarfnast mikils öryggis — fjárhagslegs, tilfinningalegs og yfirleitt alls þess öryggis, sem hægt er aö gera sér ( hugarlund. Ef hann hlýtur það og þarf ekki að hafa áhyggjur af öllum sköpuðum hlutum, þá er hann einstaklega traustur og áreiðanlegur. Flestir uxar hafa djúpa þörf fyrir að skapa eitthvað, hvort sem það nú er listaverk, fyrirtæki eða heimili. Hann hefur næmt auga fyrir smáatriðum, en er ekki gefinn fyrir að breyta út af vananum. Uxinn getur veriö mjög þumbaralegur og sjálfselskur og ætti að reyna að hamla gegn slíku. Hann er mjög mannblendinn og vill gjarnan ráða yfir fólki. Steinar uxans eru agat, emer- ald, kórall, jaöi, alabastur og lapis lazuli. Þekktir uxar eru t.d. Willy Brant, Adolf Hitler, Walt Disney, Van Gogh, Renoir, Charles C^plin, Peter Sellers, Richard Burton og Rudyard Kipling. Með öðrum: Með öðrum uxum: Traust sam- band, og þeir geta hlegiö saman. Með rottum: Viðfelldið samband, en örlyndi þeirra getur ruglað uxann, og honum finnst þær ekki nógu stefnufastar. Með tígrisdýrum: Þau geta brennt uxann upp til agna með reiði sinni, ákafa og óánægju, en hann á samt erfitt með að verjast aðdráttarafli þeirra. Með köttum: Fyrirtaks samband, ekki síst ef um fjölskyldutengsl er að ræöa. Ef viðskipti eiga I hlut, þá vantar allan kraft. Með drekum: Andleg leikfimi þeirra heillar uxann, en hver lætur undan, ef ágreiningur vsröur? Enginn! Með snákum: Hér er mjög gott samræmi, ekki slst á milli hjóna. Þau virða vald hvors annars og líður vel saman. Með hestum: Ágætt samband, ef viðskipti eiga í hlut, en það vill skorta á tilfinningalegt sam- band. Ágætir drykkjubræður! Með geitum: Gæti verið fyrirtaks dæmi um ást og hatur! Það er eitthvað viö geitina, sem heillar uxann, en það er líka eitthvaö, sem hrindir honum frá. Með öpum: Þeir eru allt of klókir, og framkoma þeirra er of kæru- leysisleg. Með hönum: Ágætt samband, ekki sfst í ástamálum. Með hundum: Geta orðið góðir vinir, ef þeir leggja hart að sér. Með svinum: Lofar góðu, þvl svín og uxar eiga margt sameigin- legt. Aðal vandinn er sá, að þau eru of viðkvæm fyrir göllum hvors annars. Ár tígrisdýrsins 21. jan. 1890 -8. febr. 1891 9. febr. 1902-28. jan. 1903 26. jan. 1914-13. febr. 1915 13. febr. 1926-1. febr. 1927 I. febr. 1938-18. febr. 1939 17. febr. 1950 - 5. febr. 1951 5. febr. 1962-25. jan. 1963 24. jan. 1974-10. febr. 1975 Skapgerðareinkenni. Tígrisdýrið er í eðli sínu hlýtt og mjög aölaöandi og safnar því að sérfjölmörgum aðdáendum, en án þeirra hættir því til að verða kaldhæðið og óhamingjusamt. Það er oft ákaflega hégómlegt og hefur mikið álit á sjálfu sér. Tígrisdýrið er kjarkmikið, hreinskil- ið og óhrætt við að taka áhættu, þegar um gott málefni er að ræða. Það er mjög fljótt að skipta skapi, og vill vera foringi hvar sem það er statt. Því hættir til að leika sér að tilfinningum annarra. Oftast er það samt bæði kátt og vingjarn- legt. Árssteinar tígrisdýrsins eru rúbin, demantar og kattarauga. Þekkt tígrisdýr eru t.d. Dwight D. Eisenhower, Charles de Gaulle, Anna bretaprinsessa og Elísabet II, Karl Marx og H.G. Wells. Með öðrum: Með öðrum tígrisdýrum: Eins og tveir einvaldsherrar — í besta falli sameinaðir gegn heiminum, í versta falli alltaf að reyna aö bera hvort af öðru. Með rottum: Hér gætu orðið margir árekstrar vegna skap- geröareinkenna. Með uxum: Tígrisdýrið hefur gam- an af aö sýna sig fyrir þeim, en þegar til kastanna kemur fyrir- lítur það þá... eða öfundar þá í laumi. Með köttum: Ekki margt sameig- inlegt, en þaö er einmitt ástæð- an fyrir því, hvað þau laðast hvort að öðru. Tígrisdýrinu finnst kötturinn þægilegur og móðurlegur. Með drekum: Þau eru sitt á hvorri bylgjulengdinni, en geta samt starfað prýðisvel saman. Þau virða vilja hvors annars. Með snákum: Hérgengur á ýmsu, og mörg verða deilumálin. Vin- átta er samt möguleg, ef stoltið stendur ekki í veginum. Með hestum: Þau eiga fjölmargt sameiginlegt, en þó er nógu mikill munur til að tigrisdýrið fái áhuga. Hestar og tígrisdýr eiga prýðisvel saman. Með geitum: Hér er ekki margt, sem tengir, en þó gæti orðið ágætt samband í vinnu. Geitur eru góðir undirmenn tígrisdýra. Með öpum: Tígrisdýrið heillast mikið af fjöri þeirra, þó þeir komi oftast svolítið háöskt fram við það. Með hönum: Mikil samkeppni, en það gæti vakið aðdáun í stað haturs. Saman eru þau einum of mikið af því góða. Með hundum: Auðvitað vill tígris- dýrið ráða, en það getur öðlast mikla visku frá hundinum, ef það gefur sér tíma til að læra. Með svinum: Hér virðast ekki vera mikil tengsl á milli. Þó geta þau unnið saman að ákveðnu verk- efni, en fá fljótlega leiða hvort á öðru. 40. TBL. VIKAN 17

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.