Vikan - 30.09.1976, Síða 43
FLUC
Sjóðið brokkálið næstum meyrt, og
setjið það í smurt eldfast fat,
kryddið með salti, pipar, og dál.
múskati. Fiskbollurnareru skornar í
tvennt og settar ofan á brokkálið.
Hellið síðan sósunni yfir og bakið í
225° heitum ofni í 20 mínútur.
Skreytið með rækjum og sítrónu-
bátum.
STEIKTAR FISKBOLLUR MEÐ
FLESKI OG NIÐURSOÐNUM
TÓMÖTUM.
1 dós fiskbollur
8 sneiðar flesk
1 dós niðursoðnir tómatar
2—3 msk. sterkur ostur, rifinn
steinselja.
Hitiðtómatana I soðinu, síið soðið
síðan frá og notið gjarna í súpu.
Steikið flesksneiðarnar stökkar.
Haldið þeim heitum og steikið
fiskbollurnar í fleskfeitinni. Setjið
tómatanaíhringásmurteldfast fat.
Setjið bollurnar í miðjuna og
flesksneiðarnar í kringum. Stráið
rifnum osti yfir og setjið í 250°
heitan ofn í 10 mínútur. Skreytið
síðan með steinseljugreinum og
beriðfram með soðnum kartöflum.
VEISLUBOLLUR.
1 dós fiskbollur
150 gr rækjur
3 egg
3 msk. mjólk eða rjómi
1 msk. hveiti
1 tsk. salt
2 msk. saxað dill eða steinselja
2 msk. rifinn ostur
3 msk. smjör.
Skerið bollurnar að endilöngu í
tvennt og setjið I smurt eldfast form
ásamt rækjunum. Þeytið egg,
mjólk, salt og hveiti og hellið yfir.
Stráið dilli eða steinselju yfir og
setjið smjörbita ofan á. Bakið við
225° í ca. 20 mínútur. Berið fram
með grænu salati.
DROFN
FARESTVEIT
HUSMÆÐRAKENNARI
HEIMATILBÚNAR FISKBOLLUR
1 kg fiskhakk
2 dl súrmjólk
3—4 dl fisksoð
50 gr smjör
3 kúfaðar msk. kartöflumjöl
ef vill útbleytt brauð
salt, pipar, múskat
negull
1/2 rifinn laukur
Hakkið fiskinn 4 sinnum. Þegar
búið er að hakka hann tvisvar
sinnum, er kartöflumjölið sett
saman við ásamt múskati og
útbleyttu brauði (ef vill). Hakkað
aftur. Þá er saltið sett saman við og
kryddið og þynnt með fisksoðinu
og súrmjólkinni. Setjið aðeins lítið í
senn, svo að sjáist hvað deigið
getur tekið á móti miklum vökva.
Að síðustu er rifni laukurinn settur
saman við. Farsiðáað vera eins kalt
og unnt er, og þvíverðurallurvökvi,
sem í farsið fer, að vera vel kaldur.
Þegarfarsið virðist vera hæfilegt er
soðin prufubolla í fisksoði. Með
þessum fínu bollum má svo búa til
einhverja verulega góða sósu, t.d.
skelfisksósu.
40. TBL. VIKAN 43