Vikan - 30.12.1976, Síða 13
maður laus við allt þetta öngþveyti,
sem er hér í bænum. Til dæmis í
skammdeginu. Þá er svo ósköp
rólegt og gott að vera í sveit, en hér
er allt á öðrum endanum vegna
jólaundirbúnings.
— Þú lest auðvitað mikið. Held-
urðu sérstaklega upp á einhverja
höfunda?
— Nei, ekki held ég það. Ég les
allt, sem ég kemst yfir, hvort sem
það er gott eða slæmt. Höfundarnir
skipta mig ekki svo miklu máli.
— Hvað hefur þú að segja um
íslenska rithöfunda?
— Ég hef bara allt gott um þá að
segja. Að vísu finnst mér þeir skrifa
heldur mikið af þungum og háfleyg-
um bókum. Létt efni er alveg eins
nauðsynlegt. Það nær líka oft til
stærri hóps lesenda.
— Ert þú rauðsokkur?
— Það held ég varla. Ekki nema
þá að litlu leyti. Það er að
^jálfsögðu ágætt, að konur fái
jafnrétti, en ég er á móti þvi, að
konur fái meiri réttindi en karlar.
Þær hafa t.d. meiri rétt gagnvart
börnunum en karlmenn.
— Hefur þú hugsað þér að halda
áfram að skrifa?
— Það er ekki gott að segja. Ég
gæti vel hugsað mér það, ef þessari
sögu verður ekki illa tekið.
— Langar þig til þess að koma
einhverju á framfæri að lokum?
— Ekki nema því, að mér finnst
alltof mikið gert af því að upphefja
þá, sem eru gáfaðir og lærðir. Það
þykur enginn maður með mönnum,
nema hann hafi gengið í háskóla og
þar fram eftir götunum. Aðrir geta
líka lagt eitthvað af mörkum. Ekki
eru allir, sem þeir sýnast.
Að svo mæltu óskar Vikan Eddu
og sögunni hennar góðs gengis.
AÁS.
Við rákumst á þessa mynd i ensku
blaði, og sýnir hún, að hér hafa
hönnuðir unnið gott verk. Það er að
sjálfsögðu mun þægilegra að hafa
allar snyrtivörurnar til hliðar við sig,
og þú getur jafnvel haft með þér
Til
lesenda
Við erum mjög ánægð með
þátttökuna i Heilabrotunum okkar,
og það hefur glatt okkur, hve margir
hafa látið í ljós ánægju með þessa
nýbreytni. Við tókum allmikla
áhættu, þegar við ákváðum að veita
þetta mörg og há verðlaun, en nú
erum við sannfærð um að hafa gert
rétt.
Trúlega þykir mörgum ykkar
getraunin 1X2 nokkuð þung, en við
ætlumst til, að fjölskyldan glími við
hana i sameiningu og hafí jafnvel
eitthvað fyrir því að finna réttu
svörin. Enda veitum við hæstu
verðlaunin fyrir lausn þessarar
gátu.
Um barnakrossgátuna er það að
segja, að útilokað er að gera hana
svo létta, að ung börn geti ráðið
hana hjálparlauat, enda ættu for-
kaffibolla eða ölglas á meðan þú
nýtur baðstundarinnar. Framleið-
endur hugsa sér þetta sem umgjörð
um gömul böð og ný, og er umgjörðin
afgreidd i þremur hlutum, og fylgja
með skrúfur og aðrir aukahlutir.
eldrar eða aðrir vandamenn að hafa
ánægju af því að hjálpa til og
útskýra fyrir börnunum orð, sem
þau ekki skilja. Það er okkur
ánægjuefni að heyra, að flestir
krakkar hafa mikla ánægju af því
að leysa krossgátuna.
Þið getið sent allar lausnir i sama
umslagi, því við opnum hvert
einasta bréf og röðum lausnunum í
bunka, sem siðan er dregið úr. Þið
Verðið er rúm 30 pund. Það líður
varla á löngu. þar til þetta verður
komið á markað hér. Kaupendur geta
valið um fjóra liti — grænan.
ljósrauðan, hvítan og bláan.
megið einnig senda okkur bréf með,
ef ykkur liggur eitthvað á hjarta.
Pósturinn yrði til dæmis ánægður
að fá bréf frá ykkur, og ef ykkur
hefur dreymt merkilegan draum, þá
er að segja draumaspekingnum
okkar frá því. Einnig viljum við
mjög gjarnan fá álit ykkar á efni
blaðsins. Semsagt látið í ykkur
heyra, hvað sem ykkur kann að
liggja á hjarta.
53.TBL. VIKAN 13