Vikan

Issue

Vikan - 30.09.1976, Page 38

Vikan - 30.09.1976, Page 38
„Heyrðu,” sagði Ad Francis. ,,Taktu um hann aftur. ,,Tel þú og ég tel upp að sextíu.” Nick fann haegan kröftuglegan sláttinn undir fingrum sér, og hann hóf að telja. Hann heyrði litla manninn telja hsegt, einn, tveir, þrír, fjórir, fimm og áfram — upphátt. „Sextíu.” sagði Ad að lokum. „Hvað var það hjá þér?” „Fjörutíu,” sagði Nick. „Þarna sérðu,” sagði Ad ánægð- ur. , Hann eykst aldrei.” Maður lét sig renna niður brekk- una frá'brautinni og gekk þvert yfir rjóðrið í áttina að eldinum. „Halló, Bugs!” sagði Ad. „Halló!” svaraði Bugs. Þetta var rödd negra. Nick sá það af göngu- lagi hans að hann var ncgri. Hann stóð og sneri baki í þá og hailaði sér yfir eldinn. Hann rétti úr sér. „Þetta er félagi minn, Bugs,” sagði Ad. „Hann er líka geggj- aður. ” „Gaman að kynnast þér,” sagði Bugs. „Hvaðan ertu?” „Chicago,” sagði Nick. „Það er góð borg,” sagði negr- inn. „Ég heyrði ekki nafnið þitt.” „Adams, Nick Adams.” „Hann scgist aldrei hafa verið geggjaður, Bugs,” sagði Ad. Þá á hann mikið eftir,” sagði negrinn. Hann var að taka utan af pakka við eldinn. „Hvenær eigum við borða, Bugs,” sagði glímukóngurinn. „Núna rétt strax.” „Ertu svangur, Nick?” „Það gaula í mér garnirnar.” „Heyrðirðu það, Bugs?” „Ég heyri flest af því sem sagt er.” „Ég var ekkert að spyrja þig að því.” ,Já, ég heyrði, hvað herrann sagði.” Hann var að leggja sneiðar af höm á pönnu. Þegar pannan hitnaði fór fitan að slettast, og Bugs, sem kraup á löngum niggara- löppunum yfir eldinn, sneri höm- inni og hellti eggjum á pönnuna, sem hann hallaði á báða bóga, svo að heit fitan rynni undir eggin. „Viltu gjöra svo vel að skera nokkrar brauðsneiðar af brauðinu þarna í pokanum, herra Adams?” spurði Bugs og sncri sér frá eldinum. „Alveg sjálfsagt.” Nick stakk hendinni niður í pokann og tók upp brauðhleif. Hann skar sex sneiðar. Ad horfði á hann og hallaði sér áfram. „Leyfðu mér að sjá hnífinn þinn, Nick,” sagði hann. „Nei, láttu hann vera,” sagði negrinn. „Láttu hann ekki fá hnífinn þinn, herra Adams." Glímukóngurinn settist. „Viltu gjöra svo vel að færa mér brauðið, herra Adams?” sagði Bugs. Nick færði honum það. „Viltu dýfa brauðinu þinu í fituna af höminni?” spurði negrinn. „Hvort ég vil!” „Kannski við ættum að láta það biða þangað til seinna. Það er betra þcgar við erum búnir með hitt. Gerðu svo vel.” Negrinn tók upp sneið af höm- inni, lagði hana á eina brauðsneið- ina og síðan egg þar ofan á. „Settu aðra brauðsneið ofan á, ef þú vildir gjöra svo vel, og réttu herra Francis hana.” Að tók við samlokunni og tók að borða. „Gættu þin að rauðan renni ekki út úr,” varaði negrinn hann við. „Þes5i er handa þér, herra Adams. Síðan ætla ég að borða það sem eftir er.” Nick beit i samlokuna. Negrinn sat andspænis honum við hliðina á Ad. Heit, steikt hömin og eggin voru sérlega bragðgóð. „Herra Adams er svo sannarlega svangur,” sagði negrinn. Litli mað- urinn, sem Nick kannaðist við með nafni sem fyrrverandi glímumeist- ara var þögull. Hann hafði ekki mælt orð af vörum síðan negrinn hafði talað um hnifinn. „Má ég bjóða þér að dýfa brauðsneið í heita fituna af höm- inni?” sagði Bugs. „Kærar þakkir.” Litli hvíti maðurinn leit á Nick. „Vilt þú Iika, herra Adolph Francis?” bauð Bugs honum og rétti fram pönnuna. Ad svaraði ekki. Hann var að horfa á Nick. „Herra Francis?” Rödd niggar- ans var blíðleg. Ad svaraði ekki. Hann var að horfa á Nick. -.