Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 30.09.1976, Qupperneq 32

Vikan - 30.09.1976, Qupperneq 32
. 7 « > . s 1 — Hvaö sagði hún? — Um hvað þá? Hann þreifaði fyrir sér. En það hafði engin áhrif. Hann horfði f uppgjöf á hana: — Það er ekki til neins, Rósa, það hefi ég sagt þér. Hún svaraði ekki strax. Eftir stundar þögn sagði hún bitur: — Já, já, ég veit, hvernig liggur í þessu. — Þú skilur ekkert, sagði hann snefsinn. — Jæja? Segðu mér þá, hvernig það er. — Það er ekkert að segja. Ég get ekki að þessu gert. Þögn aftur, og svo sagði hún það, sem hann hataði mest af öllu, þetta stutta einfalda orð sem var svo fullt af fyrirlitningu og hæðni: — Jæja — Það var ekki meira sagt þetta kvöld. Viku síðar sagði hún stilli- lega: — Eg talaði við ömmu Jill í dag. Hvað nú? hugsaði hann. — Georg féll i síðasta mánuði, á Ítalíu. Honum létti, en sagði bara: — Það var leitt. Hún hlustaði ekki á hann: — Ég sagði ömmunni, að ég vildi ættleiða Jill. — Já, en Rósa. . . en þegar hann sá andlit hennar vissi hann, að þetta var tilgangslaust. — Eg vil fá barn, sagði hún ákveðin. Hann leit undan. — En amman vill ekki láta hana frá sér, eða hvað? — Eg er ekki viss á því. Fyrst sagði hún nei og svo, að hún skyldi hugsa um það. Hún er líka svo gömul — áttræð næsta ár. Hún hlýtur að skilja, að það fer betur um Jill hjá mér. — Ætlar þú að vera með barnið hér? spurði hann, eins og hann tryði ekki sínum eigin eyrum. — Hvers vegna ekki? — Þú ert í vinnunni allan daginn. . . Hún svaraði ekki. Hann horfði á hana — og roðnaði. — Heyrðu nú, sagði hún. Hver er það, sem á húsgögnin hérna? Hver er það, sem hefur borgað húsaleiguna? Auk þess á ég ennþá hundrað pund í bankanum, og það er bjartara framundan núna, þegar stríðinu er að ljúka. . . Hann hugsaði ekki mikið um ásakanir hennar, en annað mál væri, ef hún ætlaði að hafa barn hér.. . Barn er alltaf til óþæginda, hugsaði hann. Þetta þýðir, að hún kærir sig ekki um mig lengur. Upphátt sagði hann bara: — Jæja, ef það er svona, sem þú vilt hafa það þá. . . Hún ljómaði upp og kyssti hann eins og f gamla daga: Ö Jimmie, Jimmie.. . Hann hélt henni að sér og hugsaði biturt, að þessi gleði væri ekki honum að þakka, heldur krakka, sem hann hefði aldrei séð. Kvenfólk! En jafnframt hugsaði hann með sér, að þetta væri nú ekki svo hættulegt, yfir- völdin mundu aldrei leyfa Rósu að ættleiða barn. Næsta kvöld spurði hann hana, hvort hún hefði farið á ætt- leiðingarskrifstofuna. Já, sagði hún og leit undan. Orugg og nýtískuleg kven- og karlmannsúr U á mjög hagstæðu verði Kynmð yður camy y GENEVE Hún hló hæðnislega, stóð á fætur og sagði: — Jæja ég fer í háttinn. Sófinn er upptekinn, vinur krakkanna gistir hjá þeim. Þú getur fundið þér sængurföt f skápnum og legið á gólfinu. — Hvernig gengur með krakk- ana? spurði hann. — Vel, ef þú hefur áhuga. — Eg spurði, eða hvað? Hann fór áður en krakkarnir vöknuðu næsta morgun. Allan daginn f vinnunni hugsaði hann um það, hvað hann ætti að gera við Rósu. Eftir vinnu fór hann á barinn. Perla stóð við barborðið og hafði greinilega gleymt þvf, sem gerðist kvöldið áður. Hann hafði bara ætlað að fá sér einn drykk og fara svo, en þeir urðu þrír. Honum líkaði vel, að Perla var alltaf í góðu skapi. Hún sagði, að kærastinn héldi við aðra konu núna, og bætti við: — Auk þess er nægur fiskur í sjónum. — Það finnst mér líka, sagði hann. — Já, já, við höfum öll okkar áhyggjur, sagði hún glaðbeitt. — Hann er kjáni að vilja þig ekki, sagði hann og horfði á gullna lokka hennar og vel vaxinn líkamann. Hún færði sig nær honum, en sagði svo góða nótt og fór. Best að byrja ekki með Perlu einmitt núna, hugsaði hann. Það var framorðið, þegar hann kom heim f íbúðina, og hann varð allt í einu þreyttur og ergilegur. Rósa var búin að borða og hafði tekið af borðinu. Nú sat hún og las i blaði. — Hvað ert þú að lesa? spurði hann og reyndi að brjóta ísinn. Ilann kom auga á fyrirsögnina: „Konur of margar, afleiðing stríðsins". — Það er það, sem ég er, sagði Rósa bitur. Einni konu of mikið, og algjörlega óvænt fór hún að hlæja. — Hvað er svona sniðugt? spurði hann órólegur. — Eg held ég megi hlæja, þegar mér sýnist, sagði hún, það er alla- vega betra en að gráta. — En Rósa, sagði hann hjálpar- vana. Getur þú ekki hætt að. . . Nú brast hún í grát og vafði sig upp að honum. Seinna um kvöldið spurði hún: — Þú varst hjá konunni þinni f gær, ekki satt? — Jú, sagði hann og hugsaði: Nú kemur það. . . RAFTORG SÍMi: 26660 RAFIÐJAN SÍMi: 19294 32 VIKAN 40. TBl.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.