Vikan

Issue

Vikan - 30.12.1976, Page 55

Vikan - 30.12.1976, Page 55
PRJÓNA- PONCO Snjallar prjónakonur (og karlar) ættu ekki að vera nema nokkur kvöld að gera þennan hlýlega og fallega prjónaponcho. Fallegra er að nota fremur gróft garn, um það bil tíu hundrað gramma hespur. Prjónið eftir teikningunni hér til hliðar. Byrjið á því að fitja upp 20 —25 sentimetra og aukið síðan út jafnt og þétt upp að mitti. Þaðan er stykkið beint upp að herðum, munið að taka úr fyrir hálsmálinu. Miðjan er prjónuð með sléttu og brugðnu prjóni, þar til hliðar er slétt prjón, en yst er perluprjón eða eitthvað hliðstætt. Trefillinn er prjónaður með perluprjóni. Fram- og afturstykki eru saumuð saman á herðunum, trefillinn er festur viö hálsmálið, en þó haft nokkurt bil á hægri hlið. Samkeppní um prjónaðar og heklaðar flíkur ÞÁTTTAKENDUR! t, Leiðbeiningarblað fyrir prjónasamkeppnina í Elínu fæst í flpstum garnverslunum. Biðjið um leiðbeiningarblaðið, sem fæst ókeypis í næstu búð. Það auðveldar yður málsetningu flíkurinnar og gerð uppskriftarinnar. Ullarverksmiöjan Gefjun Prjónabókin Elín jfCljapeBuisíienv

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.