Vikan - 30.12.1976, Blaðsíða 18
talaði hann ekki um annað en kapp-
akstur. Suzy hafði verið fræg ljós-
myndafyrirsæta og notið ómældrar
athygli og aðdáunar — en nú var
hún komin í skugga eiginmanns-
ins og var ekki lengur miðpunktur
athyglinnar. Því fór sem fór.
Móður James Hunt kom síður en
svo á óvart, að hjónabandið skyldi
enda svo fljótt með skilnaði. „Það
er sama. hverri hann hefði gifst —
þetta hefði ekki getað farið öðru-
vísi”, sagði hún.
Foreldrar James voru ekki sér-
lega hrifnir, þegar hann ákvað að
stefna að því að komast í kapp-
akstur. Þá var hann nýbyrjaður að
læra læknisfræði og hafði fyrir til-
viljun farið að horfa á kappakstur.
Þegar hann kom út af kappaksturs-
vellinum voru örlög hans ráðin.
Hann bað foreldra sína að hjálpa sér
að kaupa bíl, en þau neituðu. Hann
ákvað því að reyna að afla pen-
inga á sem fljótlegastan hátt og tók
hvaða vinnu sem gafst; keyrði
sendibíl, vann í byggingavinnu, við
ræstingu á spítala o.s.frv. Námið
lagði hann á hilluna. Jafnóðum og
hann fékk útborgað kaup keypti
hann nýja og notaða bílhluta og
byggði sér þannig smám saman
kappakstursútgáfu af Mini. Vinir
hans héldu, að hann væri genginn
af göflunum, því hann neitaði sér
um flest það, sem eftirsóknarvert
þykir ó unga aldri. Hann fór aldrei
út að skemmta sér, og stúlkur um-
gekkst hann ekki, nema þær féllust
á, að hann færi aldrei með þeim út
að skemmta sér.
Nú hefur Hunt séð árangur erf-
iðis sins. Hann er orðinn heims-
meistari í kappakstri (Formula 1)
28 ára gamall. Hann þénar hótt í
100 milljón krónur á ári, en vegna
skattpíningar heima í Englandi,
hefur hann flust til Marbella ó
Spáni, þar sem hann býr í næsta
nágrenni við Sean Connery.
Hunt gerir sér grein fyrir því, að
daprar hugsanir; að hann kunni að
deyja eða slasast svo illa, að hann
nái sér aldrei aftur. „Hugsunin um
dauðann hræðir mig”, segir hann.
„Ég hugsa um, hvemig það sé að
vera dáinn og hvort það sé líf eftir
dauðann. Ég geri mér grein fyrir
því, að hver kappakstur gæti orðið
sá síðasti og endað með ósköpum.
Þessar hugsanir sækja ekki á mig á
kappakstursbrautinni, heldur
heima í Marbella. Maður kæmist
ekki langt á kappakstursbrautinni,
ef maður væri að hugsa um dauð-
ann. Hver ökumaður veit, að á
kappakstursbrautinni ber hann ekki
aðeins ábyrgð á eigin lífi, heldur og
James Hunt með einni vinkvenna sinna, Carmel Lopez frá Portúgal.
Nýtt frá Álafoss
Værðarvoð veiðimannsins
MIKIÐ URVAL
VÆRÐARVOÐA,
M.A. VÆRÐARVOÐ
HESTAMANNSINS.
/Ilafoss hf
VESTURGOTU 2.
til að ná góðum órangri í kapp-
akstri þarf hann að vera vel ó sig
kominn líkamlega. Hann gerir leik-
fimiæfingar á hverjum morgm,
leikur golf, þegar hann hefur tíma
til, og hleypur 5 kílómetra ó dag —
og hugsar um kappakstur á meðan.
„Því meira sem maður hugsar um
kappakstur, því betur gengur
manni”, segir hann. „Þarna skiptir
einbeitnin miklu.”
Hunt reynir ekki að dylja sjálfan
sig þess, að kappakstur er hættu-
legur. Stundum sækja á hann
lífi hinna ökumannanna. Ábyrgð
okkar er gagnkvæm”.
Það undrar marga, að Hunt
skyldi ekki lóta skilnaðinn við
Suzy hafa nein áhrif á sig. En
hann segist vera þeim hæfileika
gæddur að geta einbeitt sér að einu í
einu og gleymt öllu öðru. Árangur
hans á kappakstursbrautinni hafi
ekkert með tilfinningalíf hans að
gera.
James lifir fyrir kappakstur, og
sem stendur getur ekkert, hvorki
kona né annað, komist upp á milli
hans og bílsins. 4-
18 VIKAN 53. TBL.