Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 30.09.1976, Qupperneq 23

Vikan - 30.09.1976, Qupperneq 23
Krieger ók^bílnum varlega út á auða götun^ Er hann var kominn fyrir homið, jók hann hraðann og ók í suðurátt. Hann gat ekki losað sig við óþægilegar hugsanir sínar. Jo hlaut að hafa sýnt kæruleysi og þess vegna tókst Ludvik að elta þau til Diimstein. Eða hitt að Dave hefði verið of upptekinn af Irinu og ekki tekið eftir bil, sem elti þau frá DUmstein til Graz. Milan og Jan höfðu verið sendir flugleiðis frá Vín og þeir vissu nákvæmlega hvar Irinu var að finna. Þeir vissu meira að segja um Chryslerinn. Svikari var á meðal þeirra. Á því lék enginn vafi. Þjóðvegurinn var greiður yfir- ferðar. Beggja vegna voru litlar verksmiðjur og kassalaga hús. Inn- an við glugganan sat fólk í dauflega upplýstum stofunum og horfði á sjónvarp. En svo varð þessi hálf- myrkvaða byggð dreifðari og við tóku akrar, bóndabýli og skógar. Vegurinn lá til hægri í vesturátt og það var mjög lítil umferð. Krieger jók hraðann. Aktu varlega, sagði hann við sjálfan sig, láttu ekki reiðina taka af þér ráðin. Eða kannski var heppilegast, að hann fengi útrás einmitt núna, áður en hann kæmi til Lienz. Svikari, hugsaði hann. Megi eldtungur hel- vítis leika um hann að eilífu. Krieger hafði alltaf kunnað vel við sig í Lienz. Þetta var gömul borg og lá í miðju landbúnaðarhér- aði og umhverfis vom akrar, hæðar- drög og skógar. Meðfram þröngum götunum vom verslanir fullar af vamingi, sem var framleiddur í hémðunum í kring. Þama gat að líta einfaldan mat, ódýr vín, Týróla- jakka, kotroskna hatta, skrautleg leðurbelti, skokka með víðum pils- um og útsaumuð sjöl. Hér var ekki beinlínis verið að tæla til sín ferðamenn. Þarna vom líka búðar- gluggar fullir af alls kyns skotfær- um, byssum, rifflum og veiðihmf- um. Fólk lifði hér háttbundnu lífi og hélt sínu striki. Flestir vom komnir snemma í háttinn og vom hálfnaðir með nætursvefninn á miðnætti. Á götunum var slangur af fólki, sem reikaði stefnulaust um, liklega að liðka sig eftir akstur dagsins og anda að sér fersku lofti óður en það gengi til náðar. Á gamla markaðstorginu, sem var óreglulegt í laginu var urmull af bílum með erlendum skrásetningar- númemm, hver og einn reiðurbúinn að aka aðrar þrjú hundmð mílur næsta dag. Kriegerlagði Chryslem- um, tók síðan tösku sma og rykfrakka og skáskaut sér mn á milli bílana. Hann svipaðist um eftir hvítum Fíatbíl með skrásetn- ingamúmeri Grazborgar. En hann kom aðeins auga á þrjá af þessari tegund. Einn var frá Milano, annar frá Genf, en sá þriðji frá Róm. Ef tékkamir vom á annað borð komn- ir hingað, höfðu þeir sjalfsagt lagt bilnum sínum annars staðar. En honum sagði svo hugur, að ef þeir vissu hvert ferð Davids vœri heitið, þá vissu þeir líka nafnið ó hótelinu. Þetta vom tveir þreyttir ferðalang- ar og það var því eins líklegt að þeir myndu leggja bilnum sínum eins nálægt Die Forelle og unnt væri, enda myndi hann vera þar vel geymdur innan um alla hina bílana. Og allt í einu kom hann auga á hvítan, dálitið rykugan Fíatbíl með skrásetningamúmeri Grazborgar. Krieger fór sér að engu óðslega, en gekk í áttina að kránni, sem var rólegur og friðsæll staður. Ef ekki hefði verið þessi hvíti Fíatbill frá Graz, hefði hann getað eytt nóttinni þama i friði og ró. Eitt var þó til bóta, að hann kom hvergi auga á bíl Mennerys. Dave virtist vera var- kárari en þessir tveir mstar frá Prag. Fyrir ofan dyrnar á krónni var skilti og á því var mynd af silungi að bylta sér í vatnsskorpu. Krieger gekk inn í anddyrið. Þama var svipað um að Utast og fyrir tveimur árum og Krieger gekk eftir vel bónuðu gólfinu yfir að gestamóttökunni. Veggimir vora viðarklæddir, ljósin dempuð, en skrautgripir úr látúni prýddu vegg- ina. Og svo vom það auðvitað blómin, enda var þetta í Austur- Tiról. Ilmur af kjötkóssu úr vilU- bráð lá i loftinu. Fyrir innan borðið sat miðaldra maður. Hann lagði frá sér gestabók- inar og hóf þungan líkama sinn upp úr stólnum. Hann gekk virðulega að borðinu og grár ullarjakki hans með grænum kraga og hnöppum úr hreindýrahomi gerði hann enn til- komumeiri. Engum gat dulist hver hér réði húsum. Hann hafði heldur ekkert breyst á þessum tveunur ámm, sömu skarpskyggnu augun og vingjamlega brosið. Krieger mundi eftir öllu i sambandi við þennan mann nema nafninu. Já, ég er þreyttur, hugsaði Krieger, og svangur. Hann lét töskuna fró sér á stól og brosti. „Verst að klukkan skuh vera orðin svona margt og búið að loka eldhúsinu,” sagði hann ísmeygilega. ,,Já, mér þykir það leitt,” sagði maðurinn, formfastur og ákveðinn. „Auk þess em öll herbergi frátek- in.” Hann benti á gestabókina, sem var full af nöfnum. „Líka litla setustofan, sem þér grípið til, ef í nauðimar rekur?” Kringluleitt, rjótt andlit manns- ins leit upp úr gestabókinni og horfði nánar á Krieger. „Aaaa,” sagði hann svo, „fyrir tveimur ámm? Herr... Herr Krieger?” „Rétt er það.” „Frá Sviss?” Framhald í næsta blaði. 40. TBL. VIKAN 23

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.