Vikan - 30.09.1976, Side 40
BRENNANDI STRÆTISVAGN.
Kæri draumráðandi!
Fyrir um það bil tveimur mánuðum
dreymdi mig draum, sem ég hef lengi velt
vöngum yfir, því um daginn gerðist atvik,
sem draumurinn hefði getað verið fyrirboði
um. Þess vegna langar mig að sjá, hvernig
þér ferst að ráða hann.
Mig dreymdi, að vinur minn og ég
stæðum í strætó, það var fimman. Vagninn
var að aka eftir Skothúsveginum. Hann var
kominn yfir brúna, þegar hann stansaði,
dyrnar opnuðust og vinur minn stökk út úr
vagninum og út í tjörnina. Svo lokuðust
dyrnar, og vagninn hélt áfram. Þá fannst
mér vagninn vera að aka eftir Suðurgöt-
unni. Ég tók eftir bílljósum fyrir aftan
vagninn, mér fannst bíll vera að elta hann.
Allt í einu var ég komin út úr vagninum, það
var mikil snjór. Ég stóð fyrir aftan vagninn,
þá allt í einu kom bíllinn á móti mér á
miklum hraða, hann snarbeygði og ók í
burtu. Svo fannst mér ég aftur vera komin
upp í vagninn, og þá sá ég, að eldur hafði
kviknað aftan til í honum, en ég stóð
frámarlega. Skelfing greip um sig meðal
fólksins, og ég kallaði til vagnstjórans og
bað hann að stoppa og hleypa fólkinu út.
Hann sinnti ekki kalli mínu strax, en að
lokum opnað hann dyrnar, en ég og aðrir
komust út, en dyrnar lokuðust aftur, og
vagninn hélt áfram. Svo man ég, að við
stóðum og horföum á eftir logandi vagn-
inum. H-S-
Gaman væri að heyra frá þér, hvernig þú
réóst drauminn. Mtn ráðning er, að þessi
draumur sé þér viðvörun um háska allmik-
inn, því f/est þau tákn, sem hann birtir þér,
boða háska af einhverju tagi, og ekki llst
mér vel á það tiltæki vinar þíns að stökkva
sisvona úti tjörnina. En þú s/eppur úr háska
þessum og stendur jafnrétt eftir.
EGGJATALNING.
Kæri draumráöandi!
Viltu reyna að ráða þennan draum fyrir
mig. Mig dreymdi, að ég var í gönguferö
með kærastanum mínum, og allt í einu
sáum við fuglshreiöur viö fætur okkar. Það
munaði engu, aö viö gengum á þaö. Þetta
var svo fallegt hreiður með fimm eggjum í,
og við krupum niður og skoöuöum það, og
ég var einmitt að hugsa um, hvort litla
mamman fengi unga úr öllum eggjunum
fimm. Og þá vaknaði ég. Ég vona, aö þú
getir sagt mér, hvaö þessi draumur táknar,
því hann var svo yndislegur. Lóló.
Já, vfst er hann yndislegur, og mikil
eppni var það, að þið stiguð ekki ofan á
eggin. Þessi fa/legi draumur boðar ykkur
fimm börn / hjónabandinu, og gangi ykkur
ve/ við uppeldið!
SAUMASKAPUF>OG HRINGAVITLEYSA.
Kæri draumráðandi!
Mig langar til að biðja þig að ráða tvo
drauma, sem mig dreymdi með stuttu
millibili.
Mér fannst ég standa og horfa á
tengdamóður mína sitja og sauma glugga-
tjöldúrmjög þunnusnjóhvítu efni eða neti. Á
hliðarnar saumaði hún breiðan Ijóslillabláan
borða. Mér fannst hún vera búin með tvær
lengjur og vera að byrja á þeirri þriðju. Ég sá,
að efnið fór í flækju, þegar hún byrjaði, en
hún lagaði það fljótt. Á þessum lengjum átti
að vera eins borði, bara marglitur, mjög
fallegur. Ég var ákveðin í að sauma eins
gluggatjöld, þegarég kæmi heim. Inni ísama
herbergi fannst mér mágur minn (sonur
hennar) sitja og sauma krosssaumsmynd. Ég
man, að ég skoöaöi myndina og fannst hún
dálítið ójöfn, en samt góð. Þessi mágur minn
er nitján ára og síðastur allra til að gera
nokkuö þessu líkt.
