Vikan - 30.09.1976, Side 42
HUGMVNDA
FISKIBOLLUR OG
HUGMYNDAFLUG.
Eflaust grípa margar konur til
fisk'bolludósarinnar annað veifið.
Þaðerfljótlegurmaturoggóður, en
þær þurfa alls ekki að að vera svo
hversdagslegar, ef við aðeins
gefum okkur smátíma við að bera
þær fram.
FISKIBOLLUR MEÐ RÆKJUM
OG SARDÍNUM.
1 dós fiskbollur
75 gr rækjur
1 dós sardínur
graslaukur
za. 1 /2 dl rjómi
;alt, pipar
ogn af cayennapipar.
Búið til sósu úr hveiti, smjörlíki,
Fiskbollusoðinu og dálitlu af rjóma
Kryddið. Hitið bollurnar í sósunni
án þess að þær sjóði og berið þær
síðan fram skreyttar með sardínum
og rækjum og klippið graslaukinn
yfir (eða notið þurrkaðan, sem fæst
á glerglösum).
FRANSKAR FISKBOLLUR MEÐ
KARRÝSÓSU.
ca 1 1/2 kg þorskur
1 dl hveiti
1 /2 dl sýrður rjómi
dál. mjólk
salt og pipar.
Sjóðið fiskinn í dálitlu vatni,
krydduðu með salti, steinselju-
kvistum, timian og 1 lárviðarlaufi.
Hreinsið fiskinn gaumgæfilega og
merjið hann vel. Blandið honum
síðan saman við hveitið og sýrða
rjómannog dálitla mjólktil að halda
blöndunni saman, en hún á að vera
þétt í sér. Kryddið með salti og
pipar. Útbúið 1/2 Itr. af fisksoði
(t.d. soð af beinum og haus) og
sjóðið bollurnar í soðinu. Bollurnar
teknaruppúreftirca. 10mínúturog
haldið heitum á meðan sósan er
búin til. Jafnið sósuna með smjör-
bollu (þ.e. smjörlíki og hveiti hrært
saman og jafnaðsaman við soðið).
Kryddið með karrý og turmeric
(gurkemeie) salti og pipar. Hellið
sósunni yfir bollurnar og berið fram
með soðnu blómkáli.
FISKBOLLUR MEÐ BROKKÁLI.
1 pk. frosið brokkál (broccoli)
1 dós fiskbollur
salt, pipar, múskat
smjör
1 dós hollensk sósa (hollandaise)
(eða 2 1 /2 dl af hollenskri heimatil-
búinni sósu)
sítrónusneiðar
ca. 100 gr rækjur.