Vikan - 30.12.1976, Blaðsíða 55
PRJÓNA-
PONCO
Snjallar prjónakonur (og karlar) ættu ekki að vera nema nokkur kvöld
að gera þennan hlýlega og fallega prjónaponcho. Fallegra er að nota
fremur gróft garn, um það bil tíu hundrað gramma hespur. Prjónið eftir
teikningunni hér til hliðar. Byrjið á því að fitja upp 20 —25 sentimetra og
aukið síðan út jafnt og þétt upp að mitti. Þaðan er stykkið beint upp að
herðum, munið að taka úr fyrir hálsmálinu. Miðjan er prjónuð með sléttu
og brugðnu prjóni, þar til hliðar er slétt prjón, en yst er perluprjón eða
eitthvað hliðstætt. Trefillinn er prjónaður með perluprjóni. Fram- og
afturstykki eru saumuð saman á herðunum, trefillinn er festur viö hálsmálið,
en þó haft nokkurt bil á hægri hlið.
Samkeppní
um prjónaðar og heklaðar flíkur
ÞÁTTTAKENDUR! t,
Leiðbeiningarblað fyrir prjónasamkeppnina
í Elínu fæst í flpstum garnverslunum.
Biðjið um leiðbeiningarblaðið, sem fæst
ókeypis í næstu búð.
Það auðveldar yður málsetningu flíkurinnar
og gerð uppskriftarinnar.
Ullarverksmiöjan Gefjun Prjónabókin Elín
jfCljapeBuisíienv