Seinni draumurinn: Mér fannst standa
yfir einhvers konar stríð og liðiö mín megin
hafa betur. Allt í einu var ég komin inn í
skartgripabúö og vildi láta minnka hring,
sem ég á, en afgreiðslumaðurinn sagði, að
þess þyrfti ekki. Þá bað ég hann að pússa
giftingarhringinn minn og hinn hringinn í
leiðinni. Þegar hann var búinn fannst mér
þeir ekki glansa eins og ég hafði búist við,
og um leið tek ég eftir þvf, að giftingar-
hringurinn er mjög eyddur þeim megin, sem
snýr inn í lófann, og auk þess svo dökkur.
Ég spurði, hvort hægt væri aö bræða gull í
þetta. Hann sagði svo vera, og það átti að
kosta frá 9—10 þúsund, sem mér fannst
óheyrilega mikið.
Með fyrirfram þökk. Fía.
Fyrri draumurinn boðar mikil og góð
samskipti við tengdafólk þitt, sem eiga eftir
að verða þér til mikillar hjálpar. Seinni
draumurinn táknar það, að einhverjir erfið-
/eikar séu framundan í hjónabandinu, og er
llklegt, að inn / það mál dragist fleiri en þiö
hjónin. Þér mun reynast það nokkurt átak
að jafna þessimál.
HLÁTUR OG GRÍSIR.
Kæri draumráðandi!
Mig langar að biðja þig að ráða fyrir mig
þennan draum: Mér fannst ég vera á
skemmtun, þar sem einhver hljómsveit
spilaði, ég held Cabaret. Svo fannst mér
það hefði átt að vera leynigestur í hléinu, og
svo kom hlé, og ég sat nálægt innganginum
og sá þá kennarann minn koma inn, en
hann er í Randver. Hann og Guðmundur
voru með fullt fangið af grísum, og ég fór
að skellihlæja. i því rétti Ellert mér einn
grisinn, og ég hélt honum dálítinn spöl frá
mér, því ég hélt hann mundi pissa á mig.
Og svo byrjaöi hann að pissa, og það var
ekkert smáræði, sem hann pissaði, og ég
fór að skellihlæja og sagði við Ellert: Ég
fann þetta á mér, að hann þyrfti að pissa.
Þökk fyrir birtinguna. Kristín Agla.
Þú átt eftir að lenda I útistöðum viö
þennan kennara þinn, en þiö jafnið málin
þannig, að þið verðiö bestu vinir eftir.
UNDARLEG SPEGILMYND.
Kæri draumráðandi!
Mig langar að biðja þig um að ráða fyrir
mig þennan draum, sem mig dreymdi fyrir
stuttu. Mér fannst ég standa fyrir framan
spegilinn inni í baðherberginu heima. Ég var
að skoða upp í munninn á mér. Ég lokaöi
svo munninum, en spegilmyndin var ennþá
með opinn munninn. Ég var hálfskelkuð og
fór að skoða þetta betur. Þá sá ég, að
munnurinn á mér var allur út í bólum og
kýlum, og einnig fóru tennurnar allt í einu
að losna þarna, sem ég stóð fyrir framan
spegilinn. Mér fannst 3 eða 4 tennur detta
út úr mér og hanga á silfurþræði alveg niður
á brjóst. Þetta var alveg hræðilega vont, og
ég reyndi að festa tennurnar aftur, en
árangurslaust. Þá fannst mér ég vera komin
á einhvern spítala til þess að láta laga þetta,
og þar var ég látin fara inn í stóran sal. Mér
fannst ég sjá þar systur mína og tvær
vinkonur mínar. Ég varð mjög hissa að sjá
þær þarna, en mundi þá allt í einu eftir því,
að þær áttu allar von á barni. Þar næst var
ég látin leggjast á bekk inni í litlu herbergi,
en mig dreymdi aldrei það langt, að ég fengi
að sjá munninn heilan aftur.
Ég vona, að þú getir sagt mér, hvað þetta
þýðir.
Virðingarfyllst, Ijón.
Ég held þú ættir að fara varlega í ástalífi
þ/nu í náinni framtlð, því að þessi draumur
bendir eindregið til lausungar á þvl sviði,
sem gæti leitt af óve/komna barnsfæðingu.
Það Htur út fyrir, að þú verðir fyrir niður-
lægingu í tengslum við það mál.
_______________________________________/
MIG ÐREYMÐI
40 VIKAN 40. TBL.