Vikan - 23.12.1976, Qupperneq 4
Þrír frazgir
elskhugar
birtast
uftur
Valentino... Casanova... Clark Gable...
mestu elskhugar allra tíma.
Það er ekki heiglum hent að feta
í fótspor þeirra, en einmitt í
ár hafa þrír leikarar tekið að sér
að bregða sér í gervi þessara
frægu manna. Þeir heita
Franco Nero, Donald Sutherland
og James Brolin. Hvað segja
þeir um stjörnurnar, sem þeir
reyna að endurlífga á
hvíta tjaldinu?
EINSTAKUR MAÐUR
Rudolph Valentino — eða réttara
sagt ítalski leikarinn Franco Nero,
virtist á báðum áttum: ..Valentino
var einstakur maður. og það er
mjög erfitt að ná fram þessu
sérstaka aðdráttarafli, sem hann
hafði á konur. Þessi maður hefur
legið í gröf sinni í ein fimmtíu
ár, en samt hrifur hann, eða endur-
minningin um hann, konur nú-
tímans”.
Franco Nero er sjálfur hávaxinn,
dökkur og myndarlegur, og það fer
af honum orð sem elskhuga af
suðrænum toga. Nero leikur Valen-
tino i annarri af tveimur myndum,
sem gerðar eru í ár i tilefni þess að
fimmtiu ár eru liðin frá dauða
Valentinos, en hann er enn mesti
elskhugi, sem birst hefur á hvíta
tjaldinu.
Valentino var sonur fátækra
hjóna, er stunduðu landbúnaðar-
störf á Suður-ftalíu. Hann kom til
Bandaríkjanna árið 1921, 18 ára
gamall, og aleiga hans var einn
bandaríkjadalur, en hann dreymdi
samt stóra drauma varðandi fram-
tíð sína.
Hann fékk fyrsta hlutverkið
strax sama árið í mynd, sem heitir
Eyes of Youth, og það stóð ekki á
frægðinni, áhorfendur urðu strax
yfir sig hrifnir af þessari elskhuga-
týpu. Næstu sjö árin lék Valentino
í 22 myndum, og má nefna þar
myndir á borð við The Sheik og
Blood and Sand.
Franco Nero reynir i hlutverki
Valentinos hvað hann getur að ná
fram hinum sérstaka sjarma hins
suðræna elskhuga. Á hverjum degi
eyðir hann tveimur tímum í að farða
sig og breyta andlitinu í líkingu við
andlit Valentinos, og það tekst
ótrúlega vel.
Þegar Valentino lést af völdum
krabbameins i maga árið 1926 þá
komu yfir 125 þúsund konur út á
götur New York borgar til að sjá
Á erri myndinni er íiaiski ieikurinu
Franco Nero, mikill hjartaknúsari.
Á neðri myndinni er hann kominn
í gervi Valentinos, en ekki er hann
alveg sáttur við breytinguna. ,,Ég
hata stutt hár og get ómögulega
fellt mig við að líta svona virðu-
lega út”.
likfylgdina, og ein kona, i ham-
ingjusömu hjónabandi, að því best
er vitað, skaut sig, er hún frétti lát
Valentinos.
Kona nokkur hefur komið að gröf
Valentinos einu sinni i mánuði í þau
50 ár, sem liðin eru frá dauða hans,
og önnur kona geymir enn í gull-
sleginni kistu skyrtuslitur, sem
henni tókst að rífa af honum árið
1924!
'
Fyrst er hárið tekið til meðferðar,
og siðan er nefinu lyft og fyllt út í með sérstökum massa, sem síðan er
kinnarnar... málaður með andlitslitum.