Vikan - 23.12.1976, Qupperneq 15
Ef miðað er við ’76 gerðina, er
Cortinan mikið breytt, bæði í útliti
og hvað aksturshæfni snertir, og á
stýrisútbúnaðurinn stóran þátt í
því, hve skemmtilegur bíllinn er í
akstri. Verðið á 2000S gerðinni er
2.060 þús. kr.
FORD CAPRI
Ford Capri er frekar sjaldséður
á íslandi, enda ekki til nema örfáir
bílar af þessari gerð. Á sýningunni
hjá Sveini Egilssyni vakti Capri
2000S verðskuldaða athygli.
Capri er mjög sportlegur í útliti,
stílhreinn og vekur mikla eftirtekt,
þar sem hann kemur. Innréttingin
er öll í sportlegum stíl, mælaborðið
er með kringlóttum mælum, klætt
svörtu leðurlíki, stýrið er lítið,
klætt leðri og óskaplega skemmti-
legt í akstri. Sætin eru þægileg,
falla vel að manni, og akstursstell-
ingin er góð. Hægt er að leggja
niður aftursætið, og myndast þá
ágætis farangursrými afturí.
Vélin er v6 2294 cc og gefur 108
'ord
hestöfl á 5000 snúningum. Blönd-
ungurinn er tvöfaldur Solex. Kraft-
urinn er mjög mikill í Capri svo
auðvelt er að fara yfir löglegan
hámarkshraða, án þess kannski að
ætla sér það. Á malbiki er bíllinn
æðislega skemmtilegur og liggur
eins og klessa á veginum. Stýrið
virkar mjög vel og gerir bílinn
ennþá skemmtilegri, ef beygjur eru
teknar á mikilli ferð, og það er alveg
óhætt bílsins vegna að svínkeyra
hann í beygjur. Á malarvegum er
hann mjög góður, en kannski helst
til lágur, ef vegirnir eru mjög
slæmir.
Það liggur við, að maður fái
tryllidellu, þegar sest er undir stýri
á Capri og auðvelt er að koma á
samræðum við lögregluþjón, jafn-
vel þótt það hafi ekki verið ætlunin.
Capri 2000S kostar 2.490 þús. kr.
52.TBL. VIKAN 15
+f