Vikan

Útgáva

Vikan - 30.09.1976, Síða 29

Vikan - 30.09.1976, Síða 29
— Jú, ég treysti þér, sagði hún efablandin. — Skilurðu — það eru vissar ástæður til þess að við getum ekki gift okkur núna. Hún svaraði ekki, en þögn hennar, var ein^ og ný spurning. Hann kyssti hana. — Eg elska þig, Rósa, það veistu þó? Jú, það vissi hún. En að morgunlagi viku síðar sagði hann: — Eg kem ekki heim f kvöld, Rósa, það er dálitið sem ég þarf að koma f lag. Hann útskýrði fyrir henni, að hann væri að undirbúa próf í tæknilegum kvöldskóla. — En auðvitað kem ég eins og vant er á morgun, sagði hann fljótmæltur, þegar hann sá, hvernig hún horföi rannsakandi á hann. Allt í einu spurði hún: — Er konan þín kannski farin að furða sig á þvi, hvar þú alir manninn? Hann greip andann á lofti og leit fast á hana: — Hver hefur sagt þér þetta? — Enginn, sagði hún fyrirlitlega. — Hefi ég kannski talað upp úr svefni? Hún svaraði ekki, sneri sér bara við og gekk með óþolandi rólegu fasi að eldhúsbekknum. — Hættu þessu nú! hrópaði hann reiður. Þú ert búin að þvo allt upp! — Ekki öskra á mig á þennan hátt. — Rósa, reyndi hann eftir augna- blik. Eg vildi segja þér þetta... en...ég hef reynt, en. —- Jæja? sagði hún hæðnislega. Þetta litla orð verkaði eins og hnefahögg. — Þú, - hlustaðu nú, sagði hann biðjandi. Hún vill ekki skilja, vill ekki gefa mér frelsi. Einmitt þessi orð hafði hann heyrt í kvikmynd í sfðustu viku, og hann skammaðist sín, um leið og hann hafði sagt þau. En þegar hann leit á hana, sá hann sér til undrunar, að hún hafði breytt um svip. Þarna var bölvuð meðaumkvunin aftur! — Þú hefðir átt að segja mér þetta fyrr, sagði hún bara. Hún faðmaði hann blíðlega að sér, og hann laut höfðinu að öxl hennar. Eftir langa þögn sagði hún: — Eg vil eignast barn. Ekki yngist ég. Hann greip fast um úlnliðinn á henni. Að ég skuli ekki hafa hugsað um það, hugsaði hann með sér. Hann átti þegar tvö börn. Hann mundi, hve áköf hún hafði verið í að taka að sér barnið, sem missti heimili sitt í siðustu sprengjuárás. Auk þess vildu allar konur eignast barn. Iíann sá hana fyrir sér með barnið hans og vissi, að hann yröi hreykinn, ef hún yrði barnshafandi. En jafn- framt var hann tvístígandi. — Getur þú ekki spurt hana aftur, Jimmie? sagði Rósa á ný. Þú verður að fá hana til að sam- þykkja skilnað... — Já, sagði hann, ég skal reyna. — Viltu spyrja hana í kvöld? hélt hún áfram áköf. — Kannski... Það rétta var, að hann hafði ekki hugsað sér að fara heim þetta kvöld. Hann hafði ætlað kvöldið fyrir sig með félögunum á barnum. — Hafðir þú ekki hugsað þér að heimsækja hana í kvöld? spurði Rósa, eins og hún læsi hugsanir hans. — Nei hreint ekki. Eg er með verkefni, sem ég þarf að sinna, það er út af prófinu. Ég næ því, ef ég legg að mér og fæ svo betri vinnu á eftir, það skaltu muna. Hún andvarpaði. — Jæja þá, farðu þá til hennar á morgun og spurðu. — Já, en á morgun vil ég vera með þér, Rósa, sagði hann. Hún andvarpaði aftur og brosti: — Þú ert alveg eins og barn, sagði hún. — Fæ ég koss áður en ég fer, sagði hann. Ifonum var það allt í einu mikils virði að finna hlýjan líkama hennar, áður en hann færi. Hún kyssti hann, en það voru áhyggjuhrukkur á enni hennar. Uss, liugsaði hann, kven- fólk! Fari það og veri! Og þar með var hann íarinn. Næsta kvöld þegar hann kom upp í íbúðina var hann hálf óstyrkur. Hann hafði drukkið aðeins og daðrað við Perlu og talað yfirlætislega um konur og hjónaband við hina mennina, að lokum fór hann heim til konu sinnar til að sofa úr sér. Hann hafði borðað morgunmat með fjöl- skyldunni, forðast ásakandi augnarráð konunnar og farið síðan til vinnunnar með dynjandi höfuðverk. 1 verksmiðjunni var hann að venju upptekinn við vinnuna og gle.vmdi öllu öðru. Þetta var lítil verksmiðja sem framleiddi ýmiss konar mælitæki, Hann var duglegur en var þó aðeins öbreyttur verkamaður. Hann vissi, að með dálítilli f.vrir- höfn gæti hann tekið prófið, sent myndi breyta stöðu hans launa- lega séð. Það voru launin. sern hann hafði áhuga á. ekki stöðu- hækkunin. Kona hans hafði nöldrað í honum i mörg ár og reynt að fá hann til að taka sig á. en hann sagði, að hún væri bara að hugsa um að hafa það betra en nágrannarnir. Eitt af því, sem hann hataði mest, var lífsgæða- kapphlaupið. En nú npp á siðkastið var hann farinn að hugsa alvarlega urn prófið og hann ákvað, að þennan sama dag segði hann Rósu, að hún yrði að sætta sig við að sjá minna af honum í framtiðinni. Hún varð að skilja, að maður hafði skyldur að rækja gagnvart sjálfum sér og framtíð sinni. Ifann var þrátt fyrir allt ekki nema fertugur. 4 HUJTI 40. TBL. VIKAN 29

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.