Ég var að tala við þig, herra Francis,” sagði niggarinn blíðlega. Ad hélt áfram að horfa á Nick. Hann hafði dregið húfuna niður í augu. Nick fann til kviða. „Hvað í andskotanum fær þig til að bregðast svona við?” kom út undan húfunni hvasslega ætlað Nick. „Hvaði andskotanum þykist þú eiginlega vera? Þú ert aumingi með hor. Þú kemur hingað óboðinn og étur matinn manns, og þegar maður biður um að fá lánaðan hnífinn þinn ertu bara með frekju.” Hann góndi á Nick, andlit hans var hvítt og augun næstum hulin undir húfunni. „Þú er,t helvítis boðflenna. Hv?r bað þig eiginlega að troða þér upp á okkur?” „Enginn.” „Alveg rétt, það var enginn. Enginn bauð þér heldur að vera. Þú kemur hingað, gerir gys að andlit- inu á mér, reykir vindlana mína, drekkur brennivinið mitt og ert svo með einhverja stæla. Hvern djöful- inn meinarðu eiginlega með þessu?” Nick sagði ekkert. Ad stóð upp. „Ég skal segja þér nokkuð helvítis raggeitin þin. Nú verður kýldur af þér hausinn. Skilurðu það?” Nickhopaði. Litli maðurinn kom hægt í áttina að honum og dró fæturna þyngslalega eftir jörðinni. „Sláðu mig,” sagði hann og sneri höfði. „Reyndu að slá mig.” „Mig langar ekkert til að slá þig-” „Þú sleppur ekki svona auðv.eld- lega. Þú átt eftir að þola barsmið skal ég segja þér. Svona, ráðstu á mig.” „Góði hættu þessu,” sagði Nick. „Allt i lagi helvítis skíthællinn þinn, þú um það.” Litli maðurinn leit niður á fætur Nicks. Negrinn hafði staðið upp og elt hann þegar hann lagði af stað frá eldinum, og þegar hann leit niður barði negrinn hann i hnakkann. Hann féll áfram og Bugs sleppti kylfunni, sem tusku var vafið utan um.svoaðhúnféllájörðina. Þarnalá litii maðurinn með andlitið I grassverðinum. Negrinn lyfti hon- um upp með höfuðið hangandi og bar hann að eldinum. Andlitið á honum leit illa út með augun uPPglennt- Bugs lagði hann varlega á jörðina. „Réttu mér vatnið í fötunni, herra Adams,” sagði hann. „Ég er hræddur um að ég hafi lamið hann heldur fast.” Negrinn gusaði vatni á andlitið á honum með hendinni og togaði varlega í eyrað á honum. Augun lokuðust. Bugs stóð upp. „Það er allt i lagi með hann,” sagði hann. „Það þarf engar áhyggjur að hafa af honum. Mér þykir þetta leitt, herra Adams.” „Þetta er allt í lagi.” Nick var að horfa niður á litla manninn. Hann sá kylfuna liggjandi I grasinu og tók hana upp. Hún var með sveigjan- legu haldi og féll vel í greip. Hún var gerð úr snjáðu svörtu leðri, og utan um þunga endann var vafið vasaklút. „Handfangið cr úr hvalbeini,” sagði negrinn brosandi. „Þeir eru hættir að búa þær til fyrir löngu. Ég vissi ekki hversu vel þér tækist sjálfum að verjast, nú og svo vildi ég ekki að þú meiddir hann eða skrámaðir hann meira en orðið er.” Negrinn brosti aftur.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.