Vikan

Issue

Vikan - 30.12.1976, Page 41

Vikan - 30.12.1976, Page 41
I ig! Pang! ★ Á að banna bömum að vera í byssuleik? ★ Verða litlu byssubófamir kaldir karlar? lofti — árásarhvöt — um , .öryggis- lokann”, og jafnvægi næst til að mæta af stillingu þeim kröfum, sem gerðar eru til þess af umheiminum. Þetta er baminu auðvitað ómeð- vitað, en í rauninni er það til mikillar hjálpar, þegar það reynir að laga sig að þeim kröfum, sem eru gerðar til ,.góðrar samvisku”. Og hvað er góð samviska? Hún er — frá sjónarhóli andlegrar heil- brigði — nokkurs konar mælitæki, sem getur stjómað og fylgst með fmmstæðum hvötum mannsins í samræmi við kröfur samfélagsins. Fullorðið fólk horfir á byssuleiki barna með hryllingi, en það er vegna þess að það er á allt öðm þroskastigi og lítur þess vegna hlutina að sjálfsögðu allt öðmm augum. VERÐUR LEIKFANGA— BYSSUBOFINN KALDUR karl? Á óskalista flestra drengja er byssa efst á blaði; við getum ekki afgreitt það með þvi, að þeir óski hennar eingöngu af óvitaskap. Þar sem svo til allir drengir óska sér svo heitt að eignast byssu, hlýtur það að vera vegna þess að þeir þarfnast hennar. Þetta þarf ekki að vera neikvætt, þó að fullorðið fólk telji svo, heldur er það trúlega svo, að barninu finnst það þurfa byssunnar með til að komast áfram í „rull- unni” — eða með öðmm orðum til að geta siðan snúið sér að hógvær- ari leikjum og lestri. Við þurfum ekki að vera hrædd um, að Kristján eða Pétur óski dauða eða eyðileggingar öllu, sem snýst gegn þeim síðar í lífinu, ekki frekar en að ástæðulaust er að ætla, að bam, sem lært hefur að skriða, haldi því áfram allt sitt líf. Það skríður bara, þangað til það getur gengið og finnur öryggi í uppréttri stellingu. Drengir á umræddum aldri em einmitt andlega séð á „skriðstig- inu”. Þeir em óömggir; kannski er skólinn að byrja, eða þeir em nýfluttir í nýtt umhverfi, reyndar þarf ekki þetta til eða aðrar augljós- ar ástæður. Á þessum aldri er barnið að uppgötva heim hinna fullorðnu, það er tími uppgötvana og vonbrigða, sífelldra „spreng- inga”. Oft veldur það sálarlegu ójafnvægi hjá drengjum, að ekki er ætlast til að drengir skæli, þeir eiga ekki að hræðast, heldur vera harðir af sér. Þetta em gamlir fordómar. Drengur sem, meðvitað eða ómeðvitað, finnur, að foreldramir vilja eiga „hraustan strák”, reynir að þóknast foreldrum sínum — sem hann er mjög háður — með því að gera sig dálítið stóran karl. í staðinn fyrir að viðurkenna hræðslu og óöryggi og fá hjálp við að yfirstíga erfiðleika því samfara, reynir hann að dylja þessar „stelpu- tilfinningar” með ofbeldi. Þetta fær útrás á ýmsa vegu. En það er ekkert samband milli ræn- ingjanna og hermannanna i barna- leikjum og „köldu karlanna.” Aftur á móti er hætta á, að þeir sem ekki fá útrás á barnsaldri, hafi árásar- og ofbeldishneigðina að fylgifiski á fullorðnisaldri. „DRENGUR, EINS OG DRENGIR EIGA AÐ VERA” Eftirfarandi saga segir okkur, hvemig getur farið, þegar við krefjumst karlmennsku af drengn- um okkar. Foreldrar drengs nokkurs fóm með hann til skólasálfræðingsins. Drengurinn gat aldrei leikið sér við önnur börn án þess að ráðast á þau. Ekki þannig séð, að þau teldu hann einhvern óþokka, þau höfðu gert allt til að ala upp góðan dreng, hann átti að vera harður af sér og geta bjargað sér. En þau fóm til sálfræð- ingsins vegna þess að drengurinn bleytti sig á nætumar. Sannleikurinn var sá, að drengur- inn þjáðist af hræðslu. Hann var alltaf dauðhræddur um að aðrir réðust að honum, en var meðvitandi um þær óskir foreldranna, að har.n gæti bjargað sér, þess vegna flýtti hann sér að lemja fyrst. Hann var hræddur um að verða annars sleg- inn á undan og verða „sá litli”.' En á næturnar, í svefni og aleinn, var hann hjálparvana og varnarlaus og þá bleytti hann sig. 1 þessu tilfelli getur áhrifanna gætt alveg fram á fullorðinsár og getur komið fram í óheppilegum tiltækjum. Og svo höfum við þann, sem slær á kjaftinn til að gera sig mikinn, slíka finnum við ekki meðal þeirra, sem hafa fengið eðlilega útrás við að skjóta að gamni sínu. Ein ástæðan til þess, að auðveld- ara er talið að ala upp stúlkur, er sú, að við gemm ekki samsvarandi kröfur til þeirra og drengja. Það er álitið kvenlegt að vera svolítið hræðslugjörn. „ÉG GEF ALDREI SKOTVOPN” „Hvernig byssu?” spyr Gunna frænka og lyftir brúnum. „Hríð- skotabyssu? Aldrei nokkum tima. Ég gef aldrei skotvopn!” „Og ég vil ekki sjá þess háttar inn fyrir mínar dyr,” bætir mamma við með fyrirlitningu. Það er ekki vafi, að frænka vill vel og mamma líka, en til hug- hreystingar öllum uppalendum má geta þess, að litlu byssubófamir vaxa úr grasi og verða ágætir, samviskusamir þjóðfélagsþegnar. Börn, sem vegna óheppilegrar æsku em altekin ofbeldisshneigð munu þvi miður halda áfram að fá útrás fyrir óheilbrigðar hvatir með eða án skotvopna. ★ 53. TBL. VIKAN 41

